Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

158. fundur
2. september 2010 kl. 16:00 - 18:00
í Ekru
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Bæjarráð 509. fundur
Málsnúmer 201010038
<DIV>Árni Rúnar fjallaði um 10. lið, innsend erindi, ræddi hann um vinnu við endurskoðun gildandi laga- og reglugerðarákvæða um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.

Fundargerð borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
</DIV>
2.
Bæjarráð 510. fundur
Málsnúmer 201010039
<DIV>Árni Rúnar ræddi um fundargerð skóla-, íþrótta-, og tómstundarnefndar.Árni Rúnar lagði fram eftirfarandi bókun undir fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar: Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar fagnar þeim viðsnúningi sem orðið hefur á afstöðu meirihluta skóla-, íþrótta  og tómstundanefndar varðandi stöðu félagsmiðstöðvar í stjórnskipan sveitarfélagsins. Viðsnúningurinn felur í sér að niðurstaðan samrýmist betur áliti starfshóps bæjarstjórnar, sem fjallaði um félagslíf nemenda á grunnskólaaldri á síðasta kjörtímabili.Árni Rúnar fjallaði um 13. lið annars fundar umhverfis- og skipulagsnefndar, ræddi hann um endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar.Ásgerður fjallaði um fundargerð skóla-, íþrótta-, og tómstundarnefndar, ræddi hún um félagsmiðstöð og félagslíf nemenda á grunnskólaaldri.Hjalti Þór fjallaði um fundargerð skóla-, íþrótta-, og tómstundarnefndar, ræddi hann málefni félagsmiðstöðvar. Hjalti fjallaði einnig um fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar, ræddi hann endurskoðun aðalskipulags.Árni Rúnar fjallaði um annan lið bæjarráðs, ræddi hann könnun á kostnaði við kaup á skólavörum. Hjalti Þór fjallaði um 3. lið fundargerðar bæjarráðs, ræddi hann um fyrirkomulag fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2011.Fundargerð borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.</DIV>
3.
Bæjarráð 511. fundur
Málsnúmer 201010040
Árni Rúnar Þorvaldsson lagði fram eftirfarandi tillögu undir fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar:

Bæjarstjórn tekur undir bókun atvinnu ? og menningarmálanefndar um áherslur Sveitarfélagsins Hornafjarðar við gerð nýrra menningarsamninga á vettvangi landshlutasamtaka sveitarfélaga við mennta ? og menningarmálaráðuneytið.

Ásgerður bar tillöguna upp til samþykktar og var hún samþykkt samhljóða.

Árni Rúnar fjallaði um fundargerð félagsmálaráðs, ræddi hann stefnu sveitarfélagsins í húsnæðismálum. Árni fjallaði einnig um önnur mál, ræddi hann skipun fulltrúa í nefnd SASS í landshlutanum um sameiningarmál sveitarfélaga.

Árni Rúnar Þorvaldsson lagði fram eftirfarandi bókun undir liðnum önnur mál:

Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar gerir ekki athugasemd við það að meirihluti Framsóknarmanna skipi fulltrúa meirihlutans í nefnd Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, sem ætlað er að leggja mat á sameiningarkosti sveitarfélaga í landshlutanum, í staðinn fyrir fulltrúa minnihlutans. Það er bæði eðlilegt og lýðræðislegt. En á grundvelli þess að hér er um að ræða ákvörðun, sem byggir á flokkspólitískum forsendum, kom það nokkuð á óvart að Framsóknarflokkurinn skyldi beita ópólitískum bæjarstjóra til þess að ná fram flokkspólitískum markmiðum Framsóknarflokksins í bæjarstjórn Hornafjarðar. Vegna þekkingar á störfum og starfsháttum Framsóknarmanna í bæjarstjórn Hornafjarðar frá síðasta kjörtímabili bindur bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar vonir við að þessi ákvörðun sé ekki til marks um verkfælni Framsóknarmanna á nýju kjörtímabili.

Reynir Arnarson fjallaði um fundarsköp bæjarstjórnar og bæjarráðs, ræddi hann um önnur mál og fyrirkomulag þeirra almennt. Reynir fjallaði einnig um bókun Samfylkingarinnar um skipan fulltrúa í nefnd SASS um sameiningarmál sveitarfélaga.

Valdemar Einarsson fjallaði um húsnæðismál í sveitarfélaginu. Valdemar fjallaði einnig um reglur um notkun á Pakkhúsinu, ræddi hann um stefnu sveitarfélagsins í húsnæðismálum undanfarin ár.

Hjalti Þór fjallaði um húsnæðismál í sveitarfélaginu, ræddi hann um sölu íbúða sveitarfélagsins undanfarin misseri. Hjalti fjallaði einnig um skipan í nefnd SASS um sameiningarmál sveitarfélaga, ræddi hann um fyrirkomulag skipunarinnar í nefndina. Hjalti fjallaði einnig um flutning heilsugæslu yfir til sveitarfélaga.

Reynir Arnarson fjallaði um húsnæðismál í sveitarfélaginu, ræddi hann um stefnu sveitarfélagsins í húsnæðismálum undanfarin ár.

Árni Rúnar fjallaði um húsnæðismál, fagnaði hann umræðunni um þau mál. Árni ræddi einnig um skipan í nefnd SASS um sameiningarmál sveitarfélaga. Árni fjallaði um fundarsköp, ræddi hann um liðinn önnur mál.

Hjalti Þór fjallaði um fundarsköp, ræddi hann um liðinn önnur mál.


Fundargerð borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
4.
Erindisbréf nefnda
Málsnúmer 200806010
Hjalti Þór fylgdi málinu úr hlaði. Gerði hann grein fyrir breytingum og sameininga nefnda.

Erindisbréf skóla-, íþrótta og tómstundanefndar borin upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða

Erindisbréf stjórnar HSSA borin upp til atkvæða
Samþykkt samhljóða

Erindisbréf umhverfis- og skipulagsnefndar borin upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða

Erindisbréf atvinnu- og menningarmálanefndar borin upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða

Erindisbréf félagsmálaráðs borin upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða