Bæjarráð Hornafjarðar
980. fundur
16. febrúar 2021
kl.
14:30
-
16:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Velferðarnefnd - 1
Fundargerðin samþykkt.
2.
Könnun - Íbúar og mikilvægi búsetuskilyrða
Lagt fram til kynningar.
3.
Heimsmarkmið og stefnumótun 2019
Bæjarráð samþykkir gildi sveitarfélagsins sem komu úr vinnu heimsmarkmiðanna: virðing, framsækni, samheldni og sjálfbærni.
Vinnufundur bæjarstjórnar um heimsmarkmiðin verður haldin í mars.
Vinnufundur bæjarstjórnar um heimsmarkmiðin verður haldin í mars.
4.
Rotþrær í sveitarfélaginu
Í reglugerð nr. 799/1999 um meðhöndlun á seyru segir í 14.gr Sveitarstjórnir skulu sjá til þess aðkomið sé á kerfisbundinni tæmingu á seyru úr rotþróm. Til þess að mæta þessum kröfum hefur verið unnin þriggja ára áætlun um hvernig megi fá yfirlit yfir rotþrær í sveitarfélaginu. Gert er ráð fyrir að rotþrær í sveitarfélaginu verði kortlagðar og sett upp tæmingarplan.
Verksamningur um tæmingu rotþróa lagður fram.
Bæjarráð samþykkir framlagðan verksamning sem rúmast innan fjárhagsáætlunar.
Bæjarráð hvetur starfsmenn til að finna leiðir til halda kostnaði í lágmarki fyrir þjónustuþega.
Bæjarráð samþykkir framlagðan verksamning sem rúmast innan fjárhagsáætlunar.
Bæjarráð hvetur starfsmenn til að finna leiðir til halda kostnaði í lágmarki fyrir þjónustuþega.
5.
Volaða land - ósk um samstarf og fjármögnun
Kvikmyndaframleiðslufyrirtækið Join Motion Pictures óskar eftir samstarfi og aðkomu Sveitarfélags Hornafjarðar að næsta kvikmyndaverkefni Hlyns Pálmasonar sem verður tekin upp í sveitarfélaginu á þessu ári.
Bæjarráð samþykkir að veita 10 milljón kr. styrk í kvikmyndaverkefnið Volaða land til að greiða hluta af kostnaði tengdan svæðinu og styrkja þannig atvinnulíf í sveitarfélaginu. Kvikmyndin Volaða land er mun meiri umfangs en kvikmyndin Hvítur hvítur dagur og hefur engin íslensk mynd verið fjármögnuð að svo stórum hluta erlendis frá.
Fjármálastjóra falið að skoða áhrif styrksins á fjárhagsáætlun og gerð viðauka.
Fjármálastjóra falið að skoða áhrif styrksins á fjárhagsáætlun og gerð viðauka.
6.
Ósk um veðheimild í Hafnarbraut 52
Bæjarstjóra og fjármálastjóra falið að vinna áfram að málinu.
7.
Gjaldskrá og reglur -Gagnaveita
Gjaldskrá gagnaveitu lögð fram vegna umræðu um lengri greiðsludreifingu, gjaldskráin heimilar 8 mánaða dreifingu.
Bæjarráð samþykkir að heimilar tímabundna breytingu greiðsludreifingu á stofngjaldi ljósleiðaratengingar í allt að 14 mánuði miðað við tengingu íbúðarhúsnæðis á árinu 2021.
8.
Samningur um yfirtöku Skjólgarðs
Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu mála og lagði fram til kynningar drög að samningi við SÍ vegna yfirfærslu sem bæjarráð gerir athugasemdir við.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu skv. umræður á fundinum.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu skv. umræður á fundinum.
9.
Auglýsing eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga
Lagt fram til kynningar.
10.
Fundargerðir stjórnar Nýheima þekkingarseturs
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
11.
Umsókn um lóð - Sandeyri 2
Umsókn Marina Travel ehf. um lóð að Sandeyri 2 í Óslandi lögð fram.
Bæjarráð getur ekki mælt með úthlutun lóðarinnar þar sem umsækjandi er með þrjár aðrar lóðir á svæðinu og hefur ekki hafið framkvæmdir og byggingaráform liggja ekki fyrir.
12.
Umsókn um lóð Álaleira 9
Lóðarhafi á Álaleiru 9 óskar eftir frest til að hefja framkvæmdir.
Bæjarráð veitir frest til 31. maí 2021.
13.
Umsókn um lóð Álaleira 11
Lóðarhafi á Álaleiru 11 óskar eftir frest til að hefja framkvæmdir.
Bæjarráð veitir frest til 31. maí 2021.
14.
Umsögn - Áætlanir á sviði samgangna, fjarskipta og byggðamála, 471. mál.
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis óskar eftir umsögn við frumvarpi til laga um stefnumarkandi áætlanir á sviði samgangna, fjarskipta og byggðamála, 471. mál.
Lagt fram til kynningar.