Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

201. fundur
3. apríl 2014 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson Forseti
Ásgerður Kristín Gylfadóttir bæjarstjóri
Kristján Sigurður Guðnason 1. varaforseti
Ásgrímur Ingólfsson aðalmaður
Guðrún Ingimundardóttir aðalmaður
Lovísa Rósa Bjarnadóttir 1. varamaður
Grétar Már Þorkelsson 2. varamaður
Ásta Halldóra Guðmundsdóttir (ÁHG) fjármálastjóri
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 667
Málsnúmer 1403001F
Ásgrímur tók til máls undir lið 7 málefni Skotfélagsins, fagnaði að félagið er búið að fá svæði fyrir starfsemi sína.
Spurði einnig um lið 8 um verklok á lagningu ljósleiðara í dreifbýli.
Ásgerður greindi frá að búið er að skrifa undir samning við Skotfélagið. Sagði að búið sé að ganga frá samning við verktaka um lagningu ljósleiðara og stefnt að verklokum í vor. Hún svaraði fyrirspurnar Valdemars Einarssonar frá 200 bæjarstjórnarfundi um breytingu á sorpmagni í sveitarfélaginu frá október 2013 til febrúar 2014. Ásgrímur greindi frá að sveitarfélagið hefur fest kaup á kurlara til að kurla niður timbur og sagði það gæti minnkað sorpmagn.
Fundargerð samþykkt.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 668
Málsnúmer 1403003F
Kristján tók til máls undir lið atvinnu-og menningamálanefndar greindi frá að Ragnar Imsland hafi hlotið menningarverðlaunin í ár. Ásgrímur tók til máls undir lið 7 las upp bókun bæjarráðs og benti á að Björn Ingi efaðist um kaupin á Vöruhúsinu, hann spurði hvort Lovísa Rós hefði einnig efasemdir um kaupin. Lovísa sagði óeðlillegt að ákveiðið sé að kaupa húsið með því tilliti að setja kaupverðið í fjárhagsáætlun sem gefur seljanda vísbendingu um verð, sagði að Vöruhúsið væri vel staðsett og starfsemi þess góð. Lovísa spurði um samstarf við sveitarfélagið Harku í Eislandi.
Ásgerður greindi frá að ekki væri búið að skrifa undir samninga vegna kaupa á Vöruhúsi verið væri að meta ástand hússins og talan sem var sett í fjárhagsáætlun er byggð á viðræðum fyrrverandi bæjarstjóra við eigendur Vöruhúss.
Ásgerður sagði fulltrúa frá skóla í Harku hafi komið í heimsókn og í framhaldi hafi komið ósk frá stjórnsýslunni í Harku um að koma í heimsókn til Hornafjarðar.
Fundargerð samþykkt.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 669
Málsnúmer 1403010F
Kristján tók til máls undir lið eitt atvinnu og menningamálanefnd greindi frá heimsókn nefndarinnar í Vöruhúsið sagði þar væri starfsemin í miklum blóma og sagði mikilvægt að festa kaup á húsnæðinu.
Fundargerð samþykkt.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 670
Málsnúmer 1403015F
Fundargerð samþykkt.
5.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 200
Málsnúmer 1402007F
Fundargerð til kynningar.
6.
Ársreikningur 2013
Málsnúmer 201402077
Sigurjón Örn Arnarson endurskoðandi hjá KPMG kynnti helstu niðurstöður ársreikningsins.
Ásgerður K. Gylfadóttir bæjarstjóri þakkaði starfsmönnum KPMG, sveitarfélagsins og bæjarstjórn fyrir góða vinnu. Hún sagði ársreikninginn gefa til kynna góða stöðu sveitarfélagsins. Fram kom að fjárfest var fyrir 386 milljónir í framkvæmdum í sveitarfélaginu 2013 þar sem viðhald við götur og opin svæði var fyrirferðarmest, 132 milljónir kr. Endurbætur við Heppuskóla 104 milljónir, Gamlabúð 61 milljón og nýbygging við Krakkakot 41. milljón. Bæjarstjóri benti á að stærsti málaflokkur sveitarfélagsins, fræðslumálin sem velta tæpum 680 milljónum á ári hafi verið alveg á áætlun og hrósaði hún stjórnendum og starfsfólki þess málaflokks fyrir þann góða árangur.
Helstu niðurstöður ársins 2013 eru: Niðurstaða A og B hluta er jákvæð um 228,7 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir 181,8 milljóna króna afgangi. Veltufé frá rekstri nam 370,8 milljónum króna sem er 73,4 milljón króna betri niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir. Launakostnaður jókst frá fyrra ári um 83 milljónir v. launahækkana , hækkunar á lífeyrisskuldbindingu og björgunarlauna. Skuldir og skuldbindingar A og B hluta námu 1.248 milljónum króna í árslok 2013 og hækkuðu um 42,4 milljónir króna á árinu. Eigið fé A og B hluta nam í árslok 2.682 milljónum króna og eiginfjárhlutfall var 68% en var í árslok 2012 66,9%. Langtímaskuldir við lánastofnanir námu 625,6 milljónum króna í árslok 2013 og hækkuðu á árinu um 20,0 milljónir. Skuldahlutfall og skuldaviðmið eru skilgreind í reglugerð um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga nr. 502/2012. Samkvæmt þessari reglugerð má skuldahlutfall sveitarfélag vera að hámarki vera 150%. Skuldahlutfall A og B hluta samkvæmt ársreikningi er 62% í árslok 2013.
