Bæjarráð Hornafjarðar
953. fundur
28. júlí 2020
kl.
14:30
-
15:50
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Kristján Sigurður Guðnason
1. varamaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Sæmundur Helgason
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
fjármálastjóri
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga- og stjórnsýslufulltrúi
Dagskrá
1.
Útboð Víkurbraut 24
Björn greindi frá útboðsgögnum vegna endurbóta á Víkurbraut 24.
Bæjarráð heimilar útboð á Víkurbraut 24, endurbætur og breytingar samkvæmt framlögðum gögnum.
2.
Ríkisstjórnarfundur á Hellu 18. ágúst 2020
Bæjarráð leggur til að formaður bæjarráðs og bæjarstjóri fari á fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins.
3.
Lóð og aðkoma Litlubrú 1
Bæjarráð heimilar að rampur verði steyptur út fyrir lóðarmörk með sömu skilmálum og þegar leyfið fyrir hurðinni fyrir vörumóttöku í Vínbúð var veitt.
Lóðarmörk á þessu svæði verða skoðuð heildstætt í deiliskipulagi þegar það verður unnið.
Lóðarmörk á þessu svæði verða skoðuð heildstætt í deiliskipulagi þegar það verður unnið.
4.
Rammasamningur milli SÍ og hjúkrunarheimila um þjónustu hjúkrunarheimila
Bréf sem sent var til ráðherra heilbrigðismála vegna fundar um rammasamning um öldrunarþjónustu á Hornafirði, lagt fram til kynningar.
5.
Tilkynning um fjárhagslega endurskipulagningu
Lagt fram til kynningar.
6.
Ársskýrsla Haust 2019
Lagt fram til kynningar.
Bæjarráð þakkar Helgu Hreinsdóttur fyrir samstarfið og vel unnin störf í þágu Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Bæjarráð þakkar Helgu Hreinsdóttur fyrir samstarfið og vel unnin störf í þágu Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
7.
Umsögn um útgáfu leyfa: Gistihús GST
Erindi dags. 12. maí frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn um rekstarleyfi að Bjarnarhóli 9 til sölu gistingar í flokki II minna gistiheimili fyrir Gistihús GST.
Frestað þar til Skipulagsstofnun hefur afgreitt Ferðaþjónustukafla aðalskipulags sveitarfélagsins 2012-2030.
8.
Umsögn um útgáfu leyfa: Sauðanes
Erindi dags. 8. júlí frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar em óskað er eftir umsögn um nýtt rekstarleyfi fyrir Sauðanes, gisting í flokki II minna gistiheimili frá Aurora tours ehf.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn.
9.
Umsögn um útgáfu leyfa: Humarhöfnin ehf
Erindi dags. 12. júní frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn um nýtt rekstarleyfi til sölu veitinga í flokki II frá Humarhöfninni.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn.
10.
Umsögn: Flugeldasýning á Jökulsárlóni 2020
Erindi dags. 8. júlí frá Björgunarsveit Hornafjarðar þar sem óskað er eftir umsögn um flugeldasýningu á Jökulsárlóni 15. ágúst.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn um útgáfu leyfis og veitir einnig jákvæða umsögn fyrir hönd slökkvistjóra.*
Bæjarráð bendir umsóknaraðilum á að viðburðurinn uppfylli kröfur sóttvarnarlæknis um sóttvarnir.
Bæjarráð bendir umsóknaraðilum á að viðburðurinn uppfylli kröfur sóttvarnarlæknis um sóttvarnir.