Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

993. fundur
25. maí 2021 kl. 14:30 - 16:25
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Fræðslu- og tómstundanefnd - 79
Málsnúmer 2105004F
Fundargerðin samþykkt.
2.
Velferðarnefnd - 4
Málsnúmer 2104011F
Fundargerðin samþykkt.
3.
Stofnun þjónustusláturhúss og matarsmiðju
Málsnúmer 202105040
Anna, Bryndís og Lovísa gerðu grein fyrir hugmyndavinnu að nýju þjónustusláturhúsi og Matarsmiðju.
4.
Uppgjör á stofnsjóði Sláturfélagsins Búa - B-deild
Málsnúmer 202105095
Fyrir fundinum liggur fyrir staða B-deildar stofnsjóðs hjá Sláturfélaginu Búa í árslok 2020.
Sláturfélagið Búi svf undirbýr slit á félaginu. Staða B deildar stofnsjóðs hjá Sláturfélaginu Búa svf. við árslok 2020 er 10.572.306 kr.
Við slit félagsins mun sveitarfélagið ráðstafa fjármununum í eflingu Atvinnu- og rannsóknarsóðs sveitarfélagsins og styðja við atvinnu- og nýsköpunarverkefni í sveitarfélaginu.
5.
Malbikunarframkvæmdir - 2021
Málsnúmer 202103118
Útboðsgögn vegna malbiksframkvæmda lögð fram.
Starfsmönnum falið að auglýsa útboðið "Malbikun í Sveitarfélaginu Hornafirði - 2021" í samræmi við fjárhagsáætlun.
6.
Árshátíð starfsmanna sveitarfélagsins 2020
Málsnúmer 202008063
Bæjarstjóri greindi frá nýtingu gjafakorta vegna árshátíðar.
7.
Umsögn - Landgræðsluáætlun 2021-2031
Málsnúmer 202105050
Landgræðsla Ríkisins óskar eftir umsögnum um drög að landgræðsluáætlun 2021-2031 og um drög að umhverfismati áætlunarinnar.
Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar.
8.
Umsögn - Barnvænt Ísland - framkvæmd barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, 762. mál.
Málsnúmer 202105070
Velferðarnefnd Alþingis óskar eftir umsögn við tillögu til þingsályktunar um barnvænt Ísland framkvæmd barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Lagt fram til kynningar.
9.
Umsögn um frumvarp til laga um Hálendisþjóðgarð, 369. mál.
Málsnúmer 202012063
Erindi sent frá meirihluta Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis um Hálendisþjóðgarð. Málið snýr að stærð þjóðgarðsins en mörkum hans hefur verið breytt í ferlinu og leitað er umsagna hjá sveitarfélögum.
Bæjarráð ítrekar fyrri umsögn sína.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum.
10.
Umsögn - Hvítbók um byggðamál
Málsnúmer 202105097
Hvítbók um byggðarmál er í vinnslu hjá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, almenningur og haghafar hafa tækifæri til að senda inn umsögn eða ábendingar um hvítbókina, skilafrestur er til og með 31. maí.
Lagt fram til kynningar.
11.
Orkufundur 2021
Málsnúmer 202105091
Orkufundur á vegum Samtaka orkusveitarfélaga verður haldinn í Ráðhúsi Ölfuss 28. maí undir yfirskriftinni Orka og matvælaframleiðsla.
Lagt fram til kynningar.
12.
Fundargerðir stjórnar Nýheima þekkingarseturs
Málsnúmer 202101051
Fundargerðin lög fram til kynningar.