Bæjarstjórn Hornafjarðar
191. fundur
2. maí 2013
kl.
16:00

00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
Forseti
Reynir Arnarson
1. varaforseti
Kristján Sigurður Guðnason
aðalmaður
Valdemar Einarsson
aðalmaður
Ásgrímur Ingólfsson
aðalmaður
Árni Rúnar Þorvaldsson
aðalmaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
1. varamaður
Arna Ósk Harðardóttir
1. varamaður
Snæfríður H. Svavarsdóttir
2. varamaður
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga og gæðastjóri
Hjalti Þór Vignisson (HÞV)
bæjarstjóri
Ásta Halldóra Guðmundsdóttir (ÁHG)
fjármálastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 628

Valdemar bar upp fyrirspurn um lið. 10 um kaup á Vöruhúsi, Ásgrímur ræddi um lið 2 umhverfis og skipulagsnefnd, aðalskipulag sveitarfélagsins og benti íbúum á að kynna sér málið.

Hjalti sagði að komið hefði til tals að kaupa Vöruhús en ekkert ákveðið um málið og greindi frá að leigan væri um 12 milljónir á ári.

Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða. Samþykkt samhljóða.

2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 629

Valdemar bar upp fyrirspurn um lið 6 og fagnar því að æfingasvæði fyrir skotveiðifólk sé í umræðu. Ásgrímur tók einnig til máls undir sama máli og fagnaði málinu.

Einnig ræddi hann 14. lið um lausagöngu hunda og greindi frá að nýtt svæði fyrir hundaeigendur sé í Lingey. Valdemar kom einnig upp undir þessum lið og benti á reglur um hundahald í sveitarfélaginu og fagnaði nýju hundasvæði. Einnig ræddi hann um kattarsamþyktir.

Hjalti ræddi um skotfélagið og greindi frá undirbúningi málsins og sagðist bjartsýnn á að nýtt æfingasvæði verði í landi Austurhóls í Skógey.

Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða. Samþykkt samhljóða.

3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 630

Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða. Samþykkt samhljóða.

4.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 190

Forseti bar fundargerðina upp til kynningar.

5.
Ársreikningar 2012 síðari umræða

Hjalti gerði grein fyrir að engar breytingar hafi orðið á milli umræðna. Lagði til að bæjarstjórn staðfesti reikninginn.

Forseti bar ársreikninga upp til atkvæða. Samþykkt samhljóða.

6.
Samþykkt um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2013

Hjalti gerði grein fyrir vinnu við breytingar á samþykktum. Sagði að ný lög um sveitarstjórninr krefjast þess að sveitarfélög setji sér nýja samþykkt. Framlögð samþykkt sé eftir fyrirmynd frá innanríkísráðuneytinu. Gerði hann grein fyrir helstu breytingum á milli umræðna sem fyrst og fremst felur í sér skýrari ákvæði um möguleika bæjarstjórnar á að framselja vald sitt til nefndar eða einstakra starfsmanna. Slíkt tíðkaðist víða, til dæmis að bæjarstjórn feli umhverfis- og skipulagsnefnd að veita leyfi fyrir minniháttar framkvæmdir.

Forseti bar samþykktina upp til atkvæða. Samþykkt samhljóða.

7.
Skipurit fyrir sveitarfélagið

Hjalti fylgdi málinu úr hlaði. Sagði að með nýju skipuriti væri sviðaskipting aflögð og stjórnkerfið flatt út. Þessi þróun hafi í raun hafist fyrir um ári síðan þegar framkvæmdastjóri fræðslu- og félagssviðs lét af störfum. Þá hafi tveir undirmenn hans orðið undirmenn bæjarstjóra. Ráðinn var fræðslustjóri með ábyrgð á skóla- og íþróttamálum. Málið hafi verið til umfjöllunar í bæjarráði og stjórnkerfi bæjarins frá því í haust. Lögfræðingur endurskoðanda sveitarfélagsins hafi rýnt í tillögurnar og komið með gagnlegar ábendingar og tillögur.

Lovísa Rósa sagði uppsetningu skipuritsins mjög góða og boðleiðir stuttar en benti á að starfslýsing bæjarstjóra ekki vera í skjalinu, sagði hann ekki vera með staðgengil samkvæmt því. Hjalti þakkaði Lovísu ábendingar. Sagðist tilbú

Valdemar ræddi um forstöðumann hafnarinnar og velti fyrir sér hvort það hefði verið rétt að ráða hafnarstjóra beint.

Reynir sagði dæmi um að minnni hafnir réðu hafnarstjóra beint.

Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða. Samþykkt með samhljóða.

8.
Skipulag safna- og menningarmála

Hjalti fylgdi málinu úr hlaði. Gerði grein fyrir þeirri breytingu sem í þessu væri falið frá því málið var síðast tekið fyrir í bæjarstjórn. Markmiðið með þessari breytingu væri að fá skarpari áherslu á annars vegar safnastarf og hins vegar starf sem tengist viðburðum og skapandi starfi.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða. Samþykkt samhljóða.

9.
Deiliskipulag á Lambleiksstöðum á Mýrum

Ásgrímur fylgdi málinu úr hlaði.

Forseti bar deiliskipulagið upp til atkvæða. Samþykkt samhljóða.

10.
Umsókn um framkvæmdaleyfi efnistöku í Austur fljóti Hornafjarðar malarnám

Hjalti gerði grein fyrir málinu. Sagði eftir samtöl við hluta af eigendum námunnar að ekki væri búið að komast að samkomulagi milli landeigenda með hvernig nýta beri námuna. Gerði hann það að tillögu sinni að bæjarstjórn feli bæjarráði að afgreiða málið.

Bæjarstjórn samþykkti að vísa málinu til bæjarráðs til fullnaðarafgreiðslu.

11.
Framkvæmdaleyfisumsókn vegna lagningu reiðleiðar milli Dynjanda og Bergár.

Ásgrímur fylgdi málinu úr hlaði og kynnti málið.

Árni Rúnar spurði hvort hestamannafélagið hafi næga fjármuni til að klárað verkið.

Hjalti sagði að sveitarfélagið ekki setja fjármuni í verkið aðeins vera leyfisveitandi.

Forseti bar umsóknina upp til atkvæða. Samþykkt samhljóða.

12.
Ósk um framkvæmdaleyfi fyrir jarðstreng

Ásgrímur fylgdi málinu úr hlaði.

Forseti bar umsóknina upp til atkvæða. Samþykkt samhljóða.

13.
Umsókn um framkvæmd á stækkun athafnasvæðis Skinneyjar-Þinganes við Krossey.

Hjalti, Reynir og Ásgrímur viku af fundi undir þessum lið. Arna Ósk Harðardóttir og Snæfriður H. Svavarsdóttur sátu fundinn undir þessum lið. Ásgerður gerði grein fyrir málinu. Sagði framkomið erindi varða stækkun á lóð Skinneyjar Þinganess í Krossey. Óskin feli það meðal annars í sér að Krosseyjarvegur lokast að hluta. Ástæða fyrir þessari breytingu er að skapa rými til húsbyggingar þar sem hægt væri að þróa áfram starfsemi félagsins og tengja saman hús sem fyrir eru til að breyta framleiðsluferlum með auknum afköstum, öryggi starfsfólks og fleira að leiðarljósi eins og fram komi í erindinu. Vitnaði Ásgerður í bókun hafnarstjórnar um málið. Þá gerði Ásgerður grein fyrir afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar um að nefndin sé jákvæð fyrir erindinu en telji nauðsynlegt að ráðast í deiliskipulagsvinnu vegna hugmyndarinnar. Ásgerður lagði til í ljósi umræðu í hafnarstjórn og umhverfis- og skipulagsnefnd að bæjarstjórn myndi fela umhverfis- og skipulagsnefnd að vinna deiliskipulag fyrir svæðið með áherslu á að Skinney Þinganes fengi rými til að þróa áfram starfsemi sína en jafnframt gæta þess að aðrir sem hagsmuni eigi á svæðinu verði jafnvel settir eftir breytingu á skipulaginu.

Valdemar tók til máls og sagði nauðsynlegt að málið færi í almenna kynnigu því þetta er mikil breyting. Einnig ræddi hann um þjóveg í þéttbýli varðandi málið.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða. Samþykkt samhljóða.

14.
Erindisbréf umhverfis og skipulagsnefndar 2013

Forseti gerði grein fyrir vinnu við breytingu á erindisbréfi. Umhverfis- og skipulagsnefnd hafi fengið erindisbréfið til umfjöllunar. Ekki hafa verið gerðar veigamiklar breytingar á erindisbréfinu en vinnan miðaði að því að samræma ýmsa hluti í erindisbréfum allra nefnda og stjórna.

Forseti bar erindisbréfið upp til atkvæða. Samþykkt samhljóða.

15.
Erindisbréf skóla,-íþrótta,og tómstundanefndar 2013

Forseti gerði grein fyrir vinnu við breytingu á erindisbréfi. Skóla,- íþrótta- og tómstundanefnd hafi fengið erindisbréfið til umfjöllunar. Ekki hafa verið gerðar veigamiklar breytingar á erindisbréfinu en vinnan miðaði að því að samræma ýmsa hluti í erindisbréfum allra nefnda og stjórna.

Forseti bar erindisbréfið upp til atkvæða. Samþykkt samhljóða.

16.
Erindisbréfi hafnarstjórnar 2013

Forseti gerði grein fyrir vinnu við breytingu á erindisbréfi. Hafnarstjórn hafi fengið erindisbréfið til umfjöllunar. Ekki hafa verið gerðar veigamiklar breytingar á erindisbréfinu en vinnan miðaði að því að samræma ýmsa hluti í erindisbréfum allra nefnda og stjórna.

Forseti bar erindisbréfið upp til atkvæða. Samþykkt samhljóða.

17.
Erindisbréf félagsmálanefndar 2013

Forseti gerði grein fyrir vinnu við breytingu á erindisbréfi. Félagsmálaráð hafi fengið erindisbréfið til umfjöllunar. Helsta breyting sem gerð er tillaga um er breyting á nafni nefndarinnar úr félagsmálaráði í félagsmálanefnd. Ekki hafa verið gerðar veigamiklar breytingar á erindisbréfinu að öðru leyti en vinnan miðaði að því að samræma ýmsa hluti í erindisbréfum allra nefnda og stjórna.

Forseti bar erindisbréfið upp til atkvæða. Samþykkt með samhljóða.

18.
Erindisbréf atvinnu og menningamálanefndar 2013

Forseti gerði grein fyrir vinnu við breytingu á erindisbréfi. Atvinnu- og menningarmálanefnd hafi fengið erindisbréfið til umfjöllunar. Ekki hafa verið gerðar veigamiklar breytingar á erindisbréfinu en vinnan miðaði að því að samræma ýmsa hluti í erindisbréfum allra nefnda og stjórna.

Forseti bar erindisbréfið upp til atkvæða. Samþykkt samhljóða.

19.
Erindisbréf stjórnar HSSA 2013

Forseti gerði grein fyrir vinnu við breytingu á erindisbréfi. Stjórn HSSA hafi fengið erindisbréfið til umfjöllunar. Ekki hafa verið gerðar veigamiklar breytingar á erindisbréfinu en vinnan miðaði að því að samræma ýmsa hluti í erindisbréfum allra nefnda og stjórna.

Valdemar benti á að varamenn þurfi að fá aðgang að fundargátt.

Forseti bar erindisbréfið upp til atkvæða. Samþykkt samhljóða.

20.
Kosningar í nefndir

Eftirfarandi tillögur bornar upp:

Friðrik Jónas Friðriksson verði varamaður í umhverfis- og skipulagsnefnd í stað Friðriks Þór Ingvaldssonar fyrir B lista.

Bergþóra Ólafía Ágústsdóttir verði varamaður í umhverfis-og skipulagsnefnd í stað Björns Þórarins Birgissonar fyrir D lista.

Ingólfur Guðni Einarssonar verður varamaður í atvinnu-og menningamálanefnd í stað Herdís Waage Ingólfsdótttur fyrir D lista.

21.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn