Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

185. fundur
4. október 2012 kl. 16:15 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir Forseti
Ásgrímur Ingólfsson aðalmaður
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson aðalmaður
Valdemar Einarsson aðalmaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir 1. varamaður
Arna Ósk Harðardóttir 1. varamaður
Hjalti Þór Vignisson (HÞV) bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
bæjarráð Hornafjarðar - 603
Málsnúmer 1209005F
Árni Rúnar lýsti yfir vanhæfi sínu til að fjalla um fundargerð bæjarráðs nr. 603.  Vék af fundi að því loknu.
Valdemar spurði um hvenær von væri á fyrstu drögum að nýju skipuriti ráðhúss. Hjalti upplýsti að hann stefndi að því að koma með tillögur í október.
Valdemar fagnaði því framtaki að fara í samstarf við einstalinga og fyrirtæki í safnamálum.
Fundargerð samþykkt.
2.
bæjarráð Hornafjarðar - 604
Málsnúmer 1209011F
Lovísa Rósa ræddi um málefni stjórnar HSSA.  Sagði að nú stefndi í allt að 30 m.kr. halla á árinu ef ekki fástleiðréttingar á þjónustusamningi.  Spurði um viðbrögð við innheimtubréfi vegna þjónustusamnings.
Valdemar sagðist harma bréf Vegagerðarinnar vegna Jökulsárlóns.  Jafnframt sagðist hann vera mótfallinn sameiningu Vegagerðarinnar og Siglingastofnunar í eina stofnun.
Árni Rúnar lýsti yfir ánægju með 17 m.kr. fjárveitingu til stofnunar Náttúrustofu Suðausturlands.  Greindi hann frá samningi við Skaftárhrepp um málið.
Hjalti upplýsti um samskipti við aðstoðarmann velferðarráðherra vegna málefna HSSA, Vegagerðina vegna deiliskipulags við Jökulsárlón og þakkaði Árna að vekja máls á fjárveitingu til Náttúrustof Suðausturlands.
Fundargerð samþykkt.
3.
bæjarstjórn Hornafjarðar - 184
Málsnúmer 1209004F
Til kynningar.
4.
Endurskoðun á aðalskipulagi
Málsnúmer 200709059

Ásgrímur fylgdi málinu úr hlaði. Í máli hans kom fram að framlögð matslýsing er lítillega breytt frá fyrri samþykkt bæjarstjórnar fyrr í haust. Skipulagsstofnun gerði smávægilegar athugasemdir sem búið er að taka tillit til. Framlögð matslýsing var samþykkt í Umhverfis- og skipulagsnefnd þann 3. október 2012. Gerði er tillaga um að bæjarstjórn samþykki framlagða matslýsingu áður en hún verði auglýst.

Forseti bar tillögu upp til atkvæða.

Samþykkt samhljóða.

5.
Umsókn um breytingu á aðalskipulagi f. sumarhúsasvæði í Stafafellsfjöllum í samræmi við deiliskipulagsbreytingar f. svæðið frá 1999
Málsnúmer 201209005
<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Ásgrímur fylgdi málinu úr hlaði. Kom fram að sveitarfélaginu hafi barist ósk frá landeigendum jarðanna Brekku og Stafafells í Lóni um að gerðar verði breytingar á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Breytingin felur í sér stækkun á frístundasvæði. Eftir breytingu munu Víður einnig verða flokkaðar sem frístundasvæði og jafnframt verði sú breyting að í greinargerð verði gert ráð fyrir 78 lóðum í stað 61 í gildandi skipulagi. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur þegar samþykkt framkomna umsókn á fundi sínum þann 3. október 2012. Gerð er tillaga um að bæjarstjórn samþykki ósk landeigenda.

Forseti bar tillögu upp til atkvæða.

Samþykkt samhljóða.

6.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn
Málsnúmer 200901107
Engar.