Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

988. fundur
20. apríl 2021 kl. 14:30 - 16:00
Teams Meating
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Útboð - Hafnarbraut - endurbætur 2021 - Jarðvinna og lagnir
Málsnúmer 202103039
Eitt tilboð barst í verkið, frá Rósaberg ehf.
Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við Rósaberg ehf.
Starfsmanni falið að ganga frá samningnum.
2.
Heimsmarkmið og stefnumótun 2019
Málsnúmer 201903117
Bæjarstjóri kynnti tillögu að lokaferli við stefnumótunarvinnu sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarstjóra.

3.
Tölfræði Vinnumálastofnunar - ósk um að Sveitarfélagið Hornafjörður verði flokkað með sveitarfélögum á Suðurlandi
Málsnúmer 202104070
Sameiginlegt erindi Sveitarfélagsins Hornafjarðar og SASS lagt fram til kynningar.
Frá og með 1. apríl sl. er tölfræði Vinnumálastofunar varðandi Sveitarfélagið Hornafjörð birt með öðrum sveitarfélögum á Suðurlandi.
Til skoðunar er að færa þjónustu Vinnumálastofnunar er varðar Sveitarfélagið Hornafjörð undir skrifstofu VMST á Suðurlandi.



4.
Humarhátíð 2021
Málsnúmer 202101089
Erindi frá starfandi Humarhátíðarnefnd lagt fram.
Starfandi Humarhátíðarnefnd hefur sagt sig frá undirbúningi hátíðarhalda í ár en hvetur sveitarfélagið til þess að standa fyrir menningarupplifunum íbúa.
Bæjarráð þakkar erindið og felur starfsmönnum í samvinnu við Menningarmiðstöð að skoða með hvaða hætti hægt er að standa að óhefðbundinni Humarhátíð 2021.
5.
Erindi frá 2. bekk Grunnskóla Hornafjarðar
Málsnúmer 202104072
Erindi frá 2. bekk í Grunnskóla Hornafjarðar þar sem nemendur benda á það sem mætti betur fara í umhverfinu miðsvæðis á Höfn.
Bæjarráð þakkar 2. bekk í Grunnskóla Hornafjarðar fyrir erindið og fagnar frumkvæði nemenda.
Bæjarráð vísar erindinu til úrvinnslu hjá Áhaldahúsinu og Vinnuskólanum.
Bæjarstjóra falið að svara erindinu.
6.
Ályktun frá aðalfundi Sláturfélagsins Búa svf.
Málsnúmer 202104071
Ályktun frá aðalfundi Sláturfélagsins Búa svf. lögð fram.
Bæjarstjóra falið að koma á fundi bæjarráðs með stjórn Sláturfélagsins Búa svf.
7.
Ársfundur - Lífeyrissjóðurinn Stapi 2021
Málsnúmer 202103040
Fundarboð á ársfund lagt fram.
Lagt fram til kynningar.
Bæjarstjóra falið að senda tilkynningu um fulltrúa sveitarfélagsins.
8.
Umsögn um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun, 709. mál.
Málsnúmer 202104062
Erindi frá Alþingi þar sem óskað er eftir umsögn við breytingu á lögum um verndunar-og orkunýtingaráætlun.
Lagt fram til kynningar.
9.
Umsögn - Þingsályktunartillaga um staðsetningu vindorkuvera í landslagi og náttúru, 707. mál
Málsnúmer 202104061
Erindi frá Alþingi þar sem óskað er eftir umsögn við tillögu til þingsályktunar um staðsetningu vindorkuvera í landslagi og náttúru.
Starfsmönnum falið að senda umsögn í samræmi við umræður á fundinum.
10.
Umsögn um endurskoðaða landsskipulagsstefnu 2015-2026, 705. mál.
Málsnúmer 202104063
Erindi frá Alþingi þar sem óskað er eftir umsögn um tillögu til þingsályktunar um endurskoðaða landskipulagsstefnu 2015-2026.Sveitarfélagið sendi inn umsögn á fyrri stigum málsins.
Lagt fram til kynningar.