Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

952. fundur
13. júlí 2020 kl. 13:00 - 15:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 320
Málsnúmer 2006002F
2.
Markaðs- og kynningarmál í Sveitarfélaginu Hornafirði 2020
Málsnúmer 202005048
Árdís og Þorkell kynna markaðsherferð sveitarfélagsins í ferðamálum.
Markaðsherferð sveitarfélagsins er í fullri virkni og hefur hún verið í gegnum heimasíðu Ríkis Vatnajökuls. Leitað var samstarfs við auglýsingastofu sem ráðgjafa við verkefnið. Mikið hefur verið að íslensku ferðafólki í sveitarfélaginu og lætur ferðaþjónustan nokkuð vel af sér.
3.
Ósk um samstarf í markaðsmálum
Málsnúmer 202007005
Eftir komu K100 í byrjun júlí kom ósk um samstarf við sveitarfélagið um auglýsingar með því markmiði að fyrirtækið geti komið upp varanlegum sendi til útsendinga K100 á staðnum.
Erindi hafnað.
4.
Jafnlaunavottun
Málsnúmer 201909008
Niðurstöður launagreiningar fyrir sveitarfélagið liggur fyrir í tengslum við jafnlaunavottun.
Sverrir kynnti niðurstöður launagreiningar. Launagreiningin er hluti af ferli jafnlaunavottunar. Niðurstöður eru á þá leið að launamunur mælist vart. Launamunur á grunnlaunum mælist 2% og á heildarlaunum 0,9%, hvoru tveggja konum í hag. Síðast var framkvæmd launagreining árið 2017 og hefur launamunur dregist saman.
Næstu skref er að kynna niðurstöður launagreiningar fyrir öllu starfsfólki, í kjölfarið mun lokaúttekt jafnlaunavottunar fara fram í ágúst.

5.
Fjárhagsáætlun HSU/Skjólgarði 2020
Málsnúmer 201909059
Bæjarráð óskaði eftir því að fá fjárhagsáætlun Skjólgarðs fyrir fundinn aftur.
Rekstur Skjólgarðs er verulega þungur um þessar mundir og bendir fjárhagsáætlun til þess að hallarekstur verði rúmlega 50 m.kr. Stjórnendum falið að halda áfram að leita leiða til hagræðinga. Jafnframt felur bæjarráð bæjarstjóra að óska eftir fundi með SÍ og heilbrigðisráðherra um samningamál.
6.
Umsókn um styrk til að auka félagsstarf fullorðinna vegna Covid sumarið 2020
Málsnúmer 202007010
Sótt var um styrk til Félagsmálaráðuneytisins til að auka félagsstarf fullorðinna í sumar.
Lagt fram til kynninga.
7.
Sóttvarnir: COVID-2019
Málsnúmer 202003021
Í kjölfar fjölgunar smita í kringum opnun landamæra hafa Almannavarnir á Suðurlandi fundað í tvígang með bæjar- og sveitarstjórum. Íbúar eru hvattir til að viðhalda sóttvörnum og virða tilskipanir stjórnvalda um fjöldatakmarkanir.
8.
Samráðsteymi sveitarfélaga vegna efnahagsáhrifa í kjölfar Covid-19.
Málsnúmer 202006079
Undir fundinum liggja gögn sem send voru vegna vinnu samráðsteymis sveitarfélaga.
Sveitarfélagið Hornafjörður er eitt af 9 sveitarfélögum á landinu sem er áætlað að komi illa út vegna efnahagslegra áhrifa Covid-19. Stjórnvöld hafa sett á laggirnar samráðsteymi sem metur ástandið og kortleggur mögulegar aðgerðir til viðspyrnu í sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á nýsköpun, störf án staðsetningar, fjarvinnslustöðvar og fleira.
9.
Aðgerðir til viðspyrnu fyrir íslenskt atvinnulíf
Málsnúmer 202003064
Nú þegar Covid-19 faraldurinn er í rénun hér á landi hafa félags-og barnamálaráðherra, samgöngu- ogsveitarstjórnarráðherra og Samband íslenskra sveitarfélaga ákveðið að stofna nýtt teymi um uppbyggingu félags- og atvinnumála í kjölfar COVID-19.
Teymið mun safna og miðla upplýsingum um stöðu félags- og atvinnumála á
landsvísu í kjölfar COVID-19 heimsfaraldursins og fylgja eftir aðgerðum ríkisstjórnarinnar er það varðar.
Sveitarfélagið Hornafjörður hefur fengið þrjá styrki vegna þessa sem snúa að því að auka starfsemi og þjónustu í félagsstarfi fullorðinna sumarið, styrk til að styrkja sumarstarf sveitarfélaga með börnum og ungmennum í viðkvæmri stöðu en Þrykkjan er nú með sumaropnun sem er nýjung. Einnig fékkst styrkur til Heimaþjónustudeildar en stefnt er að sérstakri sumarferð með þjónustuþegum.
10.
Skipurit 2020
Málsnúmer 202001015
Skipuritið hefur fengið umfjöllun í öllum nefndum sveitarfélagsins.
Athugasemd barst frá Hafnarstjórn þar sem lögð er áhersla á að Hornafjarðarhöfn haldi mikilvægi sínu innan stjórnsýslunnar sem sér nefnd meðal annars. Þeirri athugasemd er vísað endurskoðunar á samþykktum sveitarfélagsins.
Sæmundur leggur fram eftirfarandi bókun í umhverfis- og skipulagsnefnd og ítrekar hana við afgreiðslu bæjarráðs: Bent er á að atvinnu- og ferðamál eiga mikla samleið með menningarmálum. En líka margskonar samleið við umhverfis- og skipulagsmál og málefni sjávarútvegs og bænda, jafnvel fræðslumál og heilbrigðismál. Þess vegna getur hann ekki stutt þá breytingu, að fella atvinnu- og ferðamál undir menningarmál í skipuriti. Það dregur úr mikilvægi atvinnu- og ferðamála gagnvart stjórnsýslunni, að mati Sæmundar. Nær væri að halda atvinnu- og ferðamálum undir stjórnsýslueiningunni, í sama dálki og gert var í skipuriti frá 2016 og þannig nær málaflokkurinn að vinna þvert á allar nefndir.
Aðrar athugasemdir bárust ekki.
Bæjarráð samþykkir framlagt skipurit. Bæjarráð felur starfsmönnum að undirbúa endurskoðun á samþykktum sveitarfélagsins í kjölfar nýs skipurits.*
11.
Óveruleg breyting á deiliskipulagi við Fiskhól
Málsnúmer 202006078
Erindi frá rekstraraðilum Náttbóls ehf. Við gerð deiliskipulags á tjaldsvæði datt út af skipulagi úthlutuð lóð nr. 48c.
Bæjarráð felur starfsmönnum að vinna áfram að málinu.
12.
Samgöngumál í sveitarfélaginu 2020
Málsnúmer 202007031
Í kjölfar samþykktar á samgönguáætlun og frumvarpi um samvinnuverkefni um vegaframkvæmdir er gert er ráð fyrir að halda áfram framkvæmdum á hringveginum um Hornafjörð og ljúka þeim á árunum 2021-2024. Bæjarráð felur bæjarstjóra að kalla eftir upplýsingum frá Vegagerðinni og kalla eftir upplýsingum um verkefni sem fyrirhuguð eru í sveitarfélaginu.




