Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

973. fundur
22. desember 2020 kl. 14:30 - 16:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 74
Málsnúmer 2012002F
Bæjarráð þakkar ungmennaráði fyrir góðan fund sem það átti með ráðinu þann 9.12.sl. og vill hrósa ungmennunum fyrir góðar ábendingar til bæjarráðs.
Fundargerð samþykkt.
2.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 22
Málsnúmer 2012009F
Fundargerð samþykkt.
3.
Aðgerðir til eflingar leikskóla
Málsnúmer 201908031
Minnisblað fræðslustjóra lagt fram. Lagt er til að aðgerðir til að hækka menntunarstig í leikskólum sem gilda áttu út árið 2020 verði framlengdar til 1. júlí 2021.
Bæjarráð samþykkir að framlengja reglur um aðgerðir til að hækka menntunarstig í leikskólum til 1. júlí 2021 á meðan unnið er að endurskoðun á reglunum auk endurskoðunar á reglum um endurmenntun og framhaldsnám starfsmanna sveitarfélagsins.
4.
Starfsemi leikskóla milli jóla og nýárs
Málsnúmer 202010080
Minnisblað fræðslustjóra um starfsemi leikskóla yfir hátíðarnar.
Ljóst er að þörf er fyrir opnun leikskólans á milli jóla og nýárs þar sem 13-14 börn munu nýta sín pláss 28.-30. desember samkv. greiningu leikskólastjóra. Dregið verður úr starfsemi í kringum hátíðirnar þannig að starfsmenn stjórnendur fá 2-3 daga frí.
5.
Nýheimar Þekkingarsetur viðurkenndur fræðsluaðili
Málsnúmer 202012053
Eyjólfur greindi frá ákvörðun stjórnar NÞ að sækja um til mennta- og menningarmálaráðuneytisins að setrið verði viðurkenndur fræðsluaðili. Markmiðið er að Nýheimar leiði verkefni um ævimenntun á Suðausturlandi. Þar með yrði setrið hluti af framhaldsfræðslukerfinu og gæti betur með samhæfingu og samstarfi um verkefni í stuttum námskeiðum, framhaldsfræðslu, framhaldsskóla og háskóla stuðlað að öflugri menntun íbúa eftir að grunnskóla lýkur.Það er ósk Nýheima Þekkingarseturs að, bæjarráð og bæjarstjórn styðji við umsókn setursins um að gerast viðurkenndur fræðsluaðili um ævimenntun.
Bæjarráð styður hugmyndina og telur að ef hún verður að veruleika myndi það auka fjölbreytni tækifæra til náms.
6.
Samningur um starfræna smiðju
Málsnúmer 202012093
Lögð fram drög að samningi við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og mennta- og menningarmálaráðuneytið. Vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna.
7.
Áheyrnarfulltrúar fastanefnda 2020
Málsnúmer 201912051
Bæjarráð samþykkir að áheyrnafulltrúar ungmennaráðs í fastanefndum sveitarfélagsins fái greitt 1% af viðmiðunarupphæð, sem er ákveðin út frá þingfararkaupi, fyrir setu í fastanefndum sveitarfélagsins.
Launagreiðslur rúmast innan fjárhagsáætlunar 2021.
8.
Barnvænt sveitarfélag: Innleiðing barnasáttmála SÞ
Málsnúmer 201911065
Bæjarráð samþykkir launagreiðslur fyrir fulltrúa í stýrihópi um barnvænt samfélag skv. samþykktum um kjör fulltrúa sveitarfélagsins.
Launagreiðslur rúmast innan fjárhagsáætlunar 2021.
9.
Heimsmarkmið og stefnumótun 2019
Málsnúmer 201903117
Rafrænn íbúafundur um stefnumótun fyrir sveitarfélagið í tengslum við heimsmarkmiðin, fundurinn var haldinn þann 17. desember og var vel heppnaður og vel sóttur.
Lögð fram gögn með niðurstöðum fundarins sem er vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna.
Bæjarráð leggur til að fundað verði með ungmennum, eldri borgurum og íbúum af erlendum uppruna.
10.
Leigufélagið Bríet
Málsnúmer 202011064
Leigufélagið Bríet hefur áhuga á að óska eftir samstarfi við verktaka um byggingu íbúða og getur skuldbundið sig til að kaupa tvær íbúðir. Óskað er eftir samstarfi við sveitarfélagið um verkefnið.
Bæjarstjóri greindi frá stöðu mála.
