Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

951. fundur
30. júní 2020 kl. 14:30 - 16:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 228
Málsnúmer 2006009F
Fundargerð samþykkt.
2.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 69
Málsnúmer 2006006F
Fundargerð samþykkt.
3.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd - 60
Málsnúmer 2006005F
Fundargerð samþykkt.
4.
Stefna Ice Lagoon ehf: Athafnir sveitarfélagsins 2010 til 2017
Málsnúmer 201805104
Björgvin Sigurjónsson vék af fundi undir þessum lið Kristján Guðnason sat fundinn í hans stað. Bryndís Hólmarsdóttir sat fundinn undir þessum lið.
Árni Helgason lögfræðingur fór yfir feril málsins og dóm héraðsdóms Austurlands.
Bæjarráð samþykkir að áfrýja dómnum.
5.
Ársreikningur HSU Hornafirði 2019
Málsnúmer 202005092
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd samþykkir ársreikning HSU Hornafirði fyrir árið 2019.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi ársreikning HSU á Hornafirði fyrir árið 2019, og áskilur sér rétt til að sækja taprekstur til ríkisins sem á að fjármagna þjónustuna.*
6.
Fjárhagsáætlun HSU Hornafirði 2020
Málsnúmer 201909059
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd samþykkti að fjárhagsáætlun verði starfsáætlun og vísaði henni til umræðu í bæjarráði.
Lagt fram til kynningar.
7.
Nafn heilbrigðisstofnunarinnar
Málsnúmer 202004070
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd samþykkti samhljóma að nafn stofnunarinnar skuli vera Skjólgarður.
Bæjarráð samþykkir að nafn stofnunarinnar verði Skjólgarður.*
8.
Gjafa- og minningarsjóður Skjólgarðs 2020
Málsnúmer 202005028
Bæjarráð samþykkir stofnskrá og skipulagsskrá fyrir Gjafa- og minningarsjóð Skjólgarðs* og felur bæjarstjóra að skrifa undir skrárnar. Starfsmönnum falið að sækja um nýja kennitölu fyrir sjóðinn.
9.
Tannlæknaþjónusta í nýju Hjúkrunarheimili
Málsnúmer 202006067
Erindi frá Félagi eldri Hornfirðinga þar sem kemur fram ályktun félagsins frá aðalfundi þess þann 6. júní. Félagið bendir á mikilvægi þess að lágmarks tannlæknaþjónusta verði til staðar í nýju hjúkrunarheimili.
Bæjarráð þakkar Félagi eldri Hornfirðinga fyrir ábendinguna, starfsmönnum falið að svara erindinu.
10.
Barnvænt sveitarfélag: Innleiðing barnasáttmála SÞ
Málsnúmer 201911065
Þann 19. júní s.l. undirritaði bæjarstjóri ásamt félags- og barnamálaráðherra og framkvæmdastjóra UNICEF samkomulag um þátttöku Sveitarfélagsins Hornafjarðar í verkefninu Barnvæn sveitarfélög, en verkefnið hefur það markmið að innleiða barnasáttmála Sameinuðu Þjóðanna. Sáttmálinn felst í því að sveitarfélagið innleiði Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna samkvæmt hugmyndafræði barnvænna sveitarfélaga sem UNICEF hefur þróað. Framkvæmd verkefnisins er í höndum sveitarfélagsins með reglulegum og vel tilgreindum stuðningi Félagsmálaráðuneytis og UNICEF í formi fræðslu og ráðgjafar.
Lagt fram til kynningar.
Starfsmönnum falið að vinna að innleiðingaráætlun fyrir árið 2020.
11.
Staða sveitarsjóðs 2020
Málsnúmer 202003078
Fjármálastjóri gerði grein fyrir stöðu útsvarstekna og breytingum á Jöfnunarsjóðsframlögum.
Lagt fram.
12.
