Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

195. fundur
12. september 2013 kl. 16:00 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson Forseti
Ásgerður Kristín Gylfadóttir 1. varaforseti
Ásgrímur Ingólfsson aðalmaður
Björn Ingi Jónsson 2. varaforseti
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Valdemar Einarsson aðalmaður
Guðrún Ingimundardóttir
Hjalti Þór Vignisson (HÞV)
Bryndís Bjarnarson
Ásta Halldóra Guðmundsdóttir (ÁHG)
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 640
Málsnúmer 1308006F

Valdemar ræddi um stefnumótun safnamála og fagnaði því að vinnan sé hafin.  <?xml:namespace prefix = "o" ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Fundargerð samþykkt.
 
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 641
Málsnúmer 1308013F

Ásgrímur gerði 2ja tunnu kerfi að umtalsefni.  Upplýsti hann að fræðsluefni sé í smíðum um innleiðingu nýja kerfisins og fyrirkomulag við hirðingu.  Ræddi hann einnig um gjaldskrá sem kemur til með að breytast en niðurstaða er ekki komin í þá skoðun.  Nokkrir kostir séu í stöðunni.<?xml:namespace prefix = "o" ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Valdemar lýsti yfir áhyggjum af fjárhagsstöðu HSSA og hvatti til þess að ráðamönnum þjóðarinnar yrði haldið við efnið í þeim efnum.  Ítrekaði Valdemar að slæmt væri að fundargerðir undirnefnda bærust ekki bæjarráði á tilsettum tíma.  Lagði áherslu á vönduð vinnubrögð.

Ásgerður greindi frá heimsókn fulltrúa sveitarfélagsins til heilbrigðisráðherra.  Upplýsti að fram hafi komið upplýsingar um leiðir til að sækja frekari tekjur.  Þá minnti Ásgerður á grein um ljósmóður- og læknamál sem væri á heimasíðu sveitarfélagsins.  Hún fagnaði þeirri vinnu sem átt hefur sér stað til að auka flokkun á sorpi.  Að endingu ræddi hún um bréf um hvernig bæta megi viðbrágðsáætlanir hér heima fyrir sem vísað hafi verið til almannavarnarnefndar.

Fundargerð samþykkt.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 642
Málsnúmer 1309002F

Björn Ingi ræddi um komur farþegaskipa og áætlaðan ágóða af þeim.  Fagnaði hann að hafnarstjórn ætli í dýpri vinnu í þeim málum.  Sagði að sveitarfélagið sjálft hafi ef til vill ekki háar tekjur af þessum heimsóknum en tekjur renna til ferðaþjónustufyrirtækja.  Í þessu samhengi ræddi hann um innsiglingu til Hafnar og mikilvægi þess að hamra á viðeigandi stofnunum og þingmönnum um úrlausnir í innsiglingarmálum.<?xml:namespace prefix = "o" ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Reynir upplýsti um vinnu hafnarstjórnar í málum er varða skemmtiferðaskip.

Fundargerð samþykkt.
4.
Endurskoðun á aðalskipulagi
Málsnúmer 200709059

Ásgrímur fylgdi málinu úr hlaði.  Sagði að mikil vinna hafi farið fram á vegum umhverfis- og skipulagsnefndar á síðustu mánuðum og þakkaði nefndarfólki, starfsmönnum og ráðgjöfum samstarfið.  Sagði að drög að skipulaginu hafi legið frami á heimasíðu sveitarfélagsins í sumar til kynningar en núna færi það í formlegt auglýsinga- og kynningarferli.  Greindi Ásgrímur frá því að aðalskipulag væri  stefna bæjarstjórnar um þróun sveitarfélagsins varðandi landnotkun, byggðaþróun, byggðamynstur, samgöngu- og þjónustukerfi og umhverfismál.    Ásgrímur greindi frá helstu breytingum frá gildandi skipulagi, bæði í þéttbýli og sveitum.  Lagði að lokum til að endurskoðun á aðalskipulagi yrði vísað til síðari umræðu og til skoðunar hjá viðeigandi aðilum og stofnunum.<?xml:namespace prefix = "o" ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Guðrún ræddi um ferðaþjónustu sem ört vaxandi atvinnugrein.  Velti hún upp þeirri hugmynd hvort ekki mætti setja reglur í skipulaginu hvar megi vera með ferðaþjónustu í íbúðabyggð og hvar ekki.  Sagði hún að ástandið væri ekki nægjanlegt gott eins og það er núna.

Ásgrímur þakkaði Guðrúnu fyrir ábendingunni.  Sagði Ásgrímur að umhverfis- og skipulagsnefnd hafi fjallað nokkuð um þetta álitamál og tók undir mikilvægi þess að þetta yrði skoðað nánar.  Sagði reyndar að ýmislegt í lögum stæði að hluta í vegi fyrir að setja mætti slíkar hömlur á nýtingu eigna.

