Bæjarstjórn Hornafjarðar
Sigurjón Örn Arnarson endurskoðandi hjá KPMG sat fundinn undir þessum lið og fylgdi ársreikningi úr hlaði. Helstu niðurstöður hans er að afkoma samantekins A og B hluta er jákvæð um 176 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir 148 milljóna króna afgangi. Veltufé frá rekstri nam 327 milljónum króna sem er 60 milljón króna betri niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir. Launakostnaður jókst frá fyrra ári um 32 milljónir v. launahækkana og hækkunar á lífeyrisskuldbindingu. Skuldir og skuldbindingar A og B hluta námu 1.226 milljónum króna í árslok 2012 og lækkuðu um 51 milljónir króna á árinu. Eigið fé A og B hluta nam í árslok 2.438 milljónum króna í árslok og eiginfjárhlutfall 66,9% en var í árslok 2011 63,6%. Langtímaskuldir við lánastofnanir námu 605,8 milljónum króna í árslok 2012 og lækkuðu á árinu um 80,9 milljónum kr. Skuldahlutfall og skuldaviðmið eru skilgreind í reglugerð um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga nr. 502/2012. Samkvæmt þessari reglugerð má skuldahlutfall sveitarfélag vera að hámarki vera 150%. Skuldahlutfall A og B hluta samkvæmt ársreikningi er 63,9% í árslok 2012.
Hjalti þakkaði starfsmönnum KPMG, starfsmönnum sveitarfélagsins og bæjarstjórn fyrir góða vinnu á síðasta ári og gott utanumhald um rekstur sveitarfélagsins. Sagði hann að reikningurinn gefi til kynna góða stöðu sveitasjóðs. Lagði hann til að reikningunum yrði vísað til annarrar umræðu í bæjarstjórn.
Forseti bar upp tillögu um að vísa ársreikningum til annarar umræðu í bæjarstjórn, samþykkt með sjö atkvæðum.
Hjalti fylgdi málinu úr hlaði, gerði hann grein fyrir fyrsta viðauka við fjárhagsáætlun 2013 sem fjallað var um á bæjarráðsfundi nr. 624 þann 4. mars sl. Samkvæmt viðaukanum aukast framkvæmdir A hluta um 122,2 m.kr. og greinast á verk samkvæmt framkvæmdayfirliti. Framkvæmdirnar eru að fullu fjármagnaðar með handbæru fé. Handbært fé um áramótin 2012/2013 var hærra en fjárhagsáætlun 2013 gerði ráð fyrir um 71 m.kr og handbært fé um næstu áramót verður 51 m.kr lægra en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Fram kom að þriggja ára áætlun sýnir hvernig rekstur og efnahagsreikningur sveitarfélagsins þróast yfir tímabilið. Langtímalán lækka, handbært fé er jákvætt og viðunandi og heildarframkvæmdarammi 2014 ? 2016 lækkar um 35 m.kr. Lagði hann til að viðaukinn yrði samþykktur. Forseti bar upp tillögu að viðaukinn yrði samþykktur, samþykkt með sjö atkvæðum.
<?xml:namespace prefix = "o" ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />