Bæjarráð Hornafjarðar
959. fundur
15. september 2020
kl.
14:30
-
16:40
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Sæmundur Helgason
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 322
Fundargerð samþykkt.
2.
Staða sveitarsjóðs 2020
Staða sveitarsjóðs lögð fram, eðlilega gengur að innheimta fasteignagjöld.
3.
Íbúðarhúsnæði í eigu sveitarfélagsins
Fyrir málinu liggur skýrsla um samsetningu íbúðarhúsnæðis í eigu sveitarfélagsins og greining á leiguverði, fyrirkomulagi í bókhaldi o.fl. Starfsmaður KPMG mun fylgja málinu eftir og kynna skýrsluna.
Guðmundur kynnti skýrsluna. Vísað til félagsmálanefndar.
4.
Ráðning umhverfis- og skipulagsstjóra
Fyrir málinu liggur úrskurður Kærunefndar jafnréttismála.
Niðurstaða úrskurðar er kæranda í vil þar sem kærunefndin segir að ekki hafi tekist að sýna fram á að aðrar ástæður en kynferði hafi legið fyrir til grundvallar ákvörðunar um ráðningu í starf umhverfis- og skipulagsstjóra.
5.
Álagningarreglur 2021
.
Lagt fram til umræðu.
6.
Ósk eftir viðbótarstyrk: Minigolf
Erindi frá Félagi eldri Hornfirðinga þar sem óskað er eftir styrk að upphæð 500 þúsund til að stækka minigolfvöll sem byggður var í vor.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk til efniskaupa fyrir tvær minigolfbrautir til viðbótar til að ljúka verkefninu að hámarki 500 þúsund kr.
Tekið af óráðstöfuðu.
Tekið af óráðstöfuðu.
7.
Eldvarnastefna Sveitarfélags Hornafjarðar
Ný eldvarnarstefna sveitarfélagsins lögð fram. Markmið með eldvarnarstefnunni er að auka skilning og öryggi starfsmanna, skjólstæðinga og viðskiptavina með það að leiðarljósi að draga úr líkum á tjóni á rekstri og eignum og viðhalda fjárfestingu sem liggur í eldvarnarbúnaði.
samþykkt.
8.
Þróun íbúafjölda í sveitarfélaginu
Lagt fram til kynningar.
9.
Stafrænt ráð sveitarfélaga á Suðurlandi
Erindi frá SASS og Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem óskað er eftir að sveitarfélagið takið þátt í miðlægu samstarfi sveitarfélaga um stafræna þróun og nýtingu á nútímatækni til að bæta þjónustu við íbúa. Lagt er til að sveitarfélög innan SASS skipi í faghóp um stafræna þróun. Erindisbréf fyrir stafrænan faghóp lagt fram.
Lagt fram til kynningar, vísað til starfsmanna að tilnefna í ráðið.
10.
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða
Erindi frá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu þar sem óskað er eftir umsögn við frumvarpi til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða.
Lagt fram til kynningar.
11.
Kynning á verkefnum - Sinfóníuhljómsveit Suðurlands
Erindi frá Sinfóníuhljómsveit Suðurlands þar sem kynnt eru verkefni og tónleikar á næstu misserum.
Lagt fram til kynningar.
12.
Áskorun - félag íslenskra handverksbrugghúsa
Erindi frá Samtökum íslenskra handverksbrugghúsa þar sem skorað er á dómsmálaráðherra að leggja fram frumvarp um netverslun um áfengi fram á nýjan leik til að tryggja íslenskum handverksbrugghúsum rétt til að selja gestum sínum vörur á staðnum.
Lagt fram til kynningar.
13.
Fjármálaráðstefna 2020
Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem boðað er til fjármálaráðstefnu dagana 1. og 2. október. Ráðstefnan er með breyttu sniði í ljósi aðstæðna og verður send út á netinu tvo tíma hvorn dag.
Lagt fram til kynningar.
14.
Ársþing SASS 2020
Starfsmanni falið að senda kjörbréf til SASS.