Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

176. fundur
9. febrúar 2012 kl. 16:00 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir Forseti
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Arna Ósk Harðardóttir 1. varamaður
Gunnhildur Imsland 2. varamaður
Björn Ingi Jónsson 2. varaforseti
Valdemar Einarsson aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson aðalmaður
Hjalti Þór Vignisson (HÞV) bæjarstjóri
Haukur Ingi Einarsson (HIE) framkvæmdastjóri sviðs
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
bæjarráð Hornafjarðar - 575
Málsnúmer 1201009F


Ásgerður bar fundargerðina upp til samþykktar.
Fundargerð samþykkt samhljóða
.

2.
bæjarráð Hornafjarðar - 576
Málsnúmer 1201012F


Hjalti Þór gerði grein fyrir samskiptum sveitarfélagins við Velferðarráðuneytið um málefni HSSA.  Björn Ingi fjallaði um kynningarfund sem haldin var í Hrollaugsstöðum um gönguleiðir í Sveitarfélaginu Hornafirði .<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />


Fundargerð samþykkt samhljóða.

3.
bæjarstjórn Hornafjarðar - 175 - fundargerð áður samþykkt
Málsnúmer 1201002F
Til kynningar.
4.
Grenndarkynning Álaleira 13 og 15
Málsnúmer 1110071

Hjalti fylgdi málinu úr hlaði og las upp eftirfarandi bókun:<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />


Fram hefur farið grenndarkynning er varðar sameiningu tveggja parhúsalóða við Álaleiru 13 og 15 í eina raðhúsalóð.  Grenndarkynningin var samþykkt með samþykki allra þeirra er fengu hana og málið varðaði.  Kynning hefur fengið lögformlegt ferli hjá Umhverfis- og skipulagsnefnd og bæjarráði. Lagt er til að grenndarkynningin verði samþykkt með þeim fyrirvara að endanlegum gögnum um byggingu á raðhúsi verði skilað inn og Sveitarstjórn lýsi því yfir í samræmi við Skipulagsreglugerð að hún bæti það tjón sem einstaka aðilar kunni að verða fyrir við þessa breytingu.  Byggingarfulltrúa falið að ljúka málinu í samræmi við bókun.


Bæjarstjórn samþykkir samhljóða

5.
Grenndarkynning - Fákaleira 10A
Málsnúmer 1110022

Hjalti fylgdi málinu úr hlaði og las upp eftirfarandi bókun:<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />



Fram hefur farið grenndarkynning er varðar færslu á bílskúrsrétt innan lóðar Fákaleiru 10A.  Grenndarkynningin var samþykkt með samþykki allra þeirra er fengu hana og málið varðaði.  Kynning hefur fengið lögformlegt ferli hjá Umhverfis- og skipulagsnefnd og bæjarráði. Lagt er til að grenndarkynningin verði samþykkt og Sveitarstjórn lýsi því yfir í samræmi við Skipulagsreglugerð að hún bæti það tjón sem einstaka aðilar kunni að verða fyrir við þessa breytingu.


Bæjarstjórn samþykkir samhljóða.

6.
Deiliskipulag þjónustusvæðis í Skaftafelli
Málsnúmer 201112031

Hjalti gerði grein fyrir deiliskipulaginu.  Lagði hann til að það fari í sitt lögformlega ferli.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />


Bæjarstjórn samþykkir framlagða tillögu.

7.
Álagningarreglur sveitarfélagsins fyrir 2012
Málsnúmer 201109021



1. Álagningarreglur sveitarfélagsins fyrir 2012<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />


Hjalti gerði grein fyrir álagningareglum fyrir sveitarfélagið Hornafjörð fyrir árið 2012, sem eru eftirfarandi



Útsvar 14,48%, hámark er 14,48%


Fasteignaskattur á íbúðahúsnæði 0,50% af fasteignamati, hámark er 0,625%


Fasteignaskattur á atvinnuhúsnæði 1,32% af fasteignamati, hámark er 1,65%


Lóðaleiga 1% af fasteignamati


Holræsagjöld 0,30% af fasteignamati


Vatnsgjöld 0,18% af fasteignamati


Sorphreinsigjald kr./einingu 11.500.-


Sorpurðunargjald kr./einingu 14.000.-


Sorpurðunargjald ½ 5.000.-


Sorpurðunargjald fyrirtækja 11.000.-


Ásgerður bar upp tillöguna um að ofangreindar álagningareglur verði samþykktar. Samþykkt með sex atkvæðum einn sat hjá.

8.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn
Málsnúmer 200901107

Engar