Bæjarráð Hornafjarðar
976. fundur
19. janúar 2021
kl.
14:30
-
17:05
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Félagsmálanefnd Hornafjarðar - 326
Fundargerð samþykkt.
2.
Reglur um daggæslu í heimahúsi
Reglur um daggæslu í heimahúsum og niðurgreiðslu til dagforeldra lagðar fram til samþykktar. Reglurnar hafa verið samþykktar í Félagsmálanefnd.
Bæjarráð leggur til að reglurnar verði sendar til starfandi dagforeldra til umsagnar. Bæjarráð óskar eftir kostnaðargreiningu á reglunum m.t.t.samþykktrar fjárhagsáætlunar 2021.
3.
Aðgerðir til viðspyrnu fyrir íslenskt atvinnulíf
Skýrsla uppbyggingarteymis frá 22. desember 2020 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
4.
Fyrirspurn um efnistöku
Umhverfis- og skipulagsnefnd vísaði erindinu til bæjarráðs og hafnarstjórnar.
Gylfi Guðmundsson framkvæmdastjóri GYG Minerals kom inn á fundinn í gegnum teams til að kynna hugmyndir um atvinnuuppbyggingu. Málinu vísað í áframhaldandi vinnu starfsmanna.
5.
Vallarklukka á íþróttahús
Óskað er eftir samstarfi við sveitarfélagið um uppsetningu vallarklukku á íþróttahús. Kostnaður sveitarfélagsins felst í uppsetningu á íþróttahúsið, þar er stutt í rafmagn og nettengingu. Áætlaður kostnaður við uppsetningu er grófreiknað 500.000 kr. og farið er fram á það að sveitarfélagið standi straum á þeim kostnaði þar sem þetta tilheyrir vallarmannvirkjum.
Bæjarráð óskar eftir myndrænni staðsetningu, greiningu á umhverfisáhrifum og rekstrarkostnaði á vallarklukku svo hægt sé að taka afstöðu til erindisins.
6.
Fjölmiðlagreining
Fjölmiðlaskýrsla fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð fyrir árið 2020 lögð fram. Einnig til kynningar samanburðarskýrslur fyrir árin 2017-2019.
Lagt fram til kynningar.
7.
Leigufélagið Bríet
Auglýsing frá Leigufélaginu Bríet lögð fram til kynningar.
Bæjarráð fagnar fyrirætlan Leigufélagsins Bríetar og hvetur byggingaverktaka til að setja sig í samband leigufélagið.
8.
Umsókn um lóð Ósland lóð J (Sandeyri 8)
Bæjarráð samþykkir að veita 6 mánaða frest.
9.
Umsókn um lóð Ósland lóð K (Sandeyri 10)
Bæjarráð samþykkir að veita 6 mánaða frest.
10.
Tímabundinn afsláttur af lóðagjöldum
Mál sett á dagskrá að beiðni Sigrúnar Sigurgeirsdóttur bæjarfulltrúa í kjölfar bæjarstjórnarfundar.
Farið yfir málið, gögn frá byggingarfulltrúa lögð fram til kynningar þar sem koma fram upplýsingar um upphæð gatnagerðagjalda sem innheimt hafa verið frá því reglurnar runnu úr gildi þann 10. maí 2019. Bæjarráð getur ekki breytt afstöðu sinni varðandi ósk lóðarhafa á Hagaleiru 11 um niðurfellingu gatnagerðagjalda.
Bæjarráð óskar eftir því skerpt verði á verkferlum í kringum úthlutun, framlengingu lóðarúthlutunar og afturköllun lóða.
Bæjarráð óskar eftir því skerpt verði á verkferlum í kringum úthlutun, framlengingu lóðarúthlutunar og afturköllun lóða.
11.
Matís og matarsmiðjan
Málinu frestað til næsta fundar.
12.
Rammasamningur milli SÍ og hjúkrunarheimila um þjónustu hjúkrunarheimila
Haldnir voru tveir samningafundir í liðinni viku. Lagðar fram fundargerðir.
Bæjarstjóri kynnti stöðu mála. Ekki liggur fyrir hver nýr rekstraraðili að hjúkrunarheimilinu Skjólgarði verður. Næsti samningafundur hefur verið boðaður á morgun miðvikudag kl. 11:30.
13.
Lífeyrisskuldbindingar Heilbrigðisstofnunar
Samningur um uppgjör lífeyrisskuldbindinga vegna hjúkrunarheimilis og heilsugæslu lagður fram.
Viðræður um uppgjör lífeyrisskuldbindinga fyrir starfsmenn B deildar LSR hjá heilbrigðisstofnuninni hafa staðið yfir í nokkur ár. Nú liggur fyrir samningur um uppgjör, samkvæmt því er upphæð sem greiða ber ríkissjóði 15.801.681 kr. Bæjarráð fagnar því að samningar hafi náðst.
14.
Fundargerðir stjórnar Nýheima þekkingarseturs
Lagt fram til kynningar.
15.
Umsögn - Grænbók um byggðarmál
Grænbók er ætlað að veita upplýsingar um stöðu byggðamála. Leitast við að svara því hvernig núgildandi byggðaáætlun hefur reynst og hverjar séu helstu áskoranir næstu 15 ára. Þá eru sett fram lykilviðfangsefni og áherslur og lagðar til leiðir til að fylgja þeim eftir.
Grænbókin er til umsagnar á Samráðsgátt stjórnvalda og er umsagnafrestur til 25.01.2021. Lagt fram til kynningar.
16.
Ósk um söfnun undirskrifta vegna breytingar á aðalskipulagi og deiliskipulagi í "innbæ"
Viðbætt erindi, samþykkt að bæta við með tölvupósti. Tilkynning um að undirskriftum verði ekki safnað þar sem ekki fékkst samþykki á frestun vegna Covid.
Bæjarráð móttekur tilkynningu um að fallið verði frá undirskriftasöfnun. Bæjarráð bendir á eftirfarandi: Um söfnun undirskrifta samkv. 108 gr. sveitarstjórnarlaga skal í reglugerð mæla nánar um hvernig staðið verður að söfnun undirskrifta. Reglugerð nr. 155/2013 fjallar um undirskriftasafnanir vegna almennra atkvæðagreiðslna samkvæmt sveitarstjórnarlögum. Í reglugerðinni er fjallað um tímamörk undirskriftasöfnunar, þar segir: "Undirskriftasöfnun má hefja á þeim degi sem ákvörðun sveitarstjórnar er heimilar hana liggur fyrir, þó eigi síðar en innan tveggja vikna. Skal undirskriftasöfnun lokið innan fjögurra vikna frá því að hún hefst." Ábyrgðaraðili felur Þjóðskrá Íslands að sjá um rafræna söfnun undirskrifta. Starfsmenn sveitarfélagsins hafa boðið fram aðstoð við framkvæmd rafrænna kynningarfunda til að auðvelda ábyrgðaraðilum framkvæmdina. Bæjarstjórn er bundin af sveitarstjórnarlögum og reglugerðum tengdum lögunum og hefur því ekki heimild til að veita fresti vegna mála er lúta að þeim.