Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

967. fundur
10. nóvember 2020 kl. 14:30 - 16:50
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 17
Málsnúmer 2010023F
Fundargerð samþykkt.
2.
Málefni Ferðamálafélags Austur-Skaftafellssýslu 2020
Málsnúmer 202010089
Haukur Ingi og Anna María gerðu grein fyrir könnun og vinnufundi sem gerð var á meðal ferðaþjónustuaðila í sveitarfélaginu. Bæjarráð þakkar Ferðamálafélaginu fyrir að afla upplýsinga um stöðu mála hjá fyrirtækjum í ferðaþjónustunni.
Farið yfir niðurstöður og stöðu ferðaþjónustunnar í sveitarfélaginu.
Áætlað er að á bilinu 15-20% af störfum innan Sveitarfélagsins Hornafjarðar (SVH) tapist á tímabilinu 2020 til 2021 til samanburðar við árið 2019. Hlutfall lítilla og meðalstórra fyrirtækja (1-20 starfsmenn) var um 92% af fyrirtækjum í ferðaþjónustu árið 2019 og sköpuðu þau á bilinu 64-66% allra starfa ferðaþjónustunnar í SVH árið 2019.
Ferðaþjónustuaðilar eru mjög neikvæðir til skamms tíma og telja að á bilinu 232-326 störf tapist vegna Covid 19 til loka árs 2021 en jafnframt verða þeir jákvæðari til lengri tíma litið (12-24 mánaða) og öll fyrirtækin hyggjast halda áfram starfsemi til lengri tíma litið.


3.
Reglur um úthlutun lóða
Málsnúmer 202010156
Reglurnar hafa verið yfirfarnar eftir athugasemdir bæjarráðs og umhverfis- og skipulagsnefndar.
Vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna.
4.
Urðunarstaður- breyting á starfsleyfi
Málsnúmer 202001059
Sveitarfélagið óskaði eftir að Umhverfisstofnun gefi út nýtt starfsleyfi fyrir Urðunarstað í Firði. Í gamla starfsleyfinu var krafa um söfnun hauggass en komið hefur í ljós að ekki er forsenda fyrir hauggassöfnun á urðunarstaðnum.
Nýtt starfsleyfi fyrir urðunarstað sveitarfélagsins lagt fram til kynningar.
5.
Kolefnisspor á Suðurlandi
Málsnúmer 202010031
Lögð fram til kynningar skýrsla um Kolefnisspor Suðurlands unnin fyrir SASS. Tilgangur verkefnisins var annars vegar að reikna kolefnisspor landshlutans og hins vegar að benda á leiðir til kolefnisjöfnunar.Verkefnið leiddi í ljós að landnotkun, og þá fyrst og fremst framræsla votlendis, á lang stærstan þátt í losun gróðurhúsalofttegunda á Suðurlandi.
Lagt fram til kynningar.
Umræður um kolefnisspor og mælingar á losun gróðurhúsalofttegunda í sveitarfélaginu.
6.
Loftslagsyfirlýsing Festu og SVH
Málsnúmer 202011018
Drög að samningi við Festu miðstöð um samfélagsábyrgð lagður fram. Tilgangur með samningnum er að hvetja fyrirtæki og stofnanir til að setja sér markmið um loftslagsmál, framkvæma aðgerðir þar að lútandi, mæla árangur þeirra og birta loftslagsmarkmiðin
Bæjarráð samþykkir framlagðan tímaramma.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
7.
9 aðgerðir til að setja geðheilsu í forgang
Málsnúmer 202011013
Erindi frá Geðhjálp þar sem kynnt er áskorun til stjórnvalda um að setja geðheilsu í forgang og þær níu aðgerðir til að setja geðheilsu í forgang.
Erindi móttekið.
Vísað til umræðu í félagsmálanefnd, heilbrigðis- og öldrunarnefnd og fræðslu- og tómstundanefnd.
8.
