Bæjarstjórn Hornafjarðar
167. fundur
7. apríl 2011
kl.
16:00
-
20:00
í Nýheimum
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerðir bæjarráðs
2.
Samþykkt um búfjárhald í sveitarfélaginu Hornafirði
Hjalti fylgdi málinu úr hlaði, gerði hann grein fyrir helstu breytingum á samþykktinni. Lagði hann til að samþykktin verði samþykkt. Gerði hann einnig grein fyrir ábendingum sem bárust. Reynir spurðist fyrir um hvort Djúpivogur þurfi að breyta sinni samþykkt.Hjalti gerði grein fyrir samskiptum sínum við sveitarfstjóra Djúpavogshrepps.Samþykkt samhljóða.
3.
Innkaupareglur fyrir sveitarfélagið
Hjalti fylgdi málinu úr hlaði. Gerði hann grein fyrir helstu breytingum á reglunum. Lagði hann til að reglurnar verði samþykktar. Guðrún Ása spurðist fyrir um reglurnar.Hjalti svaraði fyrirspurninni. Samþykkt samhljóða.
4.
Reglur um úthlutun leiguíbúða
Hjalti fylgdi málinu úr hlaði. Gerði hann grein fyrir reglunum. Lagði hann til að reglurnar verði samþykktar. Lovísa gerði athugasemdir við reglurnar.Hjalti ræddi umfjöllun félagsmálaráðs og bæjarráðs um reglurnar. Hjalti gerði grein fyrir því að um er að ræða nýjar reglur og að bæjarstjórn þurfi að vera tilbúin að gera breytingar á reglunum ef þær reynast ekki nægjanlega traustar.Samþykkt samhljóða
5.
Endurskoðun fjárhagsáætlunar HSSA 2011
Hjalti fylgdi málinu úr hlaði. Gerði hann grein fyrir helstu breytingum. Hjalti lagði til að endurskoðuð fjárhagsáætlun fyrir HSSA 2011 verði samþykkt.
6.
Ársreikningur 2010 - fyrri umræða
Hlynur Sigurðsson og Sigurjón Örn Arnarson endurskoðendur fylgdu ársreikningi úr hlaði.Hjalti þakkaði starfsmönnum KPMG, starfsmönnum sveitarfélagsins, núverandi bæjarstjórn og síðustu bæjarstjórn fyrir góða vinnu. Sagði hann að reikningurinn gefi til kynna góða stöðu sveitasjóðs.Helstu niðurstöður hans er að afkoma samantekins A og B hluta er jákvæð um 144 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir 97 milljóna króna afgangi. Veltufé frá rekstri nam 261 milljónum króna sem er 26 milljón króna betri niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir. Launakostnaður jókst frá fyrra ári sökum hækkunar á tryggingargjaldi og hækkunar á lífeyrisskuldbindingu. Skuldir og skuldbindingar A og B hluta námu 1.319 milljónum króna í árslok 2010 og lækkuðu um 127 milljónir króna á árinu. Eigið fé A og B hluta nam í árslok 2.163 milljónum króna í árslok og eiginfjárhlutfall 61,9%.Í máli endurskoðenda kom fram að samkvæmt samþykktum áætlunum getur sveitarfélagið staðið við áætlun um rekstur, framkvæmdir og fjármögnun fyrir árin 2011-2014 án þess að til lántöku komi á næstu árum. Það væri til vitnis um fjárhagslegan styrk þess.Forseti lagði til að ársreikningum yrði vísað til síðari umræðu. Samþykkt samhljóða.
7.
Kosningar í almannavarnanefnd
Ásgerður las upp tillögu um skipan í almannavarnarnefnd.Björn Ingi Jónsson sem verður formaður og Reynir Arnarson til vara.Hjalti Þór Vignisson sem verður varaformaður og Ásgerður Gylfadóttir til vara.Friðrik Jónas Friðriksson aðalmaður og Ingólfur Guðni Einarsson til vara.Guðrún Júlía Jónsdóttir aðalmaður og Ester Þorvaldsdóttir til varaPáll Björnsson sem aðalmaðurSamþykkt samhljóða.
8.
Skipan almannavarnanefndar
Ásgerður las upp tillögu um skipan í almannavarnarnefnd.Björn Ingi Jónsson sem verður formaður og Reynir Arnarson til vara.Hjalti Þór Vignisson sem verður varaformaður og Ásgerður Gylfadóttir til vara.Friðrik Jónas Friðriksson aðalmaður og Ingólfur Guðni Einarsson til vara.Guðrún Júlía Jónsdóttir aðalmaður og Ester Þorvaldsdóttir til varaPáll Björnsson sem aðalmaðurSamþykkt samhljóða.
9.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn
Þær hafa engar borist.