Bæjarráð Hornafjarðar
999. fundur
27. júlí 2021
kl.
11:00
-
11:40
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Bryndís Hólmarsdóttir
1. varamaður
Sigrún Sigurgeirsdóttir
áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Sóttvarnir: COVID-2019
Ný reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar tók gildi 25. júlí 2021 og gildir til 13. ágúst. Meðal þeirra takmarkana sem eru í gildi eru takmörkun á fjöldasamkomum þegar fleiri en 200 einstaklingar koma saman.
Bæjarráð hvetur íbúa til að gæta að persónulegum sóttvörnum og fylgjast með breytingum á sóttvarnarreglum.
2.
Ósk um viðgerð á stíg milli 3. og 4. brautar á golfvelli
Verðkönnunargögn vegna lagfæringa á rofvörn á Golfvelli lögð fram.
Starfsmönnum falið að leita tilboða og hefja viðræður við Isavia um kostnaðarþátttöku.
3.
Breyting á aðalskipulagi - Heppuvegur 6
Breyting á aðalskipulagi fyrir Heppuveg 6 lögð fram. Lýsing hefur farið fram.Megin markmið með breytingunni er að M1 miðsvæði stækkar og Heppuvegur 5 og hluti Heppuvegar 6 verða á miðsvæði í stað athafnasvæðis. Með breyttri landnotkun verður heimilt að hafa á lóðunum matvælaframleiðslu/iðnarðarframleiðslu, veitingasölu og listsýningar auk íbúða.
Bæjarráð samþykkir að kynna aðalskipulagsbreytingu skv. 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.*
4.
Kæra vegna samþykktar á nýju deiliskipulagi fyrir þéttingu byggðar
Erindi frá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlyndamála þar sem tilkynnt er að kröfu kærenda um frestun réttaráhrifa kærðu deiliskipulagsákvörðun er hafnað.
Lagt fram til kynningar.
5.
Byggingarleyfisumsókn - Krosseyjarvegur 6, olíugeymir
Olíudreifing hefur óskað eftir heimild til að byggja úrgangsolíugeymi á lóð Krosseyjarveg 6. Fyrirhugað er að koma fyrir 60m³ tvöföldum stálgeymi við hlið áfylliplans stöðvarinnar og lagnir tengdar frá geymi inn á planið.Grenndarkynning hefur farið fram Engar athuugasemdir bárust.
Bæjarráð samþykkir grenndarkynninguna og veitir heimild til útgáfu bygginaleyfis skv. 44. gr. skipulagslaga.*
6.
Hleðslustöð frá Orkusölunni
Hleðslustöðin er staðsett á miðsvæði Hafnar og er í fullum rekstri og er í talsverðri notkun.
7.
Ársreikningur SKG 2020
Ársreikningur SKG fyrir árið 2020.
Bæjarráð ítrekar fyrri bókun frá 2. mars sl. þar sem kallað er eftir endurskoðuðum ársreikningum og gistináttaskýrslum.
8.
Umsögn um útgáfu leyfa - Útihátíð Stöðull
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn um tækifærisleyfi og tímabundið áfengisleýfi fyrir útihátíð fyrir alla fjölskylduna á Stöðli Fagurhólsmýri. Óskað er eftir umsögn slökkviliðs og HAUST varnandi fjölda á svæðinu.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn með fyrirvara um að slökkvistjóri og Haust veiti jákvæða umsögn og farið verði eftir gildandi sóttvarnarreglugerð á þeim tíma sem hátíðin fer fram.
9.
Umsögn - Flugeldasýning á Jökulsárlóni 2021
Erinidi frá Björgunarfélagi Hornafjarðar þar sem óskað er eftir umsögn um flugeldasýningu á Jökulsárlóni 14. ágúst nk.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn fyrir flugeldasýningu 2021 og að farið verði eftir gildandi sóttvarnarreglugerð á þeim tíma sem flugeldasýningin fer fram.