Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

197. fundur
7. nóvember 2013 kl. 16:00 - 16:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson Forseti
Kristján Sigurður Guðnason 1. varaforseti
Björn Ingi Jónsson 2. varaforseti
Ásgrímur Ingólfsson aðalmaður
Valdemar Einarsson aðalmaður
Guðrún Ingimundardóttir aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir bæjarstjóri
Ásta Halldóra Guðmundsdóttir (ÁHG) fjármálastjóri
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 646
Málsnúmer 1310003F
Guðrún ræddi um stikun gönguleiða á Breiðamerkursandi og fagnaði þeim hún hvatti til þess að með frekri uppbyggingu þjóðgarðs yrði gert meira úr merkingum á aðkomu inn í þjóðgarðinn. Fundargerð samþykkt.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 647
Málsnúmer 1310005F

Björn Ingi ræddi um innanlandsflugsamgöngur sagðist hafa áhyggjur af framtíð þeirra miðað við farveg sem þær eru í. Ásgerður tók undir orð Björns Inga sagði samning við Erni vera út árið 2014.

Forseti bar upp tillögu að bæjarstjórn geri bókun bæjarráðs að sinni.

"Bæjarstjórn Hornafjarðar leggur ríka áherslu á að þjónustusamningur um rekstur heilbrigðis- og öldrunarmála verði virtur og starfað verði samkvæmt honum hvort sem að sameiningu heilbrigðisstofnana verði eða ekki. Jafnframt er mikilvægt að virða til lengri tíma sjálfstæði Hornfirðinga varðandi rekstur málaflokksins sem hefur skilað margvíslegum árangri frá því að verkefnið var fyrst lagt á herðar sveitarfélagsins á 10. áratug síðustu aldar. Frumskilyrði er að grunnþjónusta haldist í héraði og uppbygging aðstöðu fylgi kröfum og þörfum nútímans. Sveitarfélagið Hornafjörður lýsir sig tilbúið til viðræðna, ef aðrar stórar sameiningar heilbrigðistofnanna ná fram að ganga"

Fundargerð samþykkt.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 648
Málsnúmer 1310012F
Fundargerð samþykkt.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 649
Málsnúmer 1310015F
Björn Ingi ræddi málefni Matís og áhyggjur af framvindu starfstöðvar á Höfn.
Fundargerð samþykkt.
5.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 196
Málsnúmer 1309008F
Lögð fram til kynningar.
6.
Álagningareglur 2014
Málsnúmer 201310062
Ásgerður fylgdi málinu úr hlaði.

Álagningarreglur 2014<?xml:namespace prefix = "o" ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Útsvar 14,48 %

Fasteignaskattur A á íbúðahúsnæði 0,50 % af fm ( hám. 0,625%)

Fasteignaskattur B á opinberar stofn. 1,32 % af fm ( hám. 1,32% )

Fasteignaskattur C á atvinnuhúsnæði 1,62 % af fm ( hám. 1,65%)

Lóðaleiga 1 % af lóðamati

Holræsagjöld 0,30 % af fasteignamati

Vatnsgjöld 0,18 % af fasteignamati

Lagði til að bæjarsjtórn samþykki álagningareglur 2014. Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Samþykkt samhljóða.

7.
Fjárhagsáætlun 2014 - fyrri umræða
Málsnúmer 201309012
Ásgerður kynnti fjárhagsáætlun 2014
Helstu niðurstöður áætlunarinnar fyrir A og B hluta árin 2014 -2017 eru eftirfarandi:

2014
2015
2016
2017

Rekstrarniðurstaða (m.kr.)
215.085
235.148
237.606
237.978

Skuldir í hlutfalli af tekjum
65,21%
61,98%
58,31%
54,23%

Framkvæmdir (m.kr.)
340.500
200.000
200.000
325.000

Framlegð (EBIDTAR) %
17,65%
18,68%
18,74%
18,74%

Veltufé frá rekstri (m.kr.)
340.196
367.243
372.112
376.160

Handbært fé í árslok (m.kr.)
44.730
102.700
161.042
93.744

Afborganir langtímalána (m.kr.)
(102.820)
(109.274)
(113.770)
(118.458)

Ný lántaka A-B hluta (m.kr.)
100.000


Langtímalán við lánastofnanir
665.963
582.435
491.139
415.902

Langtímalán á hvern íbúa
305.487
267.172
225.293
190.780

Skatttekjur hvern íbúa
729.183
729.183
729.183
729.183


Björn Ingi benti á að framkvæmdaramminn frá árinu 2013 hafi aukist og viðaukar hafi verið lagðir fram á árinu.
Sagði framkvæmdaramma árana 2015-2016 óeðliega lágan miðað við undanfarin ár, það væri mikilvægt að taka götur og gangstéttir og bæta. Ásgrímur sagðist samála Birni Inga að gott væri að setja fjármuni í götur og gangstéttir, ekki vera gott að sveitarfélagið framkvæmi of mikið miðað við stöðu atvinnulífs. Ásgerður þakkaði starfsfólki fjármálasviðs og bæjarfulltrúum. Sagði á milli umræðna yrði tekið tillit til umræðu um framkvæmdir og stofnbúnað.
Vísað til seinni umræðu bæjarstjórnar.
Samþykkt samhlóða.
8.
Þriggja ára áætlun 2015-2017 - fyrri umræða
Málsnúmer 201310084
Ásgerður kynnti þriggja ára áætlun 2015-2017 vísað er til fyrri bókunar undir liðnum fjárhagsáætlun 2014 fyrri umræða.
Vísað til seinni umræðu bæjarstjórnar.
Samþykkt samhlóða.
9.
Safnastefna í Sveitarfélaginu Hornarfirði
Málsnúmer 201308036
Kristján greindi frá að 1. janúar 2013 tóku ný safnalög gildi, öll söfn falla undir nýju lögin ef þau eru viðurkennd söfn. Það fyrsta sem breyttist með nýum lögum er að söfnin þurfa viðurkenningu til að starfa sem slík.

Sagði Safnastefnu vera að mestu nýtt plagg en byggir á grunnatriðum safnastefnu þjóðminjasafnsins. Verklagsreglurnar eru hins vegar alveg nýjar. <?xml:namespace prefix = "o" ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Lagði

til að bæjarstjórn samþykki framlagða Safnastefnu Hornafjarðarsafna 2013-2017.

Guðrún fagnaði safnastefnunni, sagði að vefsíðan Sarpur.is vera mjög áhugaverða þar sem fólk geti farið á byggðarsöfn heima hjá sér.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

Samþykkt samhljóða.
10.
Stofnskrá Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar
Málsnúmer 201311002
Kristján greindi frá að breyta þarf stofnskrá vegna breytinga á safnalögum, 4. og 7. grein Stofnskrár Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar frá 2010, stangast á við hin nýju lög sem sett voru 1. janúar 2013.<?xml:namespace prefix = "o" ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Lagði til að bæjarstjórn samþykki nýja stofnskrá. Björn Ingi gerði að umtalsefni að heiti Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar væri enn í stofnskrá og fundarboð síðast fundar atvinnu-og menningarmálanefndar. Björn Ingi gerir fyrirvara um nafn og kennitala stofnunarinnar séu lögleg.
Forseti bar tillögna upp til atkvæða með fyrirvara um að að nafn og kennitala séu lögleg.
Samþykkt samhljóða.
11.
Búnaðarstefna í Sveitarfélaginu Hornafirði
Málsnúmer 201212048
Kristján fylgdi málinu úr hlaði. Sagði að vinna við gerð búnaðarstefnu hafi byrjað í desember 2012. Grunnur stefnunnar er unnin af Hjalta Þór Vignissyni fyrrverandi bæjarstjóra í samvinnu við atvinnu- og menningarnefnd og Búnaðarsamband Austur Skaftafellssýslu og bæjarráð. Sagði væntingar og framtíðarsýn stefnunnar stuðli að sjálfbærri þróun, nýliðun í landbúnaði, treysta bygggð, auka virði landbúnaðarframleiðslu og bæta afkomu íbúa í sveitum. <?xml:namespace prefix = "o" ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Markmið að styrkja enn frekar félagslegan grunn til sveita, auka framboð á menntun og stuðla að stöðugum lærdómi, rannsóknum og þróun, nýsköpun.

Lagði til að bæjarstjórn samþykki Búnaðarstefnuna.

Ásgrímur sagði frá ráðstefnu um Hagsmuni dreifbýlis, sagði formann búnaðarsambandsins koma og undirrita stefnuna á ráðstefnunni.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.

