Bæjarráð Hornafjarðar
958. fundur
8. september 2020
kl.
14:30
-
16:20
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgrímur Ingólfsson
2. varamaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 15
Fundargerð samþykkt.
2.
Fjárhagsáætlun 2021
Dagskrá fyrir fjárhagsáætlunarvinnu 2021 lögð fram til kynningar.
3.
Fundir með bæjarráði/fræðslu- og tómstundanefnd
Í erindisbréfi ungmennaráðs stendur: "Fræðslu- og tómstundanefnd og ungmennaráð skulu halda sameiginlega tvo fundi á ári en oftar ef þurfa þykir. Gert er ráð fyrir að ungmennaráð fundi a.m.k. tvisvar á ári með bæjarráði". Ungmennaráð fundar 10 sinnum á ári og finnst of mikið að gefa eftir 4 fundi. Ungmennaráð óskar eftir að funda 2 sinnum á ári á sameiginlegum fundi bæjarráðs og fræðslu-og tómstundanefndar og óska eftir auka fundi/fundum ef þurfa þykir. Fastir fundir gætu t.d. verið í desember og mars.
Starfsmanni falið að breyta erindisbréfinu að ósk ungmennaráðs. Bæjarráð vísar erindisbréfinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
4.
Opnunartími íþróttahúss
Starfsmanni falið að vinna áfram að málinu.
5.
Sameining safna á Suðurlandi
Erindi frá formanni stjórnar héraðskjalasafni Árnesinga. Óskað er eftir viljayfirlýsingu bæjaryfirvalda um mögulega sameiningu Héraðsskjalasafna á Suðurlandi.
Lagt fram til kynningar.
Bæjarstjóra falið að afla upplýsinga um hvað felst í sameiningunni.
Bæjarstjóra falið að afla upplýsinga um hvað felst í sameiningunni.
6.
Flugvellir á Suðurlandi
Sjúkraflugvélar geta ekki lent á bundnu slitlagi á landsvæðinu milli Hornafjarðarflugvallar og flugvallarins á Bakka í Landeyjum.
Vísað til umræðu í bæjarstjórn.
7.
Samráðsteymi sveitarfélaga vegna efnahagsáhrifa í kjölfar Covid-19.
Lagðar fram hugmyndir að atvinnuskapandi átaksverkefnum, til nýtingar á fjármagni sem ríkistjórnin úthlutaði sveitarfélaginu.
Starfsmanni falið að máta aðgerðirnar í skapalón og senda ráðuneytinu til umsagnar.
Starfsmanni falið að máta aðgerðirnar í skapalón og senda ráðuneytinu til umsagnar.
8.
Lögfræðiþjónusta
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
9.
Hönnun: Mikligarður 2020
Verðkönnun vegna endurbóta utanhúss á Miklagarði lögð fram.
Eitt fyrirtæki, H-Christiansen ehf., skilaði inn verði í endurbæturnar, upp á 40.062.000 kr. sem er 16% yfir kostnaðaráætlun.
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 34.602.600 kr.
Starfsmanni falið að ganga til samninga við bjóðanda.
Eitt fyrirtæki, H-Christiansen ehf., skilaði inn verði í endurbæturnar, upp á 40.062.000 kr. sem er 16% yfir kostnaðaráætlun.
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 34.602.600 kr.
Starfsmanni falið að ganga til samninga við bjóðanda.
10.
Umsögn um útgáfu leyfa: Brekka Lóni
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn um rekstarleyfi til sölu gistingar í flokki II minna gistiheimili fyrir Brekku í Lóni.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.
11.
Fundargerðir HAUST 2020
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
12.
Fundargerð: stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 2020
Fundargerðin lögð fram til kynningar.