Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

946. fundur
19. maí 2020 kl. 14:30 - 17:25
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 319
Málsnúmer 2005002F
Fundargerð samþykkt.
2.
Heimsmarkmið og stefnumótun 2019
Málsnúmer 201903117
Ráðgjafi hefur unnið að drögum að stefnu sveitarfélagsins í Heimsmarkmiðum sameinuðu þjóðanna.
Bæjarráð felur starfsmönnum að skoða heimsmarkmiðin með hliðsjón af stefnum sveitarfélagsins.
3.
Markaðs- og kynningarmál í Sveitarfélaginu Hornafirði 2020
Málsnúmer 202005048
Árdís bar saman þá kynningarpakka sem henta fyrir sveitarfélagið.
Dagný fór yfir hugmynd af nýju kynningarnefni sem Markaðsstofa Suðurlands er að vinna að.
Bæjarráð samþykkir að taka þátt í verkefninu gagnvirkt ferðalag í samvinnu við Markaðsstofu Suðurlands að upphæð 265.814 kr. fjármunir verða teknir af kynningarmálalykli.
Bæjarráð samþykkir að auka við fjárframlag í kynningarmál sveitarfélagsins að upphæð 10 milljónir.
Vísað til fjármálastjóra til að meta áhrif á rekstur sveitarfélagsins með tilliti til viðauka.
4.
Samningur við Ríki Vatnajökuls - ósk um endurnýjun
Málsnúmer 201910133
Atvinnu- og ferðamálafulltrúi og bæjarstjóri fóru yfir stöðu mála.
5.
Byggingar óskráðar í fasteignaskrá
Málsnúmer 202005022
Bæjarráð samþykkir að breyta gjaldskrá byggingar- og skipulagsfulltrúa í samræmi við breytingu á byggingarreglugerð þar sem smáhýsi á lóð (skýli sem almennt eru ætluð til geymslu garðáhalda og ekki ætluð til íveru) sem ekki eru byggingarleyfis- eða tilkynningarskyld verði undanþegin gatnagerðargjöldum. Skv. núgildandi gjaldskrá er m.v. 10 fermetra en breyting á byggingarreglugerð frá 2016 gerir ráð fyrir allt að 15 fermetra smáhýsum.

6.
Endurskoðun á gjaldskrá umhverfis- og skipulagssvið
Málsnúmer 201908002
Brynja gerði grein fyrir breytingum á gjaldskrá umhverfis- og skipulagssviðs.
7.
Vinnuskóli 2020
Málsnúmer 202001084
Samþykkt.

8.
Átaksverkefni um sumarstörf fyrir framhalds- og háskólanema 2020
Málsnúmer 202005058
Minnisblað Mannauðs- og gæðastjóra lagt fram. Vinnumálastofnun ákvað að úthluta sveitarfélaginu 14 störfum í átaksverkefni VMST. Heildartala umsókna í sumarstörf voru 20.
Bæjarráð samþykkir að veita aukafjármagn í átaksverkefnið fyrir þrjú sumarstörf sem ekki hafa meðgjöf VMST.
Vísað til fjármálastjóra, til að meta áhrif á rekstur sveitarfélagsins með tilliti til viðauka.

9.
Staða á atvinnumarkaði í Sveitarfélaginu Hornafirði 2020
Málsnúmer 202002099
Engar breytingar hafa átt sér stað frá síðustu upplýsingum VMST.
10.
Aðgerðir til viðspyrnu fyrir íslenskt atvinnulíf
Málsnúmer 202003064
Minnisblað frá Byggðastofnun sem var kynnt á síðu stjórnarráðsins í gær.
Lagt fram til kynningar.
11.
Sóttvarnir: COVID-2019
12.
Málefni sláturhúss á Höfn
Málsnúmer 201809065
Málinu frestað.
13.
Ráðning umhverfis- og skipulagsstjóra
Málsnúmer 202005031
Erindi dags, 5. maí frá Kærunefnd jafnréttismála þar sem óskað er eftir afstöðu sveitarfélagsins til atriða sem koma fram í kæru til nefndarinnar, vegna ráðningu í starf umhverfis- og skipulagsstjóra.
Lagt fram til kynningar.
14.
Ósk eftir styrk
Málsnúmer 202005039
Erindi frá Jógvan Hansen dags. 12. maí þar sem óskað er eftir menningarstyrk vegna fyrirhugaðs tónleikahalds og viðburða.
Hafnað.
15.
Umsögn við frumvarpi til laga um uppbyggingu og rekstur fráveitna
Málsnúmer 202005044
Erindi frá Alþingi dags. 12. maí þar sem óskað er eftir umsögn vegna frumvarp til laga um breytingu á lögum um uppbyggingu og rekstur fráveitna nr. 9/2009. (átak í fráveitumálum).
Bæjarráð tekur undir umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga.
16.
Fundargerðir - Samtök sjávarútvegssveitarfélaga
Málsnúmer 202005051
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
17.
Fundargerð: stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 2020
Málsnúmer 202002010
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
18.
Umsögn um útgáfu leyfa: Hótel Jökull
Málsnúmer 202002120
Erindi dags. 28 febrúar frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna rekstrarleyfi fyrir Hótel Jökul í flokki IV.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn.
19.
Umsögn um útgáfu leyfa: Stekkatún
Málsnúmer 202005017
Erindi dags. 7. maí frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna rekstrarleyfi fyrir Skálafell II gisting í flokki II minna gistiheimili.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn.