Bæjarráð Hornafjarðar
994. fundur
1. júní 2021
kl.
14:30
-
16:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgrímur Ingólfsson
2. varamaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Bryndís Hólmarsdóttir
1. varamaður
Sæmundur Helgason
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 28
Fundargerðin samþykkt.
2.
Örnefni - Nýr jökull út frá Svínafellsjökli
Könnun um örnefni fór fram á heimasíðu sveitarfélagsins og var auglýst á fésbókarsíðu öræfinga.
Bæjarráð leggur til að jökullinn fái örnefnið Dyrhamarsjökull.
Vísað til samþykktar bæjarstjórnar.
Vísað til samþykktar bæjarstjórnar.
3.
Umsögn - Breytingatillaga að Stjórnunar- og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs, 3.útgáfu.
Umsagnarferli er opið til og með 9. ágúst n.k. og óskast umsögnum skilað á vef Vatnajökulsþjóðgarðs.
Kynningarfundur fyrir Suðursvæði verður mánudaginn 7. júní nk. kl. 17:00 í beinu streymi á síðu Vatnajökulsþjóðgarðs.
Frestað til næsta fundar.
Frestað til næsta fundar.
4.
Sláttur á einkalóðum
Fyrir fundinum liggja drög að verklagsreglum um garðslátt einkagarða. Taka þarf ákvörðun um hlutfall niðurgreiðslu og hvaða og hversu mikla þjónustu á að bjóða upp á fyrir íbúa sveitarfélagsins varðandi garðslátt.
Bæjarráð samþykkir verklagsreglurnar með breytingum sem ræddar voru á fundinum. Kostnaður rúmast innan fjárhagsáætlunar.
5.
Fundir bæjarstjórnar og bæjarráðs sumarið 2021
Bæjarráð samþykkir breytingu á fundartíma í júní, júlí og ágúst. Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
6.
Samningur um tímabundið lóðarvilyrði
Fyrir fundinum liggja drög að samningi um lóðarvilyrði við Marina Travel ehf. um lóðarvilyrði í tengslum við hótelbyggingu í Óslandi.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga frá samningnum í samræmi við umræður á fundinum.
7.
Launaþróun sveitarfélaga
Erindi frá kjarasviði Sambands íslenskra sveitarfélaga með launaþróun sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar.
8.
Hofgarður framkvæmd Endurbætur
Eitt tilboð hefur borist í verkið Hofgarður endurbætur, frá 58.899.579 kr. Kostnaðaráætlun hljóðar upp á 45.145.246 kr.
Bæjarráð hafnar tilboðinu.
Verkið verður boðið út aftur á næsta ári.
Verkið verður boðið út aftur á næsta ári.