Bæjarráð Hornafjarðar
998. fundur
13. júlí 2021
kl.
11:00
-
15:00
Víkurbraut 24
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Páll Róbert Matthíasson
aðalmaður
Sæmundur Helgason
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 238
Fundargerðin samþykkt.
2.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 29
Fundargerðin samþykkt.
3.
Hönnun: Mikligarður 2020 -2021
Kjartan Árnason arikitekt var fenginn til að vinna grófhönnun á Miklagarði svo hægt sé að leggja drög að framkvæmdum í haust. Hugmyndir sem hann kynnti eru í samræmi ákvarðanir atvinnu- og menningarmálanefndar um að helmingur hússins verði safn á meðan hinn hluti húsnæðisins verði nýttur á annan hátt. Ekki liggur fyrir nákvæmlega hver sú nýting á að vera og eru teikningarnar tilraun til að leggja drög að því.
4.
Svavarssafn Ástustofa
Atvinnu- og menningarmálanefnd óskar eftir auknu stöðugildi fyrir Svavarssafn til að auka við opnunartíma safnsins.
Vísað til fjárhagsáætlunargerðar.
5.
Starfsstefna MMH 2021-2025
Menningarmiðstöð Hornafjarðar setur sér starfsstefnu á fjögurra ára fresti þar sem áherslur starfseminnar næstu árin eru tíundaðar og sett fram markmið sem ætlunin er að ná á tímabilinu. Helstu verkefni Menningarmiðstöðvar er að hlúa að því öfluga og fjölbreytta menningarstarfi sem er til staðar í sveitarfélaginu.
Bæjarráð samþykkir starfsstefnu Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar.*
6.
Efling leikskólastigsins - reglur um námstyrk
Meginmarkmiðið með reglum þessum er að fjölga leikskólakennurum í leikskólum sveitarfélagsins í samræmi við ákvæði 14. gr. laga um menntun, hæfi og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leiksskóla, grunnskóla og framhaldsskóla nr. 95/2019, um að a.m.k. 2/3 stöðugilda við kennslu, umönnun og uppeldi barna í leikskólum séu mönnuð leikskólakennurum.
Bæjarráð samþykkir reglur Sveitarfélagsins Hornafjarðar um námsstyrk fyrir starfsfólk leikskóla.*
7.
Yfirdráttarheimild
Bæjarstjóri óskar eftir samþykki bæjarráðs til að sækja um yfirdráttarheimild að fjárhæð 60.000.000.- kr. fyrir sveitarfélagið vegna skammtímasveiflna í sjóðsflæði.*
Bæjarráð veitir bæjarstjóra heimild til að óska eftir yfirdráttaheimild í viðskiptabanka sveitarfélagsins.*
8.
Sala íbúða í eigu sveitarfélagsins
Minnisblað félagsmálafulltrúa lagt fram.
Bæjarráð felur starfsmönnum að undirbúa sölu á þeim íbúðum sem starfsmenn leggja til í minnisblaði er fylgir málinu.*
9.
Ósk um styrk vegna gæslu við Austur Ultra utanvegahlaup
Ósk um styrk vegna gæslu við Austur Ultra utanvegahlaups frá Gunnlaugi B. Ólafssyni.
Bæjarráð samþykkir að veita 300 þús. kr. styrk til gæslu við hlaupið skv. umræðum á fundinum.
Tekið af óráðstöfuðu.
Tekið af óráðstöfuðu.
10.
Gróska félagslandbúnaður - ósk um samstarf og fjármagn
Ósk um styrk fyrir Grósku félagslandbúnað í Hornafirði og Nytjasmiðju Hornafjarðar - regnhlíf hringrásarhagkerfis í Hornafirði.
Vísað til fjárhagsáætlunargerðar.
11.
Undirbúningur byggingar nýs hjúkrunarheimilis
Bæjarstjóri fór yfir stöðu mála. SOF nefndin hefur samþykkt að auglýsa útboð.
Samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir hefur nú samþykkt að útboð vegna byggingar nýs hjúkrunarheimilis á Höfn verði auglýst. Auglýsingin kemur í dagblöð um næstu helgi og gögn verður hægt að sækja á vef Ríkiskaupa mánudaginn 19. júlí. Útboðið verður auglýst á evrópska efnahagssvæðinu í samræmi við lög um opinber fjármál.
Bæjarráð fagnar fyrirhuguðu útboði.
Bæjarráð fagnar fyrirhuguðu útboði.
12.
Starfsmannamál
Sverrir Hjálmarsson mannauðsstjóri hefur sagt upp starfi sínu.
Bæjarstjóra falið að undirbúa starfslýsingu og auglýsingu fyrir næsta fund.
Bæjarstjóra falið að undirbúa starfslýsingu og auglýsingu fyrir næsta fund.
13.
Vatnsból í Nesjum
Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundi með landeiganda um vatnsból sveitarfélagsins í Nesjum.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum.
14.
Framkvæmd ljósleiðari í Lóni
Samningur um framkvæmd lagningu ljósleiðara frá Lónsheiði að Dynjanda. Tilgangur framkvæmdarinnar er að byggja upp ljósleiðarakerfi Orkufjarskipta og tengja dreifbýli sveitarfélagsins við ljóslögn. Samningurinn á sér forsendur í samningi sveitarfélagsins við Fjarskiptasjóð um uppbyggingu ljósleiðarkerfis í sveitarfélaginu.
Bæjarráð samþykkir samning um framkvæmd ljósleiðara við Orkufjarskipti.*
15.
Kæra vegna samþykktar á nýju deiliskipulagi fyrir þéttingu byggðar
Erindi frá Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála þar sem tilkynnt er að stjórnsýslukæra hafi borist til nefndarinnar um deiliskipulag innbæ. Óskað er eftir gögnum er málið varðar.
Starfsmönnum falið að svara erindinu og senda viðeigandi gögn.
16.
Leiðarhöfði - Hönnunarsamkeppni
Starfsmönnum falið að auglýsa eftir aðilum sem vilja taka þátt í hönnunarsamkeppni um Leiðarhöfða.
17.
Samningur um tímabundið lóðarvilyrði
Bæjarráð samþykkir samning um tímabundið lóðarvilyrði við Marina Travel ehf. þar sem sveitarfélagið skuldbindur sig til þess að veita félaginu vilyrði fyrir lóðum D, E, F, C, G og H skv. deiliskipulagi. Samningurinn gildir til 9 mánaða eða þar til vinnu að fjármögnun lýkur. Miðað við hugmyndir félagsins er nauðsynlegt að gera breytingar á gildandi deiliskipulagi s.s. byggingarheimild, nýtingarhlutfall, fjöldi hæða. Bæjarráð leggur áherslu að breytingar á skipulagi verði kostaðar af umsækjanda ásamt öðru því kynningarefni sem leggja þarf til.*
18.
Malbikunarframkvæmdir - 2021
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 90.300.000 kr.
Colas 102.719.300 kr. 13.8 % yfir kostnaðaráætlun.
Malbikun Norðurlands 93.959.840 kr. 4% yfir kostnaðaráætlun.
Malbikun Akureyrar 109.136.500 kr. 109.136.500 kr. 20% yfir kostnaðaráætlun.
Starfsmönnum falið að semja við lægstbjóðanda.
Colas 102.719.300 kr. 13.8 % yfir kostnaðaráætlun.
Malbikun Norðurlands 93.959.840 kr. 4% yfir kostnaðaráætlun.
Malbikun Akureyrar 109.136.500 kr. 109.136.500 kr. 20% yfir kostnaðaráætlun.
Starfsmönnum falið að semja við lægstbjóðanda.
19.
Deiliskipulagsbreyting - Álaleira 9-11
Erindi frá Mikael ehf. þar sem óskað er eftir breytingu á deiliskipulagi Leirusvæði. Gert er ráð fyrir að gera nýjan botnlanga með einni raðhúsalengju og önnur raðhúsalengja verði við Álaleiru. Markmið með breytingu á skipulaginu er að fjölga íbúðum í sveitarfélaginu.
Bæjarráð samþykkir tillögu að breytingu á deiliskipulagi á Leirusvæði til auglýsingar skv. 41. gr. skipulagslaga að því tilskyldu að botnlanginn verði innan lóðamarka á raðhúsum við Álaleiru 9 sem verður Bugðuleira 9. Fallið er frá gerð skipulagslýsingar skv. 2. mgr. 40. gr. skipulaglaga nr. 123/2010 þar sem forsendur liggja allar fyrir í aðalskipulagi.*
20.
