Bæjarstjórn Hornafjarðar
Björn Ingi tók til máls undir sjötta lið og ræddi um stjórnskipulag Vatnajökulsþjóðgarðs og óskaði nýjum formanni Hjalta Þór til hamingju með starfið. Reynir tók undir hamingju óskir til Hjalta Þórs . Hjalti Þór sagðist hafa stýrt einum fundi stjórnar og það væri metnaður til að byggja upp þjóðgarðinn. Ræddi hann um framtíð garðsins og staðsetningu yfirstjórnar hans. Björn Ingi tók einnig upp undir 11. lið lagfæring og endurbætur á Sindrabæ spurði hvort kynning á heimasíðu og fleiri stöðum hefði fengið jákvæða eða neikvæða umfjöllum. Reynir og Ásgerður sögðust hafa fengið viðbrögð.
Ásgrímur fylgdi málinu úr hlaði. Sagði að hugmynd af deiliskipulagi hafi fengið umfjöllun í bæjarráði og umhverfis og skipulagsnefnd. Lagði til að bæjarstjórn samþykki að farið verði í gerð deiliskipulags við Drápskletta.
Samþykkt samhljóða.
<?xml:namespace prefix = "o" ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />Ásgrímur fylgdi málinu úr hlaði. Sagði að hugmynd af deiliskipulagi við Holt á Mýrum hafi fengið umfjöllun í bæjarráði og umhverfis- og skipulagsnefnd. Lagði til að bæjarstjórn samþykki að farið verði í gerð deiliskipulags á Holti á Mýrum.
Samþykkt samhljóða.
Ásgrímur fylgdi málinu úr hlaði. Kynnti hugmynd af deiliskipulagi fyrir útbæ Hafnar. Sagði að málið hafi fengið umfjöllun í bæjarráði og umhverfis- og skipulagsnefnd. Til stendur að gera heilstætt deiliskipulag fyrir útbæ Hafnar þar sem ekki er til heilstætt deiliskipulag fyrir svæðið í dag. Lagði til að bæjarstjórn samþykki að unnin verði lýsing að svæðinu og í framhaldinu verði deiliskipulagstillagan sjálf formuð og fari í framhaldinu í lögformlegt samráðsferli.
Samþykkt samhljóða.
Hjalti fylgdi málinu úr hlaði. Sagði stefnuna verða hluta af starfsmannastefnu sveitarfélagsins. Samþykkt samhljóða.