Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

184. fundur
17. september 2012 kl. 16:15 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir Forseti
Reynir Arnarson 1. varaforseti
Ásgrímur Ingólfsson aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Valdemar Einarsson aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson aðalmaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir varamaður
Hjalti Þór Vignisson (HÞV) bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
bæjarráð Hornafjarðar - 600
Málsnúmer 1208002F

Lovísa spurði um kostnaðaráætlun vegna framkvæmdar við Gömlubúð.  Þá spurði hún um hvenær viðbygging á Krakkakoti verði boðin út og hvenær verklok verði.

Hjalti upplýsti um að enn væri verið að vinna að hönnun við endurbætur á Gömlubuð.  Sagði að viðbygging við Krakkakot verði boðin út í haust og opnuð eftir sumarleyfi 2013.

Fundargerð samþykkt.

2.
bæjarráð Hornafjarðar - 601
Málsnúmer 1208004F

Árni Rúnar fjallaði um fyrirspurn sem hann lagði fram um hvort bæjarstjóri komi til greina að beita 12. gr. laga um stjórn fiskveiða ef Sveitarfélagið standi frammi fyrir sömu stöðu og Vestamannaeyjabær gerði gagnvart sölu á útgerðarfélaginu Berg Hugins til Síldarvinnslunnar.  Sagði mikilvægt að farið verði vel yfir þetta mál og móta stefnu um hvernig bæjaryfirvöld eigi að bregðast við ef menn standi frammi fyrir álíka stöðu á Hornafirði.

Hjalti ræddi um fyrirspurn Árna Rúnars

Valdemar spurði um úrbætur á Leirusvæði og hvernig nýjasta útspil um heftingu foks á svæðinu hafi reynst.

Reynir sagði að enn sem komið er væri reynslan góð en það kæmi betur í ljós í framhaldinu.  Þá fjallaði Reynir um fyrirspurn Árna.  Rifjaði upp sölu á aflaheimildum Eskeyjarútgerðarinnar innan sveitarfélagsins.

Árni þakkaði innlegg í umræðu um fyrirspurnina.  Spurði hann hvort að menn meti þá 12. gr. sem lagabókstaf sem hafi lítið sem takmarkað gildi.  Þakkaði Valdemar einnig umræðu um heftingu foks á Leirusvæði.

Hjalti ræddi um fiskveiðistjórnunarkerfið og 12. gr. laga um stjórn fiskveiða.

Fundargerð samþykkt.

3.
bæjarráð Hornafjarðar - 602
Málsnúmer 1209003F

Fundargerð samþykkt.

4.
bæjarstjórn Hornafjarðar - 183 - fundargerð áður samþykkt
Málsnúmer 1207005F

Fundargerð til kynningar.

5.
Millibygging milli Heppuskóla og sundlaugar
Málsnúmer 201206020

Hjalti fór yfir verklýsingu.

Verklýsing samþykkt.

6.
Deiliskipulag við Jökulsárlón
Málsnúmer 201005046

Ásgrímur fór yfir athugasemdir Skipulagsstofnunar um að deiliskipulagið sé ekki í samræmi við aðalskipulag.  Lagði fram tillögu um að draga auglýst deiliskipulag til baka.

Árni spurði um stöðu málsins og næstu skref.

Reynir ræddi um vinnu við deiliskipulag almennt og að þeir sem komi að vinnunni á fyrri stigum gæti að formsatriðum, eins og að deiliskipulag brjóti ekki í bága við aðalskipulag.  Greindi frá því að næstu skref felist í að deiliskipulagið verði aðlagað að gildandi aðalskipulagi.

Árni spurði hvort draga þurfi málið í heild sinni til baka og auglýsa að nýju.

Upplýsti Ásgrímur að það sé réttur skilningur.

Árni ræddi um deiliskipulag.

Hjalti ræddi um deiliskipulag.

Forseti bar ofangreinda tillögu upp til atkvæða.

Samþykkt samhljóða.

7.
Tillaga að sameiningu SASS og AÞS
Málsnúmer 201209018

Hjalti gerði grein fyrir umræðu um hugsanlega aðild sveitarfélagsins að AÞS frá árinu 2010. Fór yfir tvær samantektir um málið.

Valdemar sagði að honum fyndist bratt hafa farið  í málinu og lagði fram eftirfarandi bókun:

”Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks lýsa yfir undrun sinni á vinnubrögðum meirihlutans að jafn stórt mál og aðild að AÞS er, sé kynnt með svo skömmum fyrirvara. Ljóst mátti vera strax eftir aðalfund SASS í október 2011, þar sem ákveðið var að sameina SASS og AÞS, að Sveitarfélagið Hornafjörður þyrfti að taka afstöðu til inngöngu í AÞS með tilheyrandi kostnaði.“

Reynir fór yfir málið og vinnu stjórnar SASS og AÞS í undirbúningi að sameiningu í kjölfar aðalfundar SASS sl. haust. Reynir greindi frá ástæðum þess að ákveðið hafi verið að standa fyrir utan atvinnuþróunarfélög á sínum tíma, einkum vegna þess að óvissa var um framtíð þeirra og starfsmaður á þeirra vegum ekki á staðnum. Sagði Reynir forsendur breyttar og ekki eftir neinu að bíða að sækja um, setja skilyrði um að starfsmaður verði á staðnum og innganga Hornafjarðar taki mið af ársreikningu fyrir árið 2012.

Árni Rúnar sagðist hafa lagt áherslu á það í umræðu um málið í bæjarráði að það fengi umfjöllun í bæjarstjórn áður en ákvörðun er tekin. Sagði að hann hafi álvallt haft þá skoðun að ef tillaga kæmi fram um sameiningu AÞS og SASS þyrfti

sveitarfélagið að endurskoða afstöðu sína um aðild að AÞS. Einnig sagði hann að ný nálgun stjórnvalda um uppbyggingu samfélags og atvinnulífs sem fæli í sér stóraukið hlutverk landshlutasamtaka kallaði á endurskoðun á afstöðu bæjarstjórnar. Sagði hann því styðja aðild Sveitarfélagsins Hornafjarðar að AÞS.

Valdemar fagnaði því að fram hafi komið skilyrða eigi umsókn um að starfsmaður verði staðsettur á Hornafirði. Af þeirri ástæðu munu Sjálfstæðismenn koma til með að styðja umsóknina. Valdemar spurði um framtíð Atvinnu- og rannsóknasjóðs í ljósi þess að sveitarfélagið myndi nú ganga til liðs við AÞS.

Reynir sagði að innganga í AÞS myndi kalla á endurskipulagningu á stuðningi við atvinnulíf á Hornafirði en ljóst að atvinnu - og rannsóknasjóður Hornafjarðar muni starfa áfram.

Árni Rúnar undirstrikaði þá skoðun sína að með aðild að AÞS stæði sveitarfélagið sterkar að vígi með fullri aðild að stofnuninni, þar sem þá væri tryggt að rödd Hornfirðinga myndi heyrast og möguleiki til að hafa áhrif á ákvarðanir væri tryggður.

Forseti bar upptillögu um að sveitarfélagið Hornafjörður sæki um aðild að Atvinnuþróunarsjóði Suðurlands.

Samþykkt samhljóða.

8.
Kosningar í nefndir
Málsnúmer 201010079

Forseti bar upp tillögu um að Árni Rúnar Þorvaldsson verði varamaður í stað Lars Imslands í umhverfis- og skipulagsnefnd og Guðrún Ingimundardóttir verði varamaður í atvinnu- og menningarmálanefnd í stað Katarzyna Wegiel.

Samþykkt.

9.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn
Málsnúmer 200901107