Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

178. fundur
12. apríl 2012 kl. 16:00 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir Forseti
Reynir Arnarson 1. varaforseti
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Ásgrímur Ingólfsson aðalmaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir 1. varamaður
Grétar Már Þorkelsson 2. varamaður
Árni Rúnar Þorvaldsson aðalmaður
Hjalti Þór Vignisson (HÞV) bæjarstjóri
Haukur Ingi Einarsson (HIE) framkvæmdastjóri sviðs
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
bæjarráð Hornafjarðar - 582
Málsnúmer 1203007F

Ásgrímur fjallaði um uppdælingu á Leirusvæði og endanlega frágang á svæðinu.  <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

 

Árni fjallaði um uppdælingu á Leirusvæði og frágang á svæðisins.  Fjallaði hann einnig um könnun á árangri sem náðst hefur í endurvinnslu á úrgangi.

 

Bæjarstjórn Hornafjarðar samþykkir að nú í vor verði í síðasta sinn dælt efni úr höfninni á Leirusvæðið.  Þekkt er að laust efni, bæði það sem komið hefur upp úr höfninni og einnig það sem keyrt hefur verið á staðinn á undanförnum árum, hefur valdið íbúum verulegum óþægindum. Því er mikilvægt að strax þegar uppdælingu lýkur í vor að ráðist verði í markvissar aðgerðir til að hefta fok á lausu efni og ganga frá svæðinu þannig að sómi sé að.  Starfsmönnum falið að kynna fyrir íbúum fyrirhugaðar framkvæmdir, hvenær þær hefjist og hvenær lokið verði við frágang á svæðinu.

Fundargerð samþykkt samhljóða.

2.
bæjarráð Hornafjarðar - 583
Málsnúmer 1203012F

Fundargerð samþykkt samhljóða.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

3.
bæjarráð Hornafjarðar - 584
Málsnúmer 1203014F
Árni Rúnar fjallaði um 17. lið fundargerðarinnar um framtíð Humarhátíðar. 

Reynir spurðist fyrir um ósk Ómars Antonssonar á frekari samstarfi um söfnun brotamálma í Sveitarfélaginu Hornafirði. 

Hjalti svaraði fyrirspurn Reynis. 

Fundargerð samþykkt samhljóða
.
4.
bæjarstjórn Hornafjarðar - 177
Málsnúmer 1202011F

Til kynningar. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

5.
Siðareglur kjörinna fulltrúa og stjórnenda
Málsnúmer 201201017

Hjalti Þór fylgdi málinu úr hlaði.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Árni Rúnar fjallaði um reglurnar.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framlagðar siðareglur kjörinna fulltrúa.

6.
Ráðning í starf fræðslustjóra Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 201204005

Árni Rúnar vék af fundi undir þessum lið.  <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

 

Bæjarstjóri fylgdi málinu úr hlaði og gerði tillögu um að ráða Ragnhildi Jónsdóttur í starfið.

 

Bæjarstjórn samþykkir framlagða tillögu bæjarstjóra með sex atkvæðum.

7.
Ferð bæjarstjóra til Lapplands
Málsnúmer 201204007

Árni Rúnar fylgdi málinu úr hlaði.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

 

Hjalti fjallaði um ferð sína til Lapplands og las upp greinargerð um ferðina, einnig gerði hann grein fyrir ástæðum þess að hann ákvað hætta að blogga.

 

Árni Rúnar þakkaði Hjalta fyrir fróðlegt erindi.  Sagði hann að hann sæi eftir bloggi bæjarstjóra. 

 

Reynir fjallaði um umræður undir þessum lið og þakkaði þær.

 

Árni Rúnar fjallaði um málið aftur.

 

Hjalti gerði grein fyrir ákvörðun sinni um að hætta að blogga. 

8.
Kosningar í nefndir
Málsnúmer 201010079

Ásgerður bar upp tillögu um setu aðalmanna Framsóknarflokksins í umhverfis- og skipulagsnefnd og félagsmálaráði.  Breytingarnar eru þær að Aðalsteinn Aðalsteinsson verður aðalfulltrúi í umhverfis- og skipulagsnefnd í staðinn fyrir Gunnar Pál Halldórsson, Gunnar Páll Halldórsson verður varamaður og að Sólrún Sigurjónsdóttir verði aðalmaður í félagsmálaráði í stað Óskars Arasonar sem verður varamaður.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

 

 Bæjarstjórn samþykkir framlagða tillögu forseta með sex atkvæðum einn sat hjá.

9.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn
Málsnúmer 200901107
Engar borist.