Ósk um breytingu á skipulagi Bjarnahól 8 og 9
Eigendur húsa að Bjarnarhóli 8 og 9 óskað eftir heimild til að byggja bílskúr og skipta upp sameiginlegum hluta lóða skv. meðfylgjandi teikningu. Grenndarkynning hefur nú þegar farið fram, engar athugasemdir bárust.
Bæjarráð samþykkir breytt lóðarmörk og byggingarreiti fyrir bílskúra án skipulagsgerðar skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga enda er breytingin í samræmi við landnotkun byggðarmynstur og þéttleika byggðar.*
Starfsmönnum falið að útfæra ný lóðarblöð og uppfæra nýja lóðarleigusamninga.
Starfsmönnum falið að útfæra ný lóðarblöð og uppfæra nýja lóðarleigusamninga.
21.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra - Heppuvegur 2a, Íshúsið viðbygging
Áform eru um að byggja viðbyggingu við veitingahús að Heppuvegi 2a (Íshúsið Pizzeria). Um er að ræða framlengingu hússins til austurs um 3m, en viðbygging mun vera 2m breiðara en núverandi húss. Ytra útlit hússins verður að öðru leyti óbreytt og lögð áhersla á að viðbygging falli að núverandi ásýnd.
Bæjarráð er jákvætt fyrir fyrirhuguðum framkvæmdum og telur þær samræmast deiliskipulagi.
Starfsmanni falið að ræða við umsækjanda um útfærslur í samræmi við umræður á fundinum.
Starfsmanni falið að ræða við umsækjanda um útfærslur í samræmi við umræður á fundinum.
22.
Byggingarleyfisumsókn Garðsbrún 2 - viðbygging, breyting á klæðningu, skipting glugga
Gunnar Ingi Valgeirsson sækir um leyfi til að byggja við íbúðarhús að Garðsbrún 2. Um er að ræða um 15m² stofu á neðri hæð. Einnig er sótt um leyfi til að skipta um glugga og hurðir, og að endurklæða húsið, fjarlægja núverandi plastklæðningu og klæða með litaðri báruklæðningu og lerki viðarklæðningu á afmörkuðum svæðum. Ekki er til staðfest deiliskipulag fyrir svæði.
Bæjarráð samþykkir að grenndarkynna fyrirhugaðar framkvæmdir skv. 44. gr. skipulagslaga.*
Enda er framkvæmdin í samræmi við landnotkun, byggðarmynstur og þéttleika byggðar.
Enda er framkvæmdin í samræmi við landnotkun, byggðarmynstur og þéttleika byggðar.
23.
Byggingarleyfisumsókn - Hagaleira 13, einbýlishús
Björgvin Ó. Sigurjónsson vék af fundi undir 22. og 23. lið.Eggert Helgi Þórhallsson sækir um heimild til þess að hafa þakskyggni á húsi við Hagaleiru 13 óverulega út fyrir byggingarreit.
Bæjarráð samþykkir að heimilt verði að hafa þakskyggni óverulega út fyrir byggingarreit skv. framlögðum teikningum án breytingar á deiliskipulagi og fallið er frá grenndarkynningu skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, enda um óverulegt frávik að ræða sem skerðir hagsmuni nágranna í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.*
24.
Byggingarleyfisumsókn: Hagaleira 14, parhús
Ingvar G Snæbjörnsson sækir um heimild til þess að hafa þakskyggni á húsi við Hagaleiru 14 óverulega út fyrir byggingarreit.
Bæjarráð samþykkir að heimilt verði að hafa þakskyggni óverulega út fyrir byggingarreit skv. framlögðum teikningum án breytingar á deiliskipulagi og fallið er frá grenndarkynningu skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, enda um óverulegt frávik að ræða sem skerðir hagsmuni nágranna í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.*
25.
Byggingarleyfisumsókn: Stekkaklettur - gestahús
Erindi frá Kjartani Árnasyni f.h. Hlyns Pálmasonar. Sótt er um byggingarleyfi til að reisa um 25m² heilsárshús við Stekkaklett. Deiliskipulagstillaga fyrir svæðið er í vinnslu og kynningu lokið beðið er eftir umsögn frá Minjastofnun Íslands.
