Bæjarráð Hornafjarðar
948. fundur
2. júní 2020
kl.
14:30
-
16:40
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Sæmundur Helgason
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 227
Fundargerð samþykkt.
2.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 15
Fundargerðin samþykkt.
3.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd - 59
Fundargerð samþykkt.
4.
Ársreikningur HSU Hornafirði 2019
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd leggur til að samnningnum á milli Sjúkratrygginga Íslands og Sveitarfélagsins Hornafjarðar um rekstur hjúkrunar-, dvalar- og dagdvalarrýma verði sagt upp í heild sinni komi ekki til hækkunar á gjaldskrá samningsins.
Samkvæmt drögum að ársreikningi HSU Hornafirði fyrir árið 2019 er tap stofnunarinnar 45,7 milljónir króna. Eigið fé stofnunarinnar var í árslok neikvætt um 36,7 milljónir króna. Ljóst er að rekstur með sömu forsendum gengur ekki og mun leiða til greiðsluþrots stofnunarinnar. Einnig er ljóst, að fara þurfi í frekari aðgerðir til þess að minnka halla yfirstandandi rekstrarárs og treysta rekstrargrundvöll.
Bæjarráð vísar ársreikningnum til kynningar í bæjarstórn og til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun 2020.
Bæjarráð vísar ársreikningnum til kynningar í bæjarstórn og til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun 2020.
5.
Fjárhagsáætlun HSU Hornafirði 2020
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd leggur til að samnningnum á milli Sjúkratrygginga Íslands og Sveitarfélagsins Hornafjarðar um rekstur hjúkrunar-, dvalar-og dagdvalarrýma verði sagt upp í heild sinni komi ekki til hækkunar á gjaldskrá samningsins.
Drög að fjárhagsáætlun lögð fram til kynningar.
Ljóst er að framlög ríkisins til reksurs öldrunarþjónustu dugar engan veginn til að fjárhagsáætlun verði afgreidd í jafnvægi.
Unnið er að því að skoða alla þætti rekstursins og vill bæjarráð þakka stjórnendum og starfsmönnum þeirra framlag til þeirra vinnu.
Vísað til frekari vinnu í heilbrigðis- og öldrunarnefnd.
Samningur sveitarfélagsins við Sjúkratrygginga Íslands er uppsegjanlegur frá 7. júlí og leggur bæjarráð til við bæjarstjórn að honum verði sagt upp.
Ljóst er að framlög ríkisins til reksurs öldrunarþjónustu dugar engan veginn til að fjárhagsáætlun verði afgreidd í jafnvægi.
Unnið er að því að skoða alla þætti rekstursins og vill bæjarráð þakka stjórnendum og starfsmönnum þeirra framlag til þeirra vinnu.
Vísað til frekari vinnu í heilbrigðis- og öldrunarnefnd.
Samningur sveitarfélagsins við Sjúkratrygginga Íslands er uppsegjanlegur frá 7. júlí og leggur bæjarráð til við bæjarstjórn að honum verði sagt upp.
6.
Ályktun frá fundi félagsmanna AFLs um Skjólgarð
Erindi dags. 28. maí 2020 frá starfsfólki Afl starfsgreinafélags við hjúkrunarheimilið Skjólgarð, þar sem starfsfólkið leggur til að íslenska ríkið sjái um rekstur hjúkrunarheimilisins.
Erindi móttekið, bæjarráð vísar til bókunar varðandi fjárhagsáætlun fimmta lið.
7.
Grunnskóli Hornafjarðar: Erindi vegna iPadvæðingar
Bæjarráð samþykkir að veita fimm milljónum til spjaldtölvuvæðingar til Grunnskóla Hornafjarðar og vísar málinu til fjármálastjóra og viðauka við fjárhagsáætlun 2020.
8.
Endurnýjun Jafnréttisáætlunnar
Endurskoðun á jafréttisáætlun er lokið hafa allar nefndir sveitarfélagsins tekið hana til umsagnar engar athugasemdir voru gerðar við breytingu á áætluninni.
Bæjarráð vísar jafnréttisáætlun sveitarfélagsins til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Bæjarráð vísar jafnréttisáætlun sveitarfélagsins til afgreiðslu í bæjarstjórn.
9.
Aðgerðir til viðspyrnu fyrir íslenskt atvinnulíf
Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundi með samgögu og sveitarstjórnarráðuneytinu um áhrif Covid faraldursins á þau sveitarfélög sem verða fyrir mestum fjárhagslegum skaða vegna faraldursins.
Lagt fram til kynningar.
10.
Hitaveita
Bæjarstjóri gerði grein fyrir hitaveituframkvæmdum sem ganga vel, þó hafa framkvæmdir eitthvað tafist. Það er áætlað að framkvæmd við stofnlögn ljúki í september/október.
Engin tilboð bárust í útboð á lagningu heimtauga skv. upplýsingum frá RARIK.
Engin tilboð bárust í útboð á lagningu heimtauga skv. upplýsingum frá RARIK.
11.
Framkvæmd ljósleiðari í Lóni
Bæjarstjóri fór yfir stöðu verkefnisins. Einnig liggur fyrir erindi frá félagi sumarbústaðareigenda í Lóni.
Möguleg útfærsla fyrir sumarhús í Lóni er í skoðun að öðru leiti gengur undirbúningur vel.
12.
Frístundastyrkir - ósk um hækkun
Erindi frá Ungmennafélaginu Sindra þar sem óskað er eftir að sveitarfélagið hækki frístundastyrkinn um 10-15 þúsund til þess að koma á móts við fjölskyldur sem hafa greitt æfingagjöldin með frístundastyrk ef ákveðið verður að endurgreiða æfingagjöldin.
Bæjarráð hafnar erindinu, en sveitarfélagið mun taka þátt í úrræði félags- og barnamálaráðuneytisins um aukinn stuðning við frístundir 12-16 ára barna í sumar.
13.
Hornsvegur
Erindi frá Ómari Antonssyni þar sem hann óskar eftir stuðningi bæjarstjórnar um lagfærningu á Hornsvegi.
Lagt fram til kynningar. Bæjarstóra falið að vinna áfram að málinu í samstarfi við landeiganda og Vegagerðina.
14.
Fundarboð: Aðalfundur Landskerfis bókasafna 11.júní 2020
Fundarboð frá Landskerfi bókasafna dags. 26. maí lagt fram.
Lagt fram til kynningar.
15.
Stefna: Frá Hátíðni Finity ehf
Sveitarfélagið þarf að taka afstöðu til þess hvort úrskurður um upphæð málskostnaðartryggingar verði kærður.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við úrskurðinn.
16.
Leyfisgjald Fjallsárlóni_ósk um endurskoðun leyfisgjalda 2020
Afrit af erindi til Vatnajökulsþjóðgarðar dags. 17. apríl þar sem Fjallsárlón óskar eftir endurskoðun á leyfisgjöldum vegna ársins 2020.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna með Vatnajökulsþjóðgarði að úrlausn málsins.