Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

177. fundur
8. mars 2012 kl. 16:00 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir Forseti
Björn Ingi Jónsson 2. varaforseti
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson aðalmaður
Arna Ósk Harðardóttir 1. varamaður
Gunnhildur Imsland 3. varamaður
Valdemar Einarsson 1. varamaður
Hjalti Þór Vignisson (HÞV) bæjarstjóri
Ásta Halldóra Guðmundsdóttir (ÁHG) framkvæmdastjóri sviðs
Haukur Ingi Einarsson (HIE) framkvæmdastjóri sviðs
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Haukur Ingi Einarsson Framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs
Dagskrá
1.
bæjarráð Hornafjarðar - 577
Málsnúmer 1202005F
Ásgerður bar fundargerðina upp til samþykktar
Fundargerð samþykkt.
2.
bæjarráð Hornafjarðar - 578
Málsnúmer 1201014F

Björn Ingi ræddi um veitur, fjallaði hann um hlutverk Hafnarstjórnar er snýr að stjórn á veitum, velti því upp hvort veitur ættu að lúta stjórn bæjarráðs.  Einnig ræddi hann um samgönguáætlun.  Björn Ingi spurði hvernig sveitarfélagið ætli að standa að safnamálum er snúa að byggðasafni eftir flutning Gömlubúðar.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Árni Rúnar ræddi um veitur.  Einnig fjallaði hann um breytta skipan umhverfistofnana og málefni Vatnajökulsþjóðgarðs, taldi hann stjórnkerfi Vatnajökulsþjóðgarðs ætti að vera fyrirmynd fyrir nýjan stofnun verðu hún sett á laggirnar.

Hjalti ræddi um veitur.  Einnig ræddi hann um samgönguáætlun, gerði hann grein fyrir fyrirhuguðum fundi með fulltrúum Siglingastofnun um rannsóknir á grynnslum.  Gerði hann grein fyrir safnamálum og flutningi Gömlubúðar.  Tók hann undir orð Árna um að núverandi stjórnarfyrirkomulag Vatnajökulsþjóðgarðs sé góð fyrirmynd fyrir nýja stofnun.
 
Fundargerð samþykkt.
3.
bæjarráð Hornafjarðar - 579
Málsnúmer 1202007F

Árni Rúnar fjallaði um fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar.  Ræddi hann um móttöku nýrra Íslendinga og fjölskyldustefnu sveitarfélagsins.  Einnig fjallaði hann um breytingar á stjórnsýslu sveitarfélagsins.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Hjalti fjallaði um málefni nýrra íbúa.  Einnig ræddi hann breytingar á skipulagi stjórnsýslunnar og framtíðarhlutverk Ráðhússins.

Árni Rúnar fjallaði um framtíðarhlutverk Ráðhússins og fræðslusviðs.

Hjalti fjallaði um framtíð Ráðhússins og verkefni stjórnsýslunnar.
Árni Rúnar fjallaði um stjórnsýsluna.

Hjalti gerði grein fyrir samningi við Vigfús Ásbjörnsson um nýtingu á hluta af landi í eigu sveitarfélagsins.

Fundargerð samþykkt.
4.
bæjarráð Hornafjarðar - 580
Málsnúmer 1202010F

Arna Ósk ræddi mikilvægi þess að taka til endurskoðunar ferðir á vegum sveitarfélagsins og kostnaðarþátttöku fjölskyldna í þeim.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Árni Rúnar þakkaði Örnu Ósk fyrir að vekja máls á ferðum á vegum sveitarfélagsins. 

Kristján fjallaði um skotfélag Hornafjarðar og æfingarsvæði fyrir félagið.

Hjalti fjallaði um ferðir og gjöld hjá barnafjölskyldum.  

Fundagerð samþykkt.
5.
bæjarráð Hornafjarðar - 581
Málsnúmer 1202012F
Árni Rúnar fjallaði um útboð á innanhúsbreytingum í Heppuskóla. Lagði hann fram eftirfarandi bókun :

Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar treystir sér ekki til þess að styðja ákvörðun bæjarráðs á 581. fundi bæjarráðs um töku tilboðs í endurbætur innanhúss í Heppuskóla. Málsmeðferð og vinnubrögð bæjarráðs voru með þeim hætti að ekki er hægt að halda því fram að um upplýsta og vandaða ákvörðun hafi verið að ræða. Eftirmálar í kjölfar fundarins og ákvörðun um að setja málið aftur á dagskrá bæjarráðs undirstrikar þetta.

Hjalti gerði grein fyrir tilboðum í innanhúsbreytingar í Heppuskóla.
Árni Rúnar fjallaði aftur um tilboð í innanhúsbreytingar í Heppuskóla.
 
Fundargerð samþykkt.
6.
bæjarstjórn Hornafjarðar - 176
Málsnúmer 1201010F
Til kynningar.
7.
Grenndarkynning vegna íbúðarhúss að Hofi I Austurhús
Málsnúmer 201012018

Hjalti fylgdi málinu úr hlaði og las upp eftirfarandi bókun:<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Fram hefur farið grenndarkynning er varðar íbúðarhúss að Hofi I Austurhús. Athugasemdir bárust frá þrem aðilum, Steinþór Arnarsson,  Fornleifaverndar Ríkisins og Þjóðminjaverði Íslands. Kynning hefur fengið lögformlegt ferli hjá Umhverfis- og skipulagsnefnd.  Niðurstöður grenndarkynningar var lögð fyrir Umhverfis- og skipulagsnefnd á 13. fundi nefndarinnar 4. maí. 2011, nefndin var sammála því að láta grenndarkynninguna taka gildi með þeim breytingum að afstaða hússins færist í samræmi við athugasemdir landeigenda á Hofi.  Einnig verði  farið eftir umsögn og reglum Fornleifaverndar ríkisins.  Lagt er til að grenndarkynningin verði samþykkt og að Bæjarstjórn lýsi því yfir í samræmi við Skipulagsreglugerð að hún bæti það tjón sem einstaka aðilar kunni að verða fyrir við þessa breytingu.

