Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

957. fundur
1. september 2020 kl. 14:30 - 17:10
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd - 61
Málsnúmer 2008007F
Bæjarráð vísar lið fjögur í fundargerðinni til umræðu í félagsmálanefnd.
Fundargerð samþykkt.
2.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 229
Málsnúmer 2008010F
Fundargerð samþykkt.
3.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 17
Málsnúmer 2008011F
Fundargerð samþykkt.
4.
Skaftfellingur
Málsnúmer 202003084
Atvinnu- og menningarmálanefnd gerði ekki athugasemd við reglurnar.
Bæjarráð samþykkir reglur um útgáfu Skaftfellings.
5.
Opnunartími íþróttahúss
Málsnúmer 202008098
Erindi frá Ungmennafélaginu Sindra þar sem óskað er í eftir endurskoðun á opnunartíma Íþróttahúss á Höfn vegna aukins áhuga á íþróttum.
Bæjarráð er jákvætt fyrir opnun íþróttahússins á sunnudögum.
Fræðslustjóra falið að skoða hvaða áhrif breyting á opnunartíma hafi á rekstur hússins.
6.
Hlutverk og tilgangur ungmennaráða sveitarfélaga
Málsnúmer 202008088
Umboðsmaður barna bendir á að ungmennaráð eiga að vera skipuð börnum 13-17 ára, þar sem þessi aldurshópur er sá hópur sem ekki hefur kosningarétt og geti því ekki haft áhrif á ákvarðanatöku.
Bréf umboðsmanns barna lagt fram til kynningar, vísað til umfjöllunar í ungmennaráði.
7.
Umsókn um skólavist utan lögheimilissveitarfélags
Málsnúmer 202008083
Bæjarráð samþykkir að veita skólavist til áramóta.
8.
Útboð Víkurbraut 24
Málsnúmer 202007043
Komin ný gögn undir málið.
Eitt tilboð barst í verkið frá Þingavaði ehf. 215.037.013 kr. 11% yfir kostnaðaráætlun.

Kostnaðaráætlun
hljóðaði upp á 194.210.672 kr.

Bæjarráð felur starfsmanni að ganga til samninga með þeim fyrirvörum sem voru gerðir fyrir opnun tilboða.

9.
Hönnun: Mikligarður 2020
Málsnúmer 202003108
Verðkönnun vegna endurbóta utanhúss á Miklagarði lögð fram.
Eitt fyrirtæki, H-Christiansen ehf., skilaði inn verði í endurbæturnar, upp á 41.659.555 kr. 20% yfir kostnaðaráætlun.
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 34.602.600 kr.
Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu.
10.
Sóttvarnir: COVID-2019
Málsnúmer 202003021
Bæjarstjóri gerði grein fyrir að ekkert nýtt smit hefur greinst í sveitarfélaginu. Þeir einstaklingar sem voru í sóttkví eru að losna úr henni þessa dagana.
11.
Aðgerðir til viðspyrnu fyrir íslenskt atvinnulíf
Málsnúmer 202003064
Bæjarstjóri gerði grein fyrir erindi frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu.
Vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna.
12.
Stafræn framþróun sveitarfélaga
Málsnúmer 202008084
Samband Íslenskra sveitarfélaga gerði úttekt á stafrænni þróun hjá sveitarfélögum í landinu. Starfsmenn sveitarfélagsins svöruðu könnuninni. Sveitarfélagið er meðal þeirra sem hafa innleitt stafræna þjónustu við íbúa og kjörna fulltrúa, könnunin er ágætt leiðarljós til þess að bæta það sem út af stendur í starfrænni þróun.
Vinna stendur yfir hjá Grunnskóla Hornafjarðar og velferðarþjónustu sveitarfélagsins um framþróun í starfrænni þróun.
Lagt fram til kynningar.
13.
Leyfisgjald Fjallsárlón - ósk um endurskoðun leyfisgjalda 2020
Málsnúmer 202005106
Bæjarstjóri gerði grein fyrir málinu sem er til umræðu hjá svæðisráði og stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs.
14.
Árshátíð starfsmanna sveitarfélagsins 2020
Málsnúmer 202008063
Árshátíð sveitarfélagsins hefur verið aflýst i ár.
Þar sem ekki verður haldin árshátí samþykkir bæjarráð að veita 10 þúsund króna gjafabréf á hvern starfsmann og nefndarmann til að nýta hjá veitinga- gisti eða afþreyingaaðilum í sveitarfélaginu. Starfsmönnum falið að útfæra verkefnið.
15.
Samgöngumál í sveitarfélaginu 2020
Málsnúmer 202007031
Bæjarstjóri og umhverfis- og skipulagsstjóri áttu fund með umdæmisstjóra Vegagerðarinnar á Austurlandi um helstu samgöngumál í Sveitarfélaginu Hornafirði.
Lagt fram til kynningar.
16.
Heimsmarkmið og stefnumótun 2019
Málsnúmer 201903117
Vinna við gerð heimsmarkmiða miðar vel áfram og liggja drög að stefnumótun fyrir. Íbúakönnun var framkvæmd í sumar þar sem þátttakan var ágæt eða um 280 manns svöruðu og liggja niðurstöðurnar fyrir sem nýttar verða í áframhaldandi stefnumótunarvinnu. Ljóst er að ekki verður hægt að halda íbúafund til að fá hugmyndir frá íbúum inn í stefnuna. Lagt er til að kynna drögin á rafrænum fundi fyrir íbúum og leggja stefnumótunarvinnuna fyrir íbúa til umsagnar.
Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
17.
Nýheimar: samstarfssamningur 2020
Málsnúmer 202005033
Í kjölfar þess að í vinnslu er húsaleigusamningur vegna leigu á skrifstofuhúsnæðis NÞ þá fól bæjarráð starfsmönnum að vinna samstarfssamning við NÞ sem sýnir þann stuðning sem sveitarfélagið setur í rekstur þess. Leigusamningurinn felur í sér mikla hækkun á rekstrarkostnaði og samstarfssamningurinn er gerður til að koma til móts við þá hækkun.
Lagt fram til kynningar.
18.
Umsögn um útgáfu leyfa: Kálfafellsstaður
Málsnúmer 202006065
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn um nýtt rekstarleyfi fyrir Kálfafellsstað til sölu á gistingu í flokki II stærra gistiheimili fyrir Vala ferðaþjónusta.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.