12.
Aðalskipulag breyting - Svínafell, Stafafellsfjöll, Brekka
Málsnúmer 201306033

Ásgrímur fylgdi málinu úr hlaði sagði umhverfis-og skipulagsnefnd hafa farið yfir athugasemdir við skipulagstillöguna og undirbúið svör til þeirra aðila sem sendu inn athugasemdir. <?xml:namespace prefix = "o" ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Helstu athugasemdir sem voru gerðar eru vegna sumarhúsabyggðar í Staffellsfjöllum, ýmsar athugasemidr bárust td. vegna vegstæðis, vatnavaxta í Jökulsá og gróðurfars. Mælti með að bæjarstjórn geri svör umhverfis-og skipulagsnefndar að sínum og samþykki breytingu á aðlalskipulagi Svínafelli, Stafafellsfjöllum og Brekku.

Björn Ingi sagði að nefdin hafi fjalla um öryggisþætti og aðkomu í sumarhúsabyggð, mikilvægt væri að sveitarfélagið tryggi að vegurinn um svæðið verði ekki hindranir fyrir björgunartæki. Guðrún taldi að það væri hlutverk landeigenda sem ætti að sjá um vegi á svæðinu.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða og bæjarstjórn geri svör umhverfis-og skipulagsnefndar að sínum.

Samþykkt samhljóða.

13.
Deiliskipulag HSSA
Málsnúmer 201211099
Ásgrímur fylgdi málinu úr hlaði sagði að lýsing hafi farið fram og engar ábendingar hafa borist. Skipulagsstofnun gerir ekki athugasemdir við lýsinguna. Greindi frá að kynningafundur hafi verið hann haldinn 4. nóvember sl.Í deiliskipulagstillögunni er gert ráð fyrir frekari uppbyggingu við Heilbrigðistofnun Suðausturlands til að mæta auknum kröfum varðandi aðbúnað samhliða því að bæta þjónustu við íbúa sveitarfélagsins. Auk þess er gert ráð fyrir íbúðarhúsum á Júllatúni sem verða á einni hæð og þakgerð í samræmi við þjónustuíbúðir sem eru á deiliskipulagstillögu.Landnotkun er ekki í samræmi við núgildandi aðalskipulag og þarf því að auglýsa skipulagstillöguna samkvæmt nýju aðalskipulagi sem er í kynningu. Leggur til að skipulagstillagan verði samþykkt og fari í lögformlegan farveg og vísað til annarrar umræðu í bæjarstjórn.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða. Samþykkt samhljóða að vísa tillöguni til annarrar umræðu.
14.
Grenndarkynning Seljavöllum 2
Málsnúmer 1308052
Ásgrímur fygldi málinu úr hlaði sagði umhverfis-og skipulagsnefnd hafi farið í grenndarkynningu vegna bygginga á landi Seljavalla 2. Engar athugasemdir hafi borist.
Lagði til að bæjarstjórn gefi framkvæmdaleyfi.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
15.
Deiliskipulag Fjallsárlón
Málsnúmer 201309050
Ásgrímur fylgdi málinu úr hlaði. Sagði hugmynd af deiliskipulagi við Fjallsárlón hafi fengið umfjöllun í bæjaráði og umhverfis-og skipulagsnefnd.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki að farið verði í gerð deiliskipulags á Fjallsárlóni.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða og sagði landeiganda sem er ríkið komi að vinnunni.
Ásgerður benti á að bæjarráð samþykti að farið yrði í nefndarvinnu um leyfisveitingar á þjóðlendum sem kemur fyrir næsta bæjarráð.
Björn Ingi sagði næst þurfa vinna að lýsingu og hvort Fjallsárlón verði næsta náttúruperla í stað Jökulsárlóns það væri mikilvægt að velta fyrir sér hvort eigi að setja hús á mörgum stöðum við lón í sýslunni. Ásgrímur tók undir orð Björns Inga um að ekki væri gott að setja bygginar á mörgm stöðum í sýslunni.
Samþykkt samhljóða.
16.
Deiliskipulag við Hnappavelli
Málsnúmer 201310035
Ásgrímur fylgdi málinu úr hlaði, sagði hugmynd af deiliskipulagi við Hnappavelli hafa fengið umfjöllun í bæjarráði og umhverfis-og skipulagsnefnd. Lagði til að bæjarstjórn samþykki að fara í gerð deiliskipulags við Hnappavelli.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
17.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn
Málsnúmer 200901107