Bæjarráð Hornafjarðar
962. fundur
6. október 2020
kl.
14:30
-
16:50
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Heilbrigðis- og öldrunarnefnd - 62
Bæjarráð tekur undir bókun Heilbrigðis- og öldrunarnefndar varðandi rekstrarstöðu Skjólgarðs. Reksturinn er enn þungur og kristallast í því að framlög til stofnunarinnar eru of lág sem skilar sér í vaxandi hallarekstri.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
2.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 230
Fundargerð samþykkt.
3.
Almannavarnanefnd - 63
Fundargerð samþykkt.
4.
Rammasamningur milli SÍ og hjúkrunarheimila um þjónustu hjúkrunarheimila
Farið yfir minnisblað þar sem stjórnendur hafa rýnt samninginn við SÍ og lagt fram tillögur að breytingum innan samnings. Bæjarstjóra falið að óska eftir fundi með SÍ.
5.
Erindisbréf almannavarnarnefndar
Nýtt erindisbréf almannavarnarnefndar hefur verið unnið og samþykkt af almannavarnarnefnd.
Samþykkt og vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar með breytingum sem fram komu á fundinum.
6.
Styrkur til rannsóknar - Vegna áhrifa Covid 19
Soffía Auður, Arndís Lára og Arndís Ósk kynntu helstu niðurstöður úr rannsókn sem unnin var í sumar þar sem áherslan var að rannsaka líðan og viðhorf fólks í ferðaþjónusta í kjölfar Covid-19. Verkefnið var unnið með stuðningi Vinnumálastofnunar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar og í góðu samstarfi við ríkisstofnanir, klasa og samtök í ferðaþjónustu á svæðinu. Niðurstöður verða kynntar fyrir almenningi á málþingi síðar í vetur.
7.
Sóttvarnir: COVID-2019
Engin ný smit hafa greinst í sveitarfélaginu. Farið yfir helstu ráðstafanir hjá sveitarfélaginu í kjölfar hertra sóttvarnaraðgerða stjórnvalda. Íbúum er bent á frétt á heimasíðunni sveitarfélagsins þar sem helstu upplýsingar koma fram.
8.
Fjallskilasamþykkt
Fjallskilasamþykktin hefur fengið umfjöllun í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, athugasemdir bárust og var brugðist við þeim.
Bæjarstjóri kynnti helstu breytingar sem hafa verið gerðar. Bæjarráð felur bæjarstjóri að senda samþykktina í breyttri mynd til atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins á ný til staðfestingar.
9.
Fjárhagsáætlun 2021
Rammar eru í vinnslu hjá sviðsstjórum og einnig launaáætlun.
10.
Opinber heimsókn sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi
Fresta þurfti opinberri heimsókn sendiherra Evrópusambandsins til Hornafjarðar um óákveðinn tíma á meðan Covid-19 faraldurinn gengur yfir.
11.
Samþykkt um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna.
12.
Samningur um húsnæðið Heklu
Bæjarráð samþykkir samninginn.
13.
Drög að frumvarpi til laga um opinberan stuðning við nýsköpun
Frumvarpið felur í sér viðamiklar breytingar á opinberum stuðningi við nýsköpun í landinu. Leitast er við að forgangsraða verkefnum, draga úr yfirbyggingu og auka sveigjanleika. Af frumvarpinu leiðir að Nýsköpunarmiðstöð Íslands verði lögð niður sem sérstök ríkisstofnun og flestum verkefnum hennar fundið annað heimili. Umsagnarfrestur er til 09.10.2020.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að semja drög að umsögn.
14.
Fundargerð: stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 2020
Hægt er að nálgast fundargerðina á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga https://www.samband.is/um-sambandid/skipulag/stjorn-sambandsins/
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
15.
Umsögn um útgáfu leyfa: Mjólkurstöðin ehf
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn um nýtt rekstarleyfi til sölu gistingar í flokki III hótel fyrir Mjólkurstöðina ehf.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn.
16.
Landskipti: Karlsbrekka: Karlsbrekka 2
Bæjarráð vísar landskiptunum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
17.
Landskipti: Bær 3- Brekka: Karlsbrekka og Karlstangahraun
Bæjarráð vísar landskiptunum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
18.
Umsókn um lóð: Hagaleira 11
Umsókn Önnu Regínu Heiðarsdóttur um lóð að Hagaleiru 11 lögð fram.
Bæjarráð er jákvætt fyrir umsókninni og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.