Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

996. fundur
15. júní 2021 kl. 11:00 - 13:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Páll Róbert Matthíasson aðalmaður
Sæmundur Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Velferðarnefnd - 5
Málsnúmer 2106001F
Fundargerðin samþykkt.
2.
Umsókn um um styrk
Málsnúmer 202105075
Óskað er eftir styrk til auglýsingaþátta um ferðaþjónustu í sýslunni.
Bæjarráð samþykkir að veita 2.450 þúsund í verkefnið, verkefnið rúmast innan fjárhagsáætlunar 2021.
3.
Heimsmarkmið og stefnumótun 2019
Málsnúmer 201903117
Bjarni fór yfir drög að stefnumörkun sveitarfélagsins.
Vísað til áframhaldandi vinnu stjórnenda.
4.
Ráðning skólastjóra Grunnskól Hornafjarðar
Málsnúmer 202105115
Átta sóttu um starf skólastjóra Grunnskóla Hornafjarðar. Fræðslu- og tómstundanefnd hefur mælt með ráðningu Þórdísar Sævarsdóttur í starfið.
Bæjarráð samþykkir að Þórdís Sævarsdóttir verði ráðin skólastjóri Grunnskóla Hornafjarðar.
5.
Ósk um lyftu í Sundlaug Hafnar
Málsnúmer 202106041
Erindi frá Ægi Þór Sævarssyni þar sem þess er óskað að sett verði upp lyfta við rennibrautir í sundlauginni.
Bæjarráð þakkar Ægi fyrir erindið og vísar málinu til skoðunar hjá starfsmönnum.
6.
Kirkjugarður Stafafelli - Ósk um framlag til stækkunar
Málsnúmer 202106055
Erindi frá stjórn Kirkjugarða Hafnarsóknar þar sem óskað er eftir 500 þúsund króna framlagi frá sveitarfélaginu til stækkunar á kirkjugarðinum í Stafafelli fyrir árið 2022.
Vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2022.
7.
Lántaka 2021
Málsnúmer 202103042
Afgreiðsla á heimild til lántöku. Einnig lagðar fram upplýsingar um græn skuldabréf að beiðni bæjarráðs.
Ákvörðun um að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga sem tryggt er með veði í tekjum sveitarfélagsins: Bæjarráð Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkir hér með á sveitarstjórnarfundi að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 250.000.000 í samræmi við samþykkta fjárhagsáætlun ársins 2021. Bæjarráð samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.* Er lánið tekið til fjármögnunar á framkvæmdum sveitarfélagsins, skv. gildandi áætlun, sem hafa almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Matthildi Ásmundardóttur, bæjarstjóra, kt. 221177-5419, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Sveitarfélagsins Hornafjarðar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.*
8.
Viðaukar fjárhagsáætlunar 2021
Málsnúmer 202105039
Fjármálastjóri gerði grein fyrir viðauka 2 við fjárhagsáætlun 2021. Viðaukinn felur ekki í sér viðbótarfjármögnun þar sem um tilfærslu verkefna er að ræða ásamt lækkun á fjárfestingaáætlun ársins sbr. meðfylgjandi gögn. Lántaka er jafnframt lækkuð um 100 m.kr.
Bæjarráð samþykkir viðauka 2 við fjárhagsáætlun 2021.*
9.
Stafræn framþróun sveitarfélaga
Málsnúmer 202008084
Staða á samvinnu sveitarfélaga í stafrænni þróun kynnt.
Lagt fram til kynningar.
10.
Kerfisáætlun Landsnet 2021-2030
Málsnúmer 202106053
Erindi frá Landsneti hf. þar sem óskað er eftir umsögn um 10 ára áætlun um þróun meginflutningskerfisins, fyrsti hluti nýrrar kynslóðar byggðalínu, sem innifelur samfellda 220 kv. tengingu frá Suðurnesjum að Austurlandi ásamt styrkingu á meginflutningskerfinu á Vestfjörðum.Frestur til að skila inn skriflegum umsögnum er til 30. júlí næstkomandi.
Frestað til næsta fundar, bæjarráð óskar eftir samantekt á fyrri bókunum.
11.
Aðgerðaráætlun um forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi gagnvart börnum
Málsnúmer 202106056
Errindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem kynnt er aðgerðaráætlun um forvarnir barna gegn kynferðislegu ofbeldi.
12.
Fundargerð - stjórn samtök sunnlenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 202102059
Lagt fram til kynningar.
13.
Fundargerðir HAUST 2020 - 2021
Málsnúmer 202002070
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
14.
Fundargerðir stjórnar Nýheima þekkingarseturs
Málsnúmer 202101051
Fundargerðin lögð fram til kynningar.