Björn Ingi fagnaði þeim áfanga sem hefur náðst með því að leggja endurskoðun fyrir til fyrri umræða. Sagði hann að vinnan hafi staðið yfir í næstum sjö ár og vonandi væri útkoman góð í réttu hlutfalli við það.  Lagði hann áherslu á mikilvægi þess að íbúar sendu inn athugasemdir og tillögur sem bætt gæti aðalskipulagið enn frekar.

Forseti bar tillöguna undir atkvæði. 

Samþykkt samhljóða.
5.
Deiliskipulagi á Meðalfelli
Málsnúmer 201301057
Ásgrímur fylgdi málinu úr hlaði.  Greindi frá að umhverfis-og skipulagsnefnd hefur afgreitt deiliskipulagið.  Málið hafi farið sína lögformlegu leið og engar athugasemdir bárust.
Forseti bar skipulagið upp til atkvæða.
Samþykkt.
6.
Ákvörðun um að taka lán hjá Sparisjóð Hornafjarðar.
Málsnúmer 201211092

Hjalti Þór fylgdi málinu úr hlaði og las upp eftirfarandi bókun. Sveitarfélagið Hornafjörður ákveður hér með og samþykkir að taka lán hjá Sparisjóði Hornafjarðar, útibúi Sparisjóðs Vestmannaeyja, að fjárhæð allt að 200.000.000.- kr. ***tvöhundruðmilljónir íslenskra króna*** til 10 ára í senn, í samræmi við drög að lánasamningi dagsettum til bráðabirgða 03.september 2013. Lánið grundvallast á lánstilboði frá Sparisjóð Hornafjarðar sem dagsett er 14. júní 2013. Lánið skal bera óverðtryggða vexti - breytilega - í samræmi við ákvæði lánasamninginn sem liggur fyrir fundinum. Er lánið tekið til að fjármagna framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins tengt uppbyggingu skóla- og íþróttamannvirkja og gatna- og veitumannvirkja.<?xml:namespace prefix = "o" ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Jafnframt er Hjalta Þór Vignissyni, kt. 240178-4009, bæjarstjóra, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Sveitarfélagsins Hornafjarðar, sbr. 5. mgr. 55. gr. sveitastjórnarlaga nr. 138/2011, að undirrita lánasamningin við Sparisjóð Hornafjarðar sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.

Samþykkt með öllum greiddum athkvæðum.

Hjalti greindi frá því að um lánalínu væri að ræða sem fæli í sér að sveitarfélagið gæti tekið lánið að fullu eða aðeins að hluta.  Á þessu ári yrði heimildin alls ekki nýtt að fullu og þörfin fyrir lántöku ársins 2014 kæmi betur í ljós í tengslum við fjárhagsáætlunarvinnu í haust.  Sagði að kjörin á láninu væru góð sem undirstrikaði að lánveitandi mæti stöðu rekstrar og efnahags sveitarfélagsins sterka.

7.
Grenndarkynning v. umsóknar um byggingarleyfi
Málsnúmer 201308048

Ásgrímur fylgdi málinu úr hlaði.  Sagði að málið varðaði breytingu á Fiskhól 11. Grenndarkynning hefur farið fram að beiðni umhverfis-og skipulagsnefndar og engar athugasemdir hafi borist.  Lagði til að byggingarleyfi yrði veitt.<?xml:namespace prefix = "o" ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Forseti bar tillögu upp til atkvæða.

Samþykkt samhljóða.
8.
Umhverfisstefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 201305011
Ásgrímur kynnti vinnu við gerð umhverfistefnu sveitarfélagsin.   Umhverfis- og skipulasnefnd hefur haft veg og vanda með henni en jafnframt hefur hún verið send öllum nefndum sveitarfélagsins til umsagnar.  Sagði Ásgrímur að ekki hafi áður verið gerð heildstæða stefna í umhverfismálum og því væri þetta mikilvægt skref.  Greindi hann frá því að framkvæmdaáætlun á grunni þessarar stefnumótunar væri í smíðum en endanlega útfærsla og samþykkt hennar færi saman við fjárhagsáætlunarvinnu árið 2014.
Samþykkt.
9.
Kosningar í nefndir
Málsnúmer 201010079
Forseti greindi frá því að Nína Sibyl hafi óskað eftir lausn frá störfum í hafnarstjórn.  Lagði forseti til að Hannes Ingi Jónsson tæki sæti aðalstjórn og Sigríður Lárusdóttur yrði varamaður í stað Hannesar Inga Jónssonar.
10.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn
Málsnúmer 200901107
Engar hafa borist