Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

954. fundur
11. ágúst 2020 kl. 14:30 - 16:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Markaðs- og kynningarmál í Sveitarfélaginu Hornafirði 2020
Málsnúmer 202005048
Árdís greindi frá stöðu mála, sveitarfélagið hefur keyrt markaðsherferð fyrir íslenska ferðamenn með árangursríkum hætti í sumar, flestir ferðaþjónustuaðilar segja sumarið hafa farið fram úr væntingum.Í framhaldinu átti að markaðssetja ferðaþjónustu fyrir erlenda ferðamenn en nú hefur staðan vegna Covid 19 versnað og óvíst með ferðalög bæði innan lands og utan næstu vikur og mánuði.
Samþykkt að bíða með markaðssetningu fyrir erlendan markað og vinna áfram að kynningamálum fyrir innlendan markað þar til horfur vænkast með ferðalög milli landa.
Stefnt verði að því að halda ráðstefnu/málþing í byrjun vetrar þar sem áhersla verði lögð á að "horfa til framtíðar, efla samstarf og samvinnu, sem og huga að vöruþróun og nýsköpun innan svæðisins". Metið verði þegar nær dregur hvort málþingið verði rafrænt eða í nærveru.
2.
Fjallskilasamþykkt
Málsnúmer 201709281
Bæjarstjórn samþykkti fjallskilasamþykkt í annarri umræðu í maí sl. Í framhaldinu var hún send atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu til samþykktar. Ráðuneytið leitaði umsagnar til Bændasamtaka Íslands og hafa borist athugasemdir sem ráðuneytið óskar eftir athugasemdum sveitarfélagsins við.
Bæjarstjóra falið að vinna drög að svari við athugasemdum í samstarfi við lögfræðing sveitarfélagsins og Búnaðarsamband Austur-Skaftfellinga.
3.
Hönnun: Mikligarður 2020
Málsnúmer 202003108
Bæjarráð samþykkir verðkönnun vegna framkvæmda í Miklagarði samkvæmt fyrirliggjandi gögnum.
4.
Sóttvarnir: COVID-2019
Málsnúmer 202003021
‍Gildandi takmörkun á samkomum nær til 13. ágúst. Stjórnvöld munu endurmeta þörf á takmörkuninni eftir því sem efni standa til, þ.e. hvort unnt sé að aflétta henni fyrr eða hvort þörf sé á að framlengja gildistíma hennar. Takmörkun á fjölda einstaklinga sem kemur saman miðast við 100 fullorðna. Hvar sem fólk kemur saman og í allri starfsemi verði viðhöfð sú regla að hafa a.m.k. 2 metra á milli einstaklinga. Þar sem ekki er hægt að tryggja 2 metra fjarlægð milli ótengdra einstaklinga með fjöldatakmörkun verði krafist notkunar andlitsgrímu.
Farið yfir stöðu mála. Ekkert smit hefur greinst í Sveitarfélaginu Hornafirði í annarri bylgju Covid-19. Íbúar eru hvattir til að huga áfram að einstaklingsbundnum sóttvörnum.
5.
Staða sveitarsjóðs 2020
Málsnúmer 202003078
Ólöf fór yfir rekstaryfirlit fyrstu sex mánuði ársins. Reksturinn er í jafnvægi og ekki hefur gætt samdráttar í útsvarstekjum ef fyrstu sex mánuðir ársins eru teknir saman.
6.
Ársreikningur Gjafa- og minningarsjóðsins 2019
Málsnúmer 202007029
Lagt fram til kynningar.
7.
Leiðrétt áætlun framlaga vegna lækkunar á fasteignaskatti 2020
Málsnúmer 202008007
Endurskoðuð áætlun Jöfnunarsjóðs um framlög til sveitarfélaga vegna jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts sbr. reglugerð nr. 80/2001. Í ljós kom að mistök áttu sér við útreikning á eldri álagningarstofni hjá Þjóðskrá Íslands og því hafa framlögin verið endurreiknuð.
Lagt fram til kynningar.
8.
Fasteignamat 2021
Málsnúmer 202007001
Erindi frá Þjóðskrá Íslands dags. 30. júní þar sem fasteignamat fyrir árið 2021 er lagt fram.
Lagt fram til kynningar.
9.
TAKK veggur
Málsnúmer 202007055
Þakkar bréf frá Til fyrirmyndar lagt fram.Til fyrirmyndar þakkar sveitarfélaginu framlag sitt með Takk vegg á Vöruhúsinu í tilefni þess að 40 ár eru liðin frá því að frú Vigdís Finnbogadóttir var sett í embætti forseta Íslands.
Lagt fram til kynningar.
10.
Landskipti: Sauðanes 2 og Sauðanes 3
Málsnúmer 202007059
Erindi frá Snorra Snorrasyni, fyrir hönd eigenda jarðarinnar Sauðanes Hornafirði Valdimars Ingólfssonar og Aðalheiðar F. Björnsdóttur.Óskað er eftir samþykki sveitarfélagsins vegna landskipta á jörðinni Sauðanes Hornafirði landeignanr. L 159512 og fasteignanúmer f 2180326 í þrjá hluta, Sauðanes 2 landeignanr. L230375 verði skipt úr Sauðanes Hornafirði landeignanr. L159512 og verði sjálfstæði eign. Sauðanes 3 landeignanr. L 230376 verði formlega skipt úr jörðinni Sauðanes Hornafirði landeignanr. L159512 fasteignanr. F2180326 og verði sjálfstæð eign. Lögbýlisréttur mun áfram fylgja Sauðanesi landeignanr. L159512 en 20% hlutdeild í upprekstrarlandi mun fylgja Sauðanesi 2 landeignanr. L230375 samkvæmt meðfylgjandi uppdráttum.
Bæjarráð samþykkir landskiptin* með vísan í 13. gr. jarðarlaga nr. 81/2004 og vísan í 48 gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
11.
Skaftfellingur
Málsnúmer 202003084
Drög að reglum um útgáfu Skaftfellings lagðar fram.
Vísað til umfjöllunar í atvinnu- og menningarmálanefnd. Lagt til að Menningarmiðstöð tilnefni í ritnefnd og að áfram verði hún skipuð þremur aðilum ásamt ritstjóra sem jafnframt er starfsmaður nefndarinnar. Tilnefnd ritnefnd verði staðfest í atvinnu- og menningarmálanefnd.