13.
Hornafjarðarflugvöllur
Málsnúmer 202006015
Lagt fram til kynningar.
Bæjarstjóra falið að kalla eftir upplýsingum frá Vegagerðinni um útboð áætlunarflugs til Hornafjarðar.
14.
Beiðni: Breyting á aðstöðu fyrir hlaupahjól og hjólabretti
Málsnúmer 202007026
Innsent erindi.
Bæjarráð þakkar fyrir erindið og vísar erindinu til umfjöllunar hjá umhverfis- og skipulagsnefnd.
15.
Byggingarleyfisumsókn: Jöklasel F2181954 - niðurrif
Málsnúmer 202004044
Ósk um niðurfellingu fasteignagjalda.
Erindi vísað til afgreiðslu starfsmanna.
16.
Kerfisáætlun Landsnet 2020-2029
Málsnúmer 201911089
Tryggja þarf öryggi í afhendingu raforku í Sveitarfélaginu Hornafirði. Fyrirhuguð er orkufrek uppbygging í Lóni og því mikilvægt að tryggja afhendingu raforku þar.
17.
Opinber störf á landsbyggðinni
Málsnúmer 202006088
Erindi frá byggðarráði Sveitarfélagsins Skagafjarðar þar sem byggðaráð hvetur stjórnvöld til áframhaldandi góðra verka er kemur að fjölgun opinberra starfa hjá landsbyggðarsveitarfélögum og skorar á önnur sveitarfélög að taka undir áskorun byggðarráðs um eflingu og fjölgun opinberra starfa á landsbyggðinni.
Bæjarráð tekur undir áskorun frá byggðarráði Sveitarfélagsins Skagafjarðar og hvetur stjórnvöld til að standa við loforð um að efla og fjölga opinberum störfum hjá landsbyggðarsveitarfélögum.
18.
Forsendur fjárhagsáætlana 2021-2024
Málsnúmer 202007008
Minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga um forsendur fjárhagsáætlana lagt fram.
Lagt fram til kynningar.
19.
Könnun á kjörum sveitarstjórnarmanna og framkvæmdastjóra sveitarfélaga 2020
Málsnúmer 202007020
Lögð fram niðurstaða úr kjarakönnun sveitarstjórnarmanna og framkvæmdastjóra sveitarfélaga 2020.
Lagt fram til kynningar.
20.
Brennuleyfi: Skaftafell vestan við tjaldsvæði
Málsnúmer 202006059
Bæjarráð gerir ekki athugasemd.
21.
Fundargerðir stjórnar SASS
Málsnúmer 202002002
Lagt fram til kynningar.