Bæjarráð Hornafjarðar
970. fundur
1. desember 2020
kl.
14:30
-
16:17
Teams Meating
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Sæmundur Helgason
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun 2021
Bæjarráð óskaði eftir yfirliti á stöðu fráveituframkvæmda og svörum við spurningum um möguleika á niðurgreiðslum úr ríkissjóði í tengslum við fráveituframkvæmdir vegna endurbóta Hafnarbrautar.
Umhverfis- og skipulagsstjóri fór yfir stöðu fráveituframkvæmda á Höfn.
2.
Sóttvarnir: COVID-2019
Stöðuskýrsla frá uppbyggingarteymi félags- og atvinnumála í kjölfar Covid-19.
Bæjarráð felur forstöðumönnum að taka saman lista yfir störf hjá sveitarfélaginu sem gætu nýst til samstarfs við Vinnumálastofnun fyrir tímabundin störf.
Bæjarstjóra falið að ítreka erindi sem sent var til Vinnumálastofnunar um staðsetingu ráðgjafa í sveitarfélaginu.
Bæjarstjóra falið að ítreka erindi sem sent var til Vinnumálastofnunar um staðsetingu ráðgjafa í sveitarfélaginu.
3.
Heimsmarkmið og stefnumótun 2019
Lögð fram ný drög að stefnu fyrir sveitarfélagið.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir stefnumótunarvinnunni. Samþykkt að halda rafrænan íbúafund um miðjan desember.
4.
Ósk um myndatökusvæði á Höfn
Erindi frá Ferðamálafélagi Austur-Skaftafellssýslu þar sem stjórn félagsins óskar eftir að sveitarfélagið vinni að hugmynd um sérstakt myndatökusvæði fyrir ferðamenn á Höfn með það að markmiði að draga þá inn á svæðið.
Bæjarráð þakkar fyrir erindið og felur starfsmönnum að útfæra hugmyndasamkeppni um myndatökusvæði í samstarfi við FASK.
5.
Reglur um úthlutun lóða
Bæjarráð vísar reglum um lóðarúthlutun til afgreiðslu bæjastjórnar með þeim breytingum sem áttu sér stað á fundinum.
6.
Stafræn framþróun sveitarfélaga
Skipað hefur verið starfrænt ráð á vegum SASS, bæjarstjóri er þar fyrir hönd sveitarfélagsins.
Lagt fram til kynningar.
7.
Lykiltölur úr rekstri sveitarfélaga 2019
Bæjarráð hvetur íbúa til að skoða skjalið og kynna sér stöðu sveitarfélagsins í samanburði við önnur sveitarfélög landsins.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
8.
Ósk um frest - gatnagerðagjöld
Bæjarráð samþykkir að veita frest í sex mánuði.
9.
Ósk um niðurfellingu á húsaleigu
Bæjarráð samþykkir að fella niður húsaleigu fyrir S.S. Sport fyrir nóvember og desember.
10.
Landskipti: Stórulág 2
Bæjarráð vísar landskiptunum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
11.
Landskipti: Miðfell Nesjum
Björgvin Óskar Sigurjónsson vék af fundi undir þessum lið.
Bæjarráð vísar landskiptunum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
12.
Umsögn um frumvarp til laga um Tækniþróunarsjóð, 321. mál.
Erindi frá atvinnuveganefnd Alþingis þar sem óskað er eftir umsögn við frumvarp til laga um tækniþróunarsjóð.
Lagt fram til kynningar.
13.
Umsögn um frumvarp til laga um opinberan stuðning við nýsköpun, 322. mál.
Erindi frá atvinnuveganefnd Alþingis þar sem óskað er eftir umsögn við frumvarp til laga um opinberan stuðning við nýsköpun.
Bæjarstjóra falið að senda inn uppfærða umsögn.
14.
Umsögn um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum 311. mál.
Erindi frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er eftir umsögn við frumvarp til laga um varnir gegn snjófljóðum og skriðuföllum.
Bæjarstjóra falið að leggja fram drög að umsögn fyrir næsta fund bæjarráðs.
15.
Fundargerð: stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 2020
Fundargerðina má finna á https://www.samband.is/um-sambandid/skipulag/fundargerdir/
Fundargerðin lögð fram til kynningar.