Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

995. fundur
8. júní 2021 kl. 14:30 - 16:10
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 25
Málsnúmer 2105011F
Fundargerð samþykkt.
2.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 237
Málsnúmer 2105008F
Fundargerðin samþykkt.
3.
Nafn á víkinni við Ránarslóð
Málsnúmer 202105143
Erindi frá Gunnari Stíg Reynissyni þar sem hann bendir að manngerða víkin við Ránarslóð hefur ekkert nafn og er með hugmynd um að sveitarfélagið standi fyrir nafnasamkeppni um nafn á víkinni.
Málinu vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar.
4.
Ályktun vegna fasteignamats 2022
Málsnúmer 202106002
Stjórn Félags atvinnurekenda skorar á sveitarfélög að lækka álagningarprósentu fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði við gerð fjárhagsáætlana fyrir næsta ár til að bregðast við miklum hækkunum fasteignamats fyrir árið 2022.
Bæjarráð rýnir álagningaprósentu fasteignaskatts í tengslum við fjárhagsáætlunargerð á hverju ári. Fyrir árið 2021 var tekin ákvörðun um að lækka álagningahlutfall fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði og einnig á íbúðarhúsnæði. Bæjarráð mun sem fyrr rýna álagningaprósentuna við fjárhagsáætlunarvinnu fyrir árið 2022.
5.
Reglur um gáma, báta og aðra lausafjármuni í Sveitarfélaginu Hornafirði
Málsnúmer 202102033
Drög að reglum um gáma, báta og aðra lausafjármuni í sveitarfélaginu hafa fengið umfjöllun í umhverfis- og skipulagsnefnd.
Bæjarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til bæjarstjórnar.
6.
Fyrirspurn - Malbikað bílastæði við smábátahöfn
Málsnúmer 202105087
Erindi frá Nínu Sibyl Birgisdóttur þar sem hún bendir á að planið við smábátarbryggjuna sé orðið mjög blautt og komin tími til að malbika það. Erindið var lagt fyrir hafnarstjórn sem óskaði eftir kostnaðargreiningu á framkvæmdinni og lagði áherslu á að svæðið verði malbikað í haust.
Bæjarráð tekur undir bókun hafnarstjórnar og felur starfsmönnum að kostnaðarmeta framkvæmdina.
7.
Samstarfsyfirlýsing um uppbyggingu á íbúðum á Höfn
Málsnúmer 202103066
Bæjarstjóri upplýsti um stöðu mála.
8.
Stækkun Vatnajökulsþjóðgarðs á suðursvæði.
Málsnúmer 202106022
Björgvin Ó. Sigurjónsson vék af fundi undir þessum lið.Erindi frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu þar sem óskað er eftir afstöðu og samþykki Sveitarfélagsins Hornafjarðar um að hluti ríkisjarðarinnar Sandfells og þjóðlendan Hoffellslambatungur verði friðlýst sem hluti Vatnajökulsþjóðgarðs. Fyrirhuguð breyting á reglugerð um Vatnajökulsþjóðgarð nr. 300/2020 verður auglýst í samráðsgátt Stjórnarráðsins.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við stækkun þjóðgarðsins sem þessu nemur. Áréttað að nytjar verði með óbreyttum hætti og fjármagn fylgi til nauðsynlegrar uppbyggingar innviða á svæðinu.
9.
Ósk um styrk - SEM Samtökin
Málsnúmer 202106020
Bæjarráð samþykkir að veita SEM samtökunum styrk að upphæð 50.000 kr. sem verður tekið af óráðstöfuðu.
10.
Umsókn um lóð Álaleira 9
Málsnúmer 201709270
Björgvin Ó. Sigurjónsson vék af fundi undir lið 10. og 11.
Bæjarráð veitir frest til 30. nóvember 2021 vegna skipulagsbreytinga.
11.
Umsókn um lóð Álaleira 11
Málsnúmer 201709271
Bæjarráð veitir frest til 30. nóvember 2021 vegna skipulagsbreytinga.
12.
Fundargerð - stjórn samtök sunnlenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 202102059
Lagt fram til kynningar.
Bæjarráð tekur undir bókun stjórnar SASS varðandi rekstur hjúkrunarheimila.
13.
Fundargerð - stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 2021
Málsnúmer 202102014
Lagt fram til kynningar.