Sveitarfélagið er tilbúið til samstarfs við leigufélagið og felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu.
11.
Rammasamningur milli SÍ og hjúkrunarheimila um þjónustu hjúkrunarheimila
12.
Tilraunaverkefni um sérstakan húsnæðisstuðning
Málsnúmer 202012085
Lögð fram lokaskýrsla HMS um tilraunaverkefni um sérstakan húsnæðisstuðning. Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga óskar eftir afstöðu sveitarstjórna og stjórnenda í velferðarþjónustu til eins opinbers stuðningskerfis við leigjendur.
Bæjarráð er jákvætt fyrir því að eitt opinbert stuðningskerfi verði til staðar fyrir leigjendur í landinu.
13.
Ráðning umhverfis- og skipulagsstjóra
Málsnúmer 202005031
Bæjarstóri greindi frá stöðu mála.
14.
Matís og matarsmiðjan
Málsnúmer 201709565
Óskað er eftir því að sveitarfélagið framlengi leigu á húsnæði Matarsmiðjunnar í þrjá mánuði til viðbótar samkv. meðfylgjandi erindi frá Sláturfélaginu Búa.
Bæjarráð samþykki að greiða húsaleigu matarsmiðjunnar næstu þrjá mánuði í samræmi við ósk sláturfélagsins.
Fjármálastjóra falið að skoða hvort það rúmist innan ramma, annars verði fjármagnið tekið af óráðstöfuðu.
15.
Umsókn um lóðir D, E og F í Útbæ á Höfn
Málsnúmer 201808036
Erindi frá Marina Travel ehf. þar sem óskað er eftir að úthlutun á lóðum D, E og F í Útbæ verði framlengd. Einnig er óskar eftir úthlutun á lóð C í Óslandi.
Bæjarráð samþykkir að framlengja úthlutun lóða D, E og F í Útbæ til 1. apríl 2021.
Umsókn um lóð C vísað til lóðaumsókna í íbúagátt.
16.
Jöfnunarsjóður- Áskorun byggðarráðs Skagafjarðar til Reykjavíkurborgar
Málsnúmer 202012079
Lögð fram áskorun frá byggðarráði Sveitarfélagsins Skagafjarðar um ályktun þar sem ráðið harmar þá stöðu sem upp er komin í málefnum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna stefnu Reykjavíkurborg á hendur sjóðsins upp á 8,7 milljarða kr. fyrir meint vangoldin framlög úr sjóðnum.
Bæjarráð tekur ekki afstöðu til málrekstursins og hvetur Reykjavíkurborg að leita réttar síns gagnvart ríkinu þannig að kröfurnar komi ekki niður á Jöfnunarsjóði sveitarfélaga og þar með öðrum sveitarfélögum í landinu.
17.
Niðurgreiðsla sálfræðimeðferðar - ályktun frá Geðhjálp
Málsnúmer 202012089
Ályktun stjórnar landssamtakanna Geðhjálpar vegna niðurgreiðslu sálfræðimeðferðar.
Bæjarráð tekur undir ályktun Geðhjálpar og leggur áherslu á að tryggja aðgengi einstaklinga að sálfræðiþjónustu óháð efnahag og aðstæðum.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að kanna aðgengi íbúa að sálfræðiþjónustu hjá HSU á Höfn og leggur áherslu á að auglýst verði eftir sálfræðingi með fasta búsetu á Hornafirði fyrir næsta skólaár.
18.
Umsögn um frumvarp til laga um Hálendisþjóðgarð, 369. mál.
Málsnúmer 202012063
Erindi frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er eftir umsögn við frumvarpi til laga um Hálendisþjóðgarð 369. mál.
Frestað þar sem umsagnarfrestur er til 1. febrúar 2021.
19.
Umsögn um frumvarp til laga um kosningalög, 339. mál.
Málsnúmer 202012091
Erindi frá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis þar sem óskað er eftir umsögn um frumvarp til laga um kosningarlög 399. mál.
Frestað til næsta fundar.
20.
Fundargerðir stjórnar SASS
Málsnúmer 202002002
Fundargerð SASS er aðgengileg á síðu SASS https://www.sass.is/565-fundur-stjornar-sass.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
21.
Fundargerð: stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 2020
Málsnúmer 202002010
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
22.
Flugeldasýning á gamlárskvöld
Málsnúmer 202012096
Bæjarráð samþykkti málið í tölvupósti þann 21.12.20.
Lagt fram til kynningar.