Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

950. fundur
16. júní 2020 kl. 14:30 - 16:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Grunnskóli Hornafjarðar: Húsnæði Kátakots
Málsnúmer 201903067
Ragnhildur gerði grein fyrir hugmyndum og vinnu við að leysa húsnæðismála fyrir Kátakot, lengda viðveru.
Bæjarráð samþykkir að Kátakot verði með starfsemi í kjallara Vöruhúss til viðbótar við núverandi húsnæði næstu misserin. Starfsmönnum falið að vinna framkvæmda- og kostnaðaráætlun vegna nauðsynlegra breytinga á ónýttu rými í kjallara.
2.
Efling leikskólastigsins
Málsnúmer 201501047
Ragnhildur gerði grein fyrir aðgerðum til að hækka menntunarstig á leikskólum.
Bæjarráð samþykkir að framlengja aðgerðir til að hækka menntunarstig á leikskóla til áramóta.
3.
Fimleikahringurinn 2020
Málsnúmer 202006028
Erindi frá Fimleikasambandi Íslands þar sem óskað er eftir 100 þús. kr. styrk fyrir Karlalandsliðið sem mun koma til Hafnar og halda sýningu 29. júlí.
Bæjarráð samþykkir að veita 100 þúsund kr. styrk, fjármagnið tekið af óráðstöfuðu.
4.
Hjólreiða- og göngustígur á milli Nesjahverfis og Hafnar
Málsnúmer 202006030
Erindi frá Ungmennafélaginu Sindra þar sem óskað er eftir að unnið verði að gerð hjóla og göngustíg frá Höfn að Mánagarði. Einnig er spurt um könnun sem gerð var um ósk íbúa um hvaða göngu og hjólaleiðir þeir sæju fyrir sér á Höfn.
Bæjarráð þakkar fyrir erindið og vísar því til áframhaldandi vinnu starfsmanna.
5.
Áherslur sumarsins 2020 í umhverfinu
Málsnúmer 202003105
Brynja gerði grein fyrir viðbótaframkvæmdum í sumar.
Bæjarráð samþykkir að kaupa eco- raster á nýjan göngustíg í Ægissíðu.
Bæjarráð samþykkir að malbika í Borgartúni í Öræfum.
Vísað til starfsmanna að kostnaðargreina verkefnin og meta áhrif þeirra á fjárhagsáætlun 2020.
6.
Ósk um breytingu á gistileyfi: Hlíðartún 41
Málsnúmer 202006029
Erindi stílað á bæjarstjórn, dags. 11. júní frá eigendum að Hlíðartúni 41 þar sem óskað er eftir heilsársgistileyfi.
Hlíðartún 41 er á íbúðasvæði og samrýmist breytingin því ekki gildandi aðalskipulagi. Starfsmönnum falið að svara erindinu.
7.
Styrkur til rannsóknar - Vegna áhrifa Covid 19
Málsnúmer 202006031
Erindi frá Rannsóknarsetri Háskóla Íslands á Hornafirði.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.