Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

990. fundur
4. maí 2021 kl. 14:30 - 16:05
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 236
Málsnúmer 2104009F
Fundargerð samþykkt.
2.
Lóðarúrdráttur - Hagaleira 9
Málsnúmer 202104121
Anna Lilja Ragnarsdóttir fulltrúi Sýslumanns stýrði úrdrætti lóðar við Hagaleiru 9. Tíu umsóknir bárust. Umsækjendur eru:Katrín Steindórsdóttir, Jóhanna Rut Hafliðadóttir, Þorleifi Olsen, Jens Olsen, Rannver Olsen, Stefanía Olsen, Erla Guðrún Einarsdóttir Jón Ingi Pálsson, Ívar Sveinn Friðriksson og Selma Lind Jónsdóttir.
Anna Lilja Ragnarsdóttir stýrði lóðarúrdrætti
Ásgerður K. Gylfadóttir dró út lóðarumsækjanda og var Rannver Olsen dregin út. Bæjarráð samþykkir að vísa lóðarúthlutuninni til afgreiðslu bæjarstjórnar
3.
Örnefni - Nýr jökull út frá Svínafellsjökli
Málsnúmer 202104111
Erindi frá Daniel Ben-Yehoshua þar sem hann leggur til að nýr jökull úr Svínafellsjökli verði gefið örnefni.
Starfsmönnum falið að vinna að málinu í samráði við heimamenn.
4.
Ósk um aðstöðu í Heppuskóla v. Volaða land
Málsnúmer 202104036
Erindi frá Join Motion Pictures þar sem óskað er eftir aðstöðu vegna kvikmyndatökur á mynd Hlyns Pálmasonar.
Starfsmönnum falið að greina notkunina og kanna skipulag í tengslum við íþróttastarf og leikjanámskeið auk þess að kostnaðarmeta verkefnið út frá gjaldskrá.
5.
Ósk um styrk
Málsnúmer 202104130
Erindi frá Huldu Björk Svansdóttur þar sem óskað er eftir styrk fyrir hringferð um landið til að vekja athygli á Duchenne vöðvarýrnunarsjúkdómi.
Bæjarráð samþykkir að veita 200 þúsund kr. í verkefnið, tekið af óráðstöfuðu.
6.
Styrkbeiðni vegna sjónvarpsþáttar um Örvar Kristjánsson
Málsnúmer 202104116
Erindi frá Grétari Örvarssyni þar sem óskað er eftir styrk til gerðar sjónvarpsþáttar um Örvar Kristjánsson.
Bæjarráð samþykkir að veita 150 þúsund kr. í verkefnið, tekið af lið Humarhátíðar á fjárhagsáætlun 2021.
7.
Ráðning sviðstjóra fræðslu- og frístundasviðs
Málsnúmer 202104131
Umsóknarfrestur rann út 2. maí níu umskóknir bárust.
Bæjarráð felur mannauðstjóra að vinna áfram að málinu.
8.
Ályktun frá aðalfundi Sláturfélagsins Búa svf.
Málsnúmer 202104071
Lagt fram álit lögfræðings sveitarfélagsins varðandi ráðstöfun lóðar austan megin við sláturhúsið.
Unnið er að nýjum lóðarleigusamningum í samræmi við sölu á eign Sláturfélagsins Búa.
Hyggist Sláturfélagið Búi ekki nýta fyrirhugaða lóð austan við sláturhúsið undir varanleg mannvirki mun sveitarfélagið afturkalla lóðina skv. reglum sveitarfélagsins um úthlutun lóða.
9.
Hagaleira 14: Umsókn um frest á framkvæmdum
Málsnúmer 202011019
Björgvin Ó. Sigurjónsson vék af fundi undir þessum lið. Ingvar Snæbjörnsson óska eftir 5 vikna fresti á framkvæmdum að lóðinni Hagaleiru 14 á meðan unnið er að gerð teikninga.
Bæjarráð samþykkir frest á framkvæmdum á lóðinni Hagaleiru 14 til 8. júní 2021.
10.
Umsókn um lóð - Ósland L og M
Málsnúmer 202104035
Humarhöfnin ehf. sækir um lóðir L og M á Óslandi.
Bæjarráð getur ekki tekið afstöðu til lóðar L þar sem hún er ekki til úthlutunar.
Bæjarráð mælir með úthlutun á lóð M og vísar úthutuninni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
11.
Umsókn um lóð að Hagatúni 16
Málsnúmer 202104132
Umsókn Lárusar Páls Pálssonar að Hagatúni 16.
Bæjarráð mælir með lóðarúthlutuninni og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
12.
Umsókn um lóð við höfnina
Málsnúmer 202104110
GYG óskar eftir að fá afnot af lóð við höfnina vegna efnistöku/dælingu.
Bæjarráð getur ekki mælt með úthlutun lóða við Ófeigstanga meðan unnið er að deiliskipulagi í Óslandi.
13.
Forkaupsréttur sveitarfélagsins á jörðinni Hlíðarbergi
Málsnúmer 202105007
Bæjarráð samþykkir að falla frá forkaupsrétti á jörðinni Hlíðarbergi.