Bæjarstjórn Hornafjarðar
§ Sett verði á laggirnar ný safnastofnun þar sem verða þrjár deildir: bókasafn, skjalasafn og byggðasafn. Bæjarstjóri verði yfirmaður þessa forstöðumanns. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
§ Menningarmiðstöðin beri ábyrgð á Listasafni og þróun skapandi greina. Þannig verði markmiðið sem upphaflega var ætlað MMH vera í forgrunni, þ.e. að setja upp sýningar og þróa þær jafnframt því að leggja áherslu á þróun handverks á svæðinu. Með þessu er áhersla á myndlistarsýningar og þróun skapandi greina. Bæjarstjóri verði yfirmaður forstöðumanns Menningarmiðstöðvar. Einungis forstöðumaður verður starfsmaður Menningarmiðstöðvar.
Við undirritaðir bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins teljum að þær breytingar sem hér eru til umræðu séu gerðar á röngum forsendum og til þess fallnar að skaða starfsemina þegar til lengri tíma litið. Það liggur fyrir að undirrót þessara breytinga eru ákveðin vandkvæði tengd starfsmönnum og við teljum að réttara hefði verið að taka á þeim málum sérstaklega í stað þess að fara þá leið að skipta upp starfseminni og setja þar með ákveðna þætti í rekstrinum í uppnám.
Áður en farið er í jafn viðamiklar breytingar á starfsemi sem þessari er eðlilegt að hún fái vandaða umfjöllum hjá viðkomandi aðilum og í nefndum og ráðum í sveitarfélaginu. Ekki liggur fyrir heilstætt kostnaðarmat vegna þessara breytinga, né nákvæm skipting á einstökum þáttum í starfseminni. Vinnubrögð sem þessi eru til þess fallin að skaða starfsemina og því sjáum við okkur ekki annað fært en að vera á móti þessari tillögu.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks Austur-Skaftafellssýslu.
Árni Rúnar tók einnig til máls og taldi að breytingarnar myndu verða jákvæðar og þar sem m.a. yrði lögð yrði áhesla á skapandi greinar og styður tillöguna.
Hjalti Þór ræddi bókun sjálfstæðismanna og bað þá um rökstuðning á orðalagi í bókuninni þar sem greint er frá að starfsemi menningarmiðstöðvar muni skaðast og reksturinn fari í uppnám. Einnig rakti Hjalti málið í fundargerðum bæjarráðs, bókunum og skoðunum sjálfstæðismanna.
Björn Ingi gerði grein fyrir bókun sjálfstæðismanna.
Hjalti Þór sagði að orðalag í bókun sjálfstæðismanna sé ekki í takt við þá vinnu sem hefur farið fram með þeim og hann hafi þá trú að breyting í málaflokknum muni verða til þess að styrkja málaflokkinn.
Árni Rúnar lýsti skoðun sinni að breytingin gæti styrkt starfsemina í framtíðinni.
Tillagan samþykkt með 5 atkvæðum gegn 2.
Bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins vegna Samnings um rekstur heilbrigðis- og öldrunarþjónustu á vegum Sveitarfélagsins Hornafjarðar á bæjarstjórnarfundi 7. febrúar 2013. Sá samningur sem hér er til staðfestingar hefur verið 6 ár í vinnslu. Skrifað var undir samninginn með miklum lúðrablæstri af hálfu ríkisstjórnar Íslands 25. janúar síðastliðinn á Selfossi. Þrátt fyrir að aðdragandi þessarar undirskriftar hafi verið langur þá teljum við að ýmislegt vanti í samninginn. Ekkert er tekið á framtíðaruppbyggingu í þjónustu á svæðinu þar sem nefna má fjölgun einbýla og uppbyggingu hjúkrunarheimilisins allmennt, fjölgun dagvistarrýma og fleiri þætti sem íbúar hér á svæðinu eru flestir sammála um að tími sé kominn til að lagfæra. Þá er í samningnum atriði sem ástæða er til að hafa áhyggjur af. Hingað til hefir verið gert ráð fyrir greiðslu vegna dvalar- og bráðarýma á stofnuninni óháð nýtingu, í þessum samningi er fjárframlag tengt nýtingu. Þetta skapar ákveðna óvissu í rekstri stofnunarinnar og tekur út þann sveigjanleika sem að fyrri samningar gáfu og talinn var nauðsynlegur. Þessi niðurstaða nú er okkur sjálfstæðismönnum ákveðin vonbrigði.
Við þetta tækifæri lofaði ríkisstjórnin tugum milljóna í uppbyggingu hjúkrunarrýma á Suðurlandi með það að markmiði að fjölga einbýlum og auka þannig lífsgæði aldraðra íbúa á svæðinu. Ekkert af því virðist eiga að falla í skaut íbúa í Austur-Skaftafellssýslu Það hefði verið klókt af núverandi meirihluta að koma inní þennan samning bókun um einbýli og sameiginlegt átak í uppbygginu næstu ára. Þar sem ljóst má vera að þessi samningur dugar ekki til að viðhalda óbreyttum rekstri stofnunarinnar sjáum við okkur ekki annað fært en að sitja hjá við afgreiðslu þessa.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks Austur-Skaftafellssýslu.
Árni Rúnar fagnaði samningnum og fór yfir málið frá því að hann settist í bæjarstjórn, og þakkaði öllum sem hafa komið að vinnslu málsins stjórnendum, starfsfólki, stjórn HSSA og embættismönnum sveitarfélagsins, bæjarstjóra, bæjarfulltrúum úr öllum flokkum og öðrum sem að málinu komu. Nýr samningur muni leggja grunn að áframhaldandi öflugu og metnaðarfullu starfi HSSA og þeirri samþættingu á velferðarþjónustu sem hefur átt sér stað á þeim tíma sem unnið hefur verið eftir þjónustusamningi við ríkið. Einnig sagði hann að það sé ekki síst þessi þáttur í starfsemi HSSA og sveitarfélagsins sem önnur sveitarfélög hafa litið til sem hugsanlegrar fyrirmyndar í framtíðinni. Mikilvægt var að ljúka samningum til þess að eyða þeirri óvissu. Hann þakkaði einnig velferðarráðherra Guðbjarti Hannessyni fyrir að klára samninginn.
Hjalti Þór sagði að samningurinn hafi verið ásættanlegur en það þyrfti að halda áfram með þennan málaflokk og þakkaði einnig öllum þeim sem hafa komið að samningnum.
Árni Rúnar tók undir þann hluta af bókun Sjálfstæðisflokksins um endurnýjun á húnsæði HSSA.
Samningurinn samþykktur með 5 atvkæðum 2 sitja hjá.
Lýsing verkefnis og matslýsing Aðalskipulags Sveitafélagsins Hornafjarðar.
Lagt er til að auglýst verði að nýju vegna reglugerðarskila við gildistöku nýrrar Skipulagsreglugerðar nr.90/201331. Sveitarfélagið auglýsti breytingu á aðalskipulagi í haust áður en ný skipulagsreglugerð tók gildi af eldri reglugerð og er því skylt að vinna samkvæmt þeirri reglugerð. Því er lagt til að auglýst verði aftur Lýsing á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins svo það vinni breytingu á á aðalskipulagi samkv. nýrri reglugerð.
Samþykkt samhljóða.
.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Ásgrímur gerði grein fyrir málinu.
Vegna villu í auglýsingu deiliskipulagi Þjónustusvæðis Skaftafell , þarf að auglýsa að nýju deiliskipulagið. Það láðist að geta þess að umhverfiskýrsla væri með í gögnum og verður skipulagið því auglýst aftur.
Samþykkt samhljóða.
Tillagan er auglýst að nýju vegna niðurstöðu úrskurðarnefndar umhverfi- og auðlinda í úrskurði nr. 30/2012 í máli 80/2011 þar sem vísað er til 3. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 en þar segir ””Birta skal auglýsingu um gildistöku deiliskipulags í B-deild Stjórnartíðinda innan þriggja mánaða frá endanlegri afgreiðslu sveitastjórnar á tillögunni.“ ”Birta skal auglýsingu um gildistöku deiliskipulags í B-deild Stjórnartíðinda innan þriggja mánaða frá endanlegri afgreiðslu sveitastjórnar á tillögunni.
Samþykkt samhljóða.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Ásgrímur gerði grein fyrir málinu,
<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />Tillagan eru auglýst að nýju vegna niðurstöðu úrskurðarnefndar umhverfi- og auðlinda í úrskurði nr. 30/2012 í máli 80/2011 þar sem vísað er til 3. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 en þar segir "Birta skal auglýsingu um gildistöku deiliskipulags í B-deild Stjórnartíðinda innan þriggja mánaða frá endanlegri afgreiðslu sveitastjórnar á tillögunni.“
Samþykkt samhljóða.