Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

175. fundur
12. janúar 2012 kl. 16:15 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir Forseti
Reynir Arnarson 1. varaforseti
Björn Ingi Jónsson 2. varaforseti
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Guðrún Ása Jóhannsdóttir aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson aðalmaður
Arna Ósk Harðardóttir 1. varamaður
Valdemar Einarsson 1. varamaður
Hjalti Þór Vignisson (HÞV) bæjarstjóri
Ásta Halldóra Guðmundsdóttir (ÁHG) framkvæmdastjóri sviðs
Haukur Ingi Einarsson (HIE) framkvæmdastjóri sviðs
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
bæjarráð Hornafjarðar - 570
Málsnúmer 1112004F
Árni Rúnar fjallaði um heimaþjónustudeild og undirbúning að uppbyggingu hennar.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
2.
bæjarráð Hornafjarðar - 571
Málsnúmer 1112007F
Hjalti vék af fundi undir þessari fundargerð.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
3.
bæjarráð Hornafjarðar - 572
Málsnúmer 1112009F
Kristján fjallaði um fyrirhugaða gjöf Skinneyjar Þinganes er varðar uppbyggingu íþróttahús yfir gervigrasvöll undir Garðshól.
Árni Rúnar fjallaði um skólamál, ræddi hann um árangur í samræmdum könnunarprófum og nýja námsskrá. Ræddi hann einnig um uppbyggingu á gagnaveri og verkefni er varðar uppbyggingu á vatnsverksmiðju á Höfn.
Reynir fjallaði um verkefni er varðar uppbyggingu á vatnsverksmiðju á Höfn.
Hjalti fjallaði um verkefni er varðar uppbyggingu á vatnsverksmiðju á Höfn og gerði grein fyrir ótryggum gæðum á vatni úr Grjótbrúarlind. Einnig fjallaði hann um uppbyggingu á gagnaveri í sveitarfélaginu.
Björn Ingi ræddi skólamál, fjallaði um námsárangur nemenda í samræmdum könnunarprófum. Fjallaði hann einnig um bókun bæjarráðs er varðar samgönguáætlun. Björn Ingi ræddi einnig uppbyggingu knatthúss á Höfn.
Hjalti svaraði fyrirspurn Björn Inga um bókun bæjarráð er varðar samgönguáætlun. Ræddi hann um nýtingu á knatthúsi á Höfn sem getur nýst sem fjölnotahús.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
4.
bæjarráð Hornafjarðar - 573
Málsnúmer 1201001F
Hjalti fjallaði gerði grein fyrir málefnum Hestamannafélagsins Hornfirðings.
Björn Ingi fjallaði um málefni Hestamannafélagsins Hornfirðings. Ræddi hann einnig um úthlutun byggðakvóta.
Árni Rúnar fjallaði um málefni Hestamannafélagsins Hornfirðings.
Reynir fjallaði um málefni Hestamannafélagsins Hornfirðings. Ræddi hann einnig um úthlutun byggðakvóta.

Árni Rúnar fjallaði um málefni Hestamannafélagsins Hornfirðings.
Hjalti Þór fjallaði um málefni Hestamannafélagsins Hornfirðings.
Árni Rúnar fjallaði um málefni Hestamannafélagsins Hornfirðings.
Björn Ingi fjallaði um málefni Hestamannafélagsins Hornfirðings.
Fundargerð samþykkt samhljóða
5.
bæjarstjórn Hornafjarðar - 174 - fundargerð áður samþykkt
Málsnúmer 1111011F
Til kynningar.
6.
Þriggja ára áætlun 2012-2015 - síðari umræða
Málsnúmer 201109021
Hjalti fylgdi áætlun úr hlaði, sagði hann að engar breytingar hafi verið gerðar á þriggja ára áætlun milli umræðna.

Kom fram að niðurstaða samstæðu fyrir A og B hluta væri eins og eftirfarandi tafla sýnir fyrir.

2013
2014
2015
Rekstrarniðurstaða (m.kr.)
128
128
129
Skuldir í hlutfalli af tekjum
74%
70%
69%
Framkvæmdir (m.kr.)
226
141
140
Handbært fé frá rekstri (m.kr.)
257
260
262
Handbært fé í árslok (m.kr.)
106
117
182
Afborganir langtímal. (m.kr.)
-103
-107
-108
Ný lántaka (m.kr.)
50

50
Samþykkt með sex atkvæðum einn sat hjá.
7.
Kosningar í nefndir
Málsnúmer 201010079
Ásgerður sagði að Guðrún Ása Jóhannsdóttir hafi óskað eftir árs leyfi frá störfum í bæjarstjórn. Þá komi Valdemar Einarsson inn í hennar stað og Grétar Már Þorkelsson verði 2. varamaður. Valdemar Einarsson verður varamaður Björns Inga Jónssonar í bæjarráði. Lovísa Bjarnadóttir verður aðalmaður í stjórn HSSA og Vignir Júlíusson til vara. Bergþóra Ágústsdóttir verði annar aðalmaður í umhverfis- og skipulagsnefnd.
Forseti óskaði eftir athugasemdum. Þær voru engar og voru þær samþykktar samhljóða.
8.
Deiliskipulag vegna íþróttahúss undir Garðshól
Málsnúmer 201112032
Arna Harðardóttir fylgdi málinu úr hlaði um breytingu á deiliskipulagi vegna byggingar knatthús við Garðshól. Vilji er til þess hjá Skinney Þinganes að byggja húsið á sinn kostnað en afhenda síðan sveitarfélaginu að gjöf að því loknu. Núverandi deiliskipulag gerir ráð fyrir að mænishæð geti mest verið 12 metrar en hús sem verið er að skoða rís hærra eða í 13,7 metra. Á hinn bóginn er húsið sem er til skoðunar með mun lægri útveggi en það sem núverandi deiliskipulag gerir ráð fyrir sem kemur þá að einverju leiti til móts við hækkun á mænishæð.
Árni Rúnar fjallaði um deiliskipulagið og siðferðisleg álitmál sem málinu tengjast.
Hjalti ræddi um knatthúsið, ný sveitarstjórnarlög og siðareglur sveitarfélaga.
Reynir fjallaði um knatthúsið.
Árni Rúnar fjallaði um gjöfina.
Forseti bar tillögu um að vísa deiliskipulaginu í lögformlegt ferli.
Samþykkt samhljóða.
9.
Lýsing ? undirbúningur að deiliskipulagi við Jökulsárlón
Málsnúmer 201005046
Hjalti fylgdi málinu úr hlaði. Sagði hann að um væri að ræða fyrsta skref í undirbúningi að deiliskipulagi fyrir Jökulsárlón, búið er að auglýsa lýsingu að höfðu samráði við Skipulagsstofnun, engar athugasemdir eða ábendingar bárust við lýsinguna. Lagði hann til að bæjarstjórn samþykki framlagða lýsingu.
Samþykkt samhljóða
10.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn
Málsnúmer 200901107
Engar