Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

982. fundur
2. mars 2021 kl. 14:30 - 16:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 234
Málsnúmer 2102011F
Fundargerð samþykkt.
2.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 25
Málsnúmer 2102014F
Fundargerð samþykkt.
3.
Stofnskrá Menningarmiðstöðvar 2021-25
Málsnúmer 202102088
Stofnskrá Menningarmiðstöðvar lögð fram.
Bæjarráð samþykkir stofnskránna og vísar henni til afreiðslu bæjarstjórnar.
4.
Skipurit 2020
Málsnúmer 202001015
Bæjarráð samþykkir skipuritið með framkomnum breytingum.
5.
Líkamsrækt á Höfn
Málsnúmer 202102097
Erindi frá SS. Sport, þar sem óskað er eftir aukafjármagni til tækjakaupa fyrir Crossfit að upphæð 395.184 kr.
Bæjarráð samþykkir kaup á tækjum fyrir 395.184 kr. tekið af óráðstöfuðu.
6.
Skýrsla forvarnardagsins
Málsnúmer 202102089
Forvarnardagurinn hefur verið haldinn árlega í október síðan 2006 og var því haldinn í fimmtánda sinn miðvikudaginn 7. október 2020. Að deginum standa Embætti landlæknis í samstarfi við Embætti forseta Íslands, Reykjavíkurborg, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Skátana, Ungmennafélag Íslands, Rannsóknir og greiningu, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samstarf félagasamtaka í forvörnum, Heimili og skóla og Samfés. Í þessari skýrslu er farið yfir niðurstöður þeirra spurninga sem lagðar voru til grundvallar í verkefnavinnu unglinganna ásamt hugmyndum umræðuhópa
Vísað til umfjöllunar í ungmennaráði, fræðslu- og tómstundanefnd og velferðarnefnd.
7.
Samningur um yfirtöku Skjólgarðs
Málsnúmer 202102054
Vigdísarholt hefur skrifað undir samning um rekstur Skjólgarðs við SÍ að undanskilinni dagdvölinni. Bæjarstjóri hefur beðið SÍ um samningsdrög vegna reksturs dagdvalar þar sem gerð er krafa um að þau aukarými sem áður hefur verið lofað verði hluti samnings. Undir liðnum er rekstraráætlun fyrir dagdvöl.
Lagt fram til kynningar.
8.
Ósk um veðheimild í Hafnarbraut 52
Málsnúmer 202102023
Bæjarráð gefur ekki heimild til veðsetningar í Hafnarbraut 52 eins og óskað er eftir.
9.
Samningur vegna reksturs tjaldsvæðis 2017-2032
Málsnúmer 201804064
Farið yfir 8. gr. skyldur leigutaka og 9. gr. skyldur leigusala.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundi með rekstaraðila tjaldsvæðisins.
Bæjarstjóra falið að kalla eftir endurskoðuðum ársreikningum og gistináttaskýrslum.
10.
Umsókn um lóð: Borgartún 3
Málsnúmer 201908081
Afturköllun á lóð hefur verið farið fram, lóðarhafi gerði ekki athugasemd við afturköllunina.
Bæjarráð samþykkir afturköllun á lóð að Borgartúni 3.
11.
Umsögn um útgáfu leyfa árshátið FAS
Málsnúmer 202102094
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn um tækifærisleyfi fyrir dansleik í Sindrabæ 4. mars.
Bæjarráð gefur jákvæða umsögn.