Bæjarstjórn Hornafjarðar
Björn Ingi gerði deiliskipulagsvinnu við Hafnarvík Heppu verkefnið að umtalsefni. Ræddi sérstaklega um nýtingu á Pakkhúsinu og hvort ekki væri rétt að taka húsið af sölu og skoða nýtingu þess eftir að deiliskipulagsvinnunni lýkur. Þá ræddi hann um starfsmannamál og ákvörðun bæjarráðs um tímabundna ráðningu starfsmannastjóra. Sagði mikilvægt að ef sú staða verði til langs tíma þyrfti að auglýsa þá stöðu.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /> Reynir ræddi um málefni Pakkhússins. Sagði fulla ástæðu til að fara yfir málefni Pakkhússins en ljóst væri í sínum huga að það yrði ekki selt í sumar. Þá tók Reynir undir orð Björns Inga um mikilvægi þess að auglýsa stöðu starfsmannastjóra ef um langtímastöðu væri að ræða. |
Björn Ingi ræddi um sorpbrennslustöðina í Öræfum. Sagðist sakna upplýsinga um mælingar á díóxíni í umhverfi hennar og vísaði til upplýsinga á vef landlæknis. Spurði hann um hvort von væri á meiri upplýsingum.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Hjalti ræddi um sorpbrennslustöðina í Öræfum. Einnig gerði hann svæði fyrir Skotveiðifélagið að umtalsefni.Bæjarstjóri fylgdi málinu úr hlaði. Í máli hans kom fram að með þessu deiliskipulagi er mörkuð framtíðarnotkun kirkjugarðsstæðisins á Höfn til 40-50 ára. Gert er ráð fyrir að deiliskipulagið verði unnið í tveim áföngum. Með þessu er núverandi kirkjugarður færður inn í deiliskipiulag og afmarkað er svæði til stækkunar á núverandi garði.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Bæjarstjóri lagði til að málinu yrði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn og til lögformlegrar meðferðar á milli umræðna.
Tillagan borinn upp og samþykkt samhljóða.
Engar. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /> |