Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

949. fundur
9. júní 2020 kl. 14:30 - 16:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 16
Málsnúmer 2006001F
Fundargerðin samþykkt.
2.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 13
Málsnúmer 2005012F
Fundargerðin samþykkt.
3.
Framkvæmdaáætlun 2020
Málsnúmer 202006013
4.
Viðaukar við fjárhagsáætlun 2020
Málsnúmer 202002017
Fjármálastjóri gerði grein fyrir viðauka II við fjárhagsáætlun 2020. Viðauka er mætt með lækkun á handbæru fé og viðbótar lántöku að fjárhæð 50 m.kr. Bæjarráð samþykkir viðauka II og vísar honum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
5.
Ósk um endurskoðun á greiðslu
Málsnúmer 1903108
Bæjarráð samþykkir að hækka greiðslur til markavarðar í samræmi við hækkun á vísitölu neysluverðs.
6.
Átak í fráveitumálum
Málsnúmer 202006006
Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Samorku þar sem bent er á frumvarp sem er til umfjöllunar í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sem hefur óskað eftir umsögnum um það.
Lagt fram til kynningar.
7.
Ráðning umhverfis- og skipulagsstjóra
Málsnúmer 202005031
Unnin hefur verið afstaða sveitarfélagsins vegna ráðningu umhverfis- og skipulagstjóra.
Lagt fram til kynningar.
8.
Vatnsból í Nesjum
Málsnúmer 201910107
Óskað var eftir úttekt frá Náttúrustofu Suðausturlands vegna grannsvæðis við vatnsbólið í Nesjum.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
9.
Eldvarnabandalagið: Samstarf um auknar brunavarnir
Málsnúmer 202006012
Sveitarfélagið gerði samkomulag við Eldvarnarbandalagið miðvikudaginn 3. júní, um samstarf um aukningu eldvarna og innleiðingu á eigin eldvarnareftirlits.
Áætlað er að fara af stað næsta haust og mun formlegt samstarf vara í eitt ár.
10.
Grunnskóli Hornafjarðar: Húsnæði Kátakots
Málsnúmer 201903067
Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu.
11.
Hornafjarðarflugvöllur
Málsnúmer 202006015
Lagt fram til kynningar útboð Vegagerðarinnar vegna sérleyfis í flugi til Hornafjarðar.
12.
Fundargerðir stjórnar SASS
Málsnúmer 202002002
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
13.
Ársfundur Stapa 2020
Málsnúmer 202006010
Stjórn Stapa lífeyrisjóðs boðar til ársfundar 30. júní í Menningarhúsinu Hofi Akureyri.
Lagt fram til kynningar.
14.
Fundir bæjarstjórnar og bæjarráðs sumarið 2020
Málsnúmer 202006014
Bæjarráð samþykkir breytingu á fundartíma í júní, júlí og ágúst.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.