Fjárhagsáætlun 2021
Málsnúmer 202009023
Ljóst er að ekki er hægt að halda kynningarfundi fyrir íbúa með hefðbundnum hætti um fjárhagsæáætlun. Haldinn verður fjarfundur sem verður streymt á heimasíðu sveitarfélagsins.
Fjárhagsáætlun 2021 vísað til fyrri umræðu bæjarstjórnar.
9.
Þriggja ára fjárhagsáætlun 2022-2024
Málsnúmer 202011023
Þriggja ára fjárhagsáætlun vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
10.
Ferðaþjónustuaðilar: Yfirlýsing, kröfur og tillögur
Málsnúmer 202011006
Yfirlýsing, kröfur og tillögur frá Baráttuhópi smærri fyrirtækja, einyrkja og sjálfstætt starfandi aðila í ferðaþjónustu.
Bæjarráð vísar í bókun í 2. máli, málefni Ferðamálafélags Austur-Skaftafellssýslu 2020.
11.
Endurnýjun samnings við Markaðsstofu Suðurlands
Málsnúmer 202011022
Erindi frá Markaðsstofu Suðurlands þar sem óskað er eftir endurnýjun samnings við stofuna þar sem núverandi samningur rennur út um næst áramót. Óskað er eftir að samningurinn verði óbreyttur til þriggja ára eða 430 kr. á íbúa á ári. Einnig er kynnt breytt fyrirkomulag á Markaðsstofunni sem verður í framtíðinni Áfangastaðastofa.
Bæjarráð samþykkir að endurnýja samninginn til þriggja ára.
Bæjarráð óskar eftir fundi með Markaðstofu um framtíð og breytingar í Áfangastaðastofu.
12.
Fjarfundir bæjarstjórnar nefnda, ráða og stjórna
Málsnúmer 202003059
Erindi frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Tilkynnt er að vegna neyðarástands af völdum Covid-19 farsóttar hefur samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra tekið ákvörðun um að framlengja heimild allra sveitarstjórna sem veitt var með auglýsingu í Stjórnartíðindum nr. 23/2020 til að víkja tímabundið frá skilyrðum sveitarstjórnarlaga nr. 138/2010.
Vísað til bæjarstjórnar.
13.
Kjördæmavika 2020
Málsnúmer 202010159
Áherslupunktar lagðir fram til kynningar.
14.
Hagaleira 9: Umsókn um frest á framkvæmdum
Málsnúmer 202011005
Erindi frá Nínu Sibyl Birgisdóttur þar sem óskað er eftir fresti á framkvæmdum að Hagaleiru 9.
Bæjarráð samþykkir að veita frest til 31. mars 2021.
15.
Umsókn um lóð: Bugðuleira 8
Málsnúmer 202010046
Umsókn Finns Ármanns Óskarssonar um lóð að Bugðuleiru 8 lögð fram.
Vísað til umræðu í umhverfis- og skipulagsnefnd þar sem ekki er til deiliskipulag af svæðinu.
16.
Fundargerð: stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 2020
Málsnúmer 202002010
Fundargerð nr. 890 má finna á vef sambandsins https://www.samband.is/um-sambandid/skipulag/fundargerdir/.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Umræður um mál nr. 3 hagsmunagæsla í úrgangsmálum.
17.
Fundargerðir HAUST 2020
Málsnúmer 202002070
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
18.
Umsögn: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framtíð Reykjavíkurflugvallar, 39. mál.
Málsnúmer 202011021
Erindi frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er eftir umsögn við tillögu til þingsályktunar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð Reykjavíkurflugvallar 39. mál.
Bæjarráð leggur áherslu á að flugvöllurinn verði í Vatnsmýrinni svo lengi sem sambærilegur eða betri kostur finnst ekki.
Bæjarráð telur nauðsynlegt að hugur landsmanna til málsins sé kannaður með þjóðaratkvæðagreiðslu.