Bæjarstjórn samþykkir bókunina samhljóða

8.
Grenndarkynning vegna byggingar bílskúrs að Litla-Hofi
Málsnúmer 201102085

Hjalti fylgdi málinu úr hlaði og las upp eftirfarandi bókun.

Fram hefur farið grenndarkynning er varðar byggingu bílskúrs að Litla - Hofi Grenndarkynningin var samþykkt með samþykki allra þeirra er fengu hana og málið varðaði. Kynning hefur fengið lögformlegt ferli hjá Umhverfis- og skipulagsnefnd.  Lagt er til að grenndarkynningin verði samþykkt og Sveitarstjórn lýsi því yfir í samræmi við Skipulagsreglugerð að hún bæti það tjón sem einstaka aðilar kunni að verða fyrir við þessa breytingu.
<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Bæjarstjórn samþykkir bókunina samhljóða.

9.
Fjárhagsáætlun HSSA 2012
Málsnúmer 201201056

Hjalti fylgdi málinu úr hlaði.  Helstu niðurstöður eru:<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

 

Tekjur alls eru 459,8 m.kr

Gjöld alls eru 468,9 m.k

Niðurstaðan er því neikvæð um 9, 1 m.kr.

 

Lagði bæjarstjóri til að fjárhagsáætlunin verði samþykkt með fyrirvara um nýjan samning við ríkið

Björn Ingi fjallaði um áætlunina, óskaði eftir umræðu um hvernig fjármagn sem upp á vantar verði mætt.

Hjalti gerði grein fyrir þeim kostum sem eru í stöðunni.  

Björn Ingi fjallaði um áætlunina.

Árni Rúnar fjallaði um áætlunina, og sagðist sitja hjá við afgreiðslu hennar.

Bæjarstjórn samþykkir framlagða fjárhagsáætlun með sex greiddum atkvæðum einn sat hjá

10.
Deiliskipulag vegna íþróttahúss undir Garðshól- meðfylgjandi eru athugasemdir íbúa
Málsnúmer 201112032

Hjalti fylgdi málinu úr hlaði og las upp eftirfarandi bókun.

<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Um er að ræða síðari umræðu um breytingu á fyrra skipulag sem samþykkt var í bæjarstjórn Hornafjarðar 16. september 2008 og auglýst í b ? deild Stjórnartíðinda 19.11.2008.  Breytt skipulag var unnið af Glámu ? Kím ehf, uppdráttur unnin í jan. 2012.  Á uppdrætti er greinargerð og yfirlistmynd sem sýnir breytingarnar sem gerðar eru.  Helstu breytingar eru að mænishæð hússins hækkar úr 12 m í 13,7 m. Þrjár athugasemdir bárust á kynningartímanum.  Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur undirbúið svör við framlögðum athugasemdum sem liggja fyrir fundinn. 

Bæjarstjóri lagði til að skipulagið verði sent til afgreiðslu Skipulagsstofnunar ásamt þeim athugsemdum og svörum sem nú liggja fyrir.

Kristján fjallaði um skipulagið og hvernig nýtt hús muni verða lyftistöng fyrir knattspyrnuiðkendur sem og aðra sem vilja nýta húsið.

Árni Rúnar fjallaði um skipulagið og samskipti bæjarráð og Skinney Þinganess vegna knatthússins í tengslum við gjöf fyrirtækisins.

Bæjarstjórn samþykkir framlagða tillögu samhljóða.

11.
Erindisbréf fyrir ungmennaráð
Málsnúmer 200709041

 Björn Ingi tók við fundarstjórn.
Árni vísaði í vanhæfisreglur sveitarstjórnarlaga og vék af fundi.
Ásgerður las upp helstur breytingum á erindisbréfinu og lagði til að erindisbréfið yrði samþykkt.
Samþykkt með sex samhljóða atkvæðum.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

12.
Erindisbréf skóla- íþrótta- og tómstundanefndar
Málsnúmer 200806010

Ásgerður gerði grein fyrir helstu breytingum og lagði til að erindisbréf Skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar verði samþykkt.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Samþykkt með sex samhljóða atkvæðum.
13.
Reglur um heimaþjónustu í Sveitarfélaginu Hornafirði
Málsnúmer 201201046

Árni Rúnar kom inn á fundinn undir þessum lið.  <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Hjalti fylgdi málinu úr hlaði.  Lagði hann til að reglur um heimaþjónustu í Sveitarfélaginu Hornafirði verði samþykktar.
Samþykkt samhljóða.
14.
Jafnréttisáætlun sveitarfélagsins
Málsnúmer 200810037

Hjalti fylgdi málinu úr hlaði, lagði hann til að endurskoðuð jafnréttisáætlun fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð verði samþykkt.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Samþykkt samhljóða.
15.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn
Málsnúmer 200901107
Engar borist