Landskipti: Grænahraun
Málsnúmer 202006080
Erindi frá Jónu Benný Kristjánsdóttir dags. 24. júní þar sem hún óskar eftir staðfestingu bæjarstjórnar á landskiptum á jörðinni Grænahraun í umboði eigenda jarðarinnar. Landskiptin eru á vegna skiptingar jarðarinnar Grænahraun 3 landnúmer 224832 stærð 11.942 m2 úr landi Grænahrauns landnúmer 159481 stærð óskráð, skv, meðfylgjandi uppdrætti. Eigendur eru Valþór Ingólfsson kt. 191250-4439 og Valdimar Ingólfsson 111066-3619.
Bæjarráð samþykkir landskiptin.*
13.
Álagningaprósenta verði lækkuð á milli ára
Málsnúmer 202006068
Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dags. 16. júní þar sem beiðni frá sveitarstjórnarráðherra vegna fasteignaskatt álagningar árið 2021, hann hvetur sveitarfélög til að hækka ekki fasteignagjöld á atvinnuhúsnæði umfram verðlagsbreytinga.
Vísað til fjárhagsáætlunargerðar.
14.
Samráðsteymi sveitarfélaga vegna efnahagsáhrifa í kjölfar Covid-19.
Málsnúmer 202006079
Minnisblað frá Byggðarstofnun dags. 12. maí um áhrif hruns ferðaþjónustunnar vegna Covid -19 á sveitarfélögin lagt fram. Þar kemur fram mikilvægi þess að rýna hvernig margvíslegar mótvægisaðgerðir stjórnvalda nýtast sveitarfélögunum og byggðalögum, svo sem á sviði vinnumarkaðsaðgerða, menntunar og atvinnumála. Samhliða er rétt að rýna hvernig þær ráðstafanir sem sveitarfélögin sjálf hafa gripið til nýtast til verndar og viðspyrnu fyrir íbúa og atvinnulíf svæðisins. Í minnisblaðinu kemur fram að gistinætur í Sveitarfélaginu Hornafirði árið 2019 eru langflestar miðað við sveitarfélög utan höfuðborgarsvæðisins eða 465.404 af 8.406.291.
Lagt fram til kynningar og umræðu.
15.
Kynning á auglýsingaherferð
Málsnúmer 202006064
Erindi frá Marina Travel þar sem boðið er upp á kynningar erlendis fyrir sveitarfélagið og ferðaþjónustuna.
Bæjarráð hafnar erindinu og bendir málsaðila á svæðissamtökin Ríki Vatnajökuls.
16.
Framlög til verkefna á sviði almenningssamgangna
Málsnúmer 202006066
Erindi frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu þar sem auglýst er eftir umsóknum um framlög sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaráætlunar fyrir árin 2018-2024 vegna verkefna sem tengjast aðgerð A.10 Almenningssamgöngur um land allt. Markmið er að styðja við þróun almenningssamgangna, sérstaklega út frá byggðarlegum sjónarmiðum.
Starfsmönnum falið að skoða möguleika á umsókn í tengslum við akstur í dreifbýli sem er á vegum sveitarfélagsins.
17.
Kerfisáætlun Landsnet 2020-2029
Málsnúmer 201911089
Kerfisáætlun 2020-2029, ásamt framkvæmdaáætlun 2021-2023 og umhverfisskýrslu eru í opnu umsagnarferli sem stendur til 31. júlí 2020.
Lagt fram til kynningar.
18.
Umsögn um útgáfu leyfa: Vesturhús ehf
Málsnúmer 202006043
Erindi frá Sýslumanni dags. 12. júní 2020 þar sem óskað er eftir umsögn vegna umsóknar um rekstarleyfi fyrir Hof Vesturhús til sölu gistingar í flokki II, gistiskáli.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn.
19.
Fundargerð: stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 2020
Málsnúmer 202002010
Fundargerðirnar má nálgast á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga https://www.samband.is/um-sambandid/skipulag/fundargerdir/
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
20.
Fundargerðir HAUST 2020
Málsnúmer 202002070
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
21.
Fundargerðir stjórnar Nýheima þekkingarseturs
Málsnúmer 202001081
Fundargerðin lögð fram til kynningar.