Bæjarráð samþykkir að gefið verði út byggingarleyfi í samræmi við framlagðar teikningar skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga og í samræmi við leigusamning um Stekkaklett. Fallið er frá grenndarkynningu skv. 3. mgr. 44 gr. skipulagslaga enda varðar breytingin ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda. Framkvæmdin samræmist deiliskipulagi sem hefur verið kynnt og er í samþykktarferli.*
26.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra - Hlíðartún 23, stækkun á bílastæði
Halla Sigurdardóttir og Ðuro Beic óska eftir heimild til að stækka bílastæði á lóð við Hlíðartún 23. Um er að ræða stækkun til norðausturs að lóðarmörkum við göngustig milli húsa nr. 23 og 25. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu.
Bæjarráð samþykkir að bílastæðið verði stækkað í níu metra í átt að göngustíg.*
27.
Tilkynning um framkvæmd - spennistöð (smáhýsi veitna), óstofnuð lóð við Víkurbraut
RARIK ohf. tilkynnir framkvæmd við staðsetningu nýjar spennistöðvar við bílastæði á Víkurbraut til móts við vogarhúsið. Skv. gildandi deiliskipulagi er ekki gert ráð fyrir smáhýsi veitna á umræddu svæði.
Bæjarráð samþykkir staðsetningu spennistöðvar og heimilar að vikið sé frá kröfum 2. mgr. 43 gr. skipulagslaga um breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu þar sem um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.*
28.
Tilkynning um framkvæmd - Ránarslóð 10 útlitsbreyting
Umsókn Gunnars Stígs Reynissonar um leyfi til að breyta glugga úr eldhúsi í hurð á húsi nr. 10 við Ránarslóð. Um er að ræða breytingu sem snýr út í bakgarðinn. Fyrirhuguð er að halda breidd gluggaops óbreyttri.
Bæjarráð samþykkir að fallið verði frá grenndarkynningu skv. 44. gr. skipulagslaga þar sem breytingin hefur ekki áhrif á grennd.*
29.
Umsókn um lóð - Álaleira 5
Umsókn Karlsbrekku ehf um lóð að Álaleiru 5.
Bæjarráð samþykkir lóðarúthlutunina.*
30.
Byggingarleyfisumsókn - Álaleira 5 - nýtt iðnaðarhúsnæði
Björgvin Ó. Sigurjónsson vék af fundi undir 29.31. og 32. máli. Karlsbrekka ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir 355,7m² iðnaðarhús á lóð Álaleira 5. Um er að ræða nýframkvæmd. Ekki er til staðfest deiliskipulag fyrir svæði.
Bæjarráð samþykkir að grenndarkynna fyrirhugaða byggingu skv. 44. gr. skipulagslaga.*
Enda er framkvæmdin í samræmi við landnotkun, byggðarmynstur og þéttleika byggðar.
Enda er framkvæmdin í samræmi við landnotkun, byggðarmynstur og þéttleika byggðar.
31.
Breyting á jarðalögum - verklag sveitarfélagsins
Erindi frá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu þar sem tilkynnt er að Alþingi samþykkti breytingu á jarðarlögum nr. 81/2004. Helstu breytingar sem snúa að sveitarfélögum eru að felld er brott skylda ráðherra að samþykkja breytta landnotkun á landbúnaðarsvæðum en um leið leitast við að styrkja sveitarfélögin til að takast á við breytingar á landnotkun þannig að þau hafi betri möguleika að gæta hagsmuna landbúnaðar við gerð skipulags.
Breyting á jarðarlögum kallar á settar séu reglur um nýtt verklag.
Starfsmönnum falið að undirbúa vinnu að nýjum verklagsreglum.
Starfsmönnum falið að undirbúa vinnu að nýjum verklagsreglum.
32.
Landeignaskrá - Skálafell 1A og Skálafell 1B - breyting á lóðarmörkum
Björn Guðmundur Sæbjörnsson og Sigurgeir Jónsson óska eftir breytingu á lóðarmörkum milli Skálafells 1 lóð A og Skálafells 1 lóð B skv. meðfylgjandi uppdráttum. Til staðar er staðfest deiliskipulagi fyrir svæði.
Bæjarráð samþykkir að unnin verði óveruleg breyting á deiliskipulagi þar sem gerð er grein fyrir breyttum lóðamörkum og byggingarreitum.*
33.
Umsögn - Skiplagslýsing fyrir Suðurhálendið
Svæðisskipulagsnefnd um svæðisskipulag Suðurhálendis vinnur nú að gerð nýs svæðisskipulags fyrir Suðurhálendið, óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins um skipulagslýsinguna.
Lagt fram til kynningar.