Bæjarstjóri sagði niðurstöðu ársins góða og gefa góðan tón fyrir áframhaldandi rekstur sveitarfélagsins, fjárfestingar og framkvæmdir. Lagði hún til að ársreikningi 2013 yrði vísað til seinni umræðu í bæjarstjórn.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum að vísa ársreikningum til síðar umræðu.
7.
Viðauki 1 við fjárhagsáætlun 2014
Málsnúmer 201403009
Bæjarstjóri fór yfir breytingar sem felast í viðauka 1 við fjárhagsáætlun ársins 2014. Fyrirséð er að fráveituframkvæmdir verða ekki eins miklar og fyrirhugað var vegna kröfu Umhverfisstofnunnar um ákveðnar rannsóknir svo hægt sé að leyfa framkvæmdirnar. Því er fjármagn fært úr fráveitu í framkvæmdir sem tengjast uppbyggingu gámaports, fegrun svæðis við Miðbæ og framkvæmdir við sorpgryfju. Ekki er lögð til breyting á heildarframkvæmdafé sem er 341 milljón heldur eingöngu tilfærslu milli málaflokka. Viðaukinn var samþykktur á 667. fundi bæjarráðs þann 10. mars og vísað til bæjarstjórnar og lagði bæjarstjóri til að bæjarstjórn samþykkti hann.
Forseti bar tillöguna upp til afgreiðslu.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Gjaldskrá Slökkviliðs Hornafjarðar
Málsnúmer 201403042
Bæjarstjóri fylgdi málinu úr hlaði. Ný gjaldskrá fyrir slökkviliðið gerir slökkviliðsstjóra er kleift að innheimta gjöld fyrir þjónustu samkvæmt heimildum í 3. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000.
Gjaldskráin felur í sér annars vegar gjaldtöku fyrir lögbundin verkefni og hins vegar sérstök gjaldtaka fyirr sérstök verkefni og þjónustu slökkviliðs.
Gjaldskrá samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Endurskoðun á aðalskipulagi
Málsnúmer 200709059
Ásgrímur fylgdi málinu úr hlaði og greindi frá vinnu við endurskoðun á aðalskipulagi sveitarfélagsins 2012-2030 sem hefur staðið yfir frá árinu 2007. Í upphafi var starfshópur skipaður um verkefnið og vann grunnvinnu endurskoðunarinnar. Tvær bæjarstjórnir hafa komið að málinu og það kynnt í nefndarkerfi sveitarfélagsins. Boðað var til búafunda með það að markmiði að afla upplýsinga og öðlast skilning á sjónarmiðum, hugmyndum og væntingum íbúa um stöðu og framtíðarþróun sveitarfélagsins. Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum 04.11. 2010 að hefja endurskoðun á aðalskipulagi. Formleg vinna hófst í byrjun árs 2012 og var verkefninu stýrt af umhverfis-og skipulagsnefnd ásamt skipulagsráðgjöfum Glámu Kím og VSÓ.
Megin markmið og áherslur með endurskoðun aðalskipulagsins voru:
Að efla byggð og landnotkun með áherslu á heilbrigði og öryggi þar sem efnahagslegar, félagslegar og menningarlegar þarfir eru hafðar að leiðarljósi.
Skynsamleg og hagkvæm nýting lands og landsgæða, að tryggja vernd landslags, náttúru og menningarverðmæta og koma í veg fyrir spjöll og ofnýtingu.
Að almannahagsmunir ráði för við opinberar ákvarðanir.
Að stuðla að gegnsærri og opinni stjórnsýslu þar sem allir íbúar eigi kost á að koma skoðun sinni á framfæri.
Faglegan undirbúning mannvirkjagerðar.
Í auglýsingaferlinu bárust athugasemdir, brugðist hefur verið við þeim og bæjarstjórn samþykkti á 200 fundi sínum að gera svör umhverfis-og skipulagsnefndar að sínum.
Breytingar voru gerðar á tillögunni í kjölfar athugasemda sem bárust eftir auglýsingu, á 200 bæjarstjórnarfundi var gerð grein fyrir þeim helstu en frá þeim fundi hafa eftirfarandi breytingar verði gerðar:
Bætt inn klausu um að heimilt sé að starfrækja verslun á athafnarsvæði AT 1.
Breytingar eru gerðar á fyrirmælum í greinargerð um heimagistingu í kafla 14. 1 íbúabyggð á Höfn þar sem vísað er í starfsleyfisskilyrði fyrir gististaði, heimagistingu, sem Umhverfisstofnun gefur út.
Einu efnistökusvæði-og efnislosunarsvæði E 85 er bætt við- á Austurfjöru.
Svæði fyrir íbúabyggð, verslun og þjónustu og frístundabyggð eru endurnúmeruð.
Í greinargerð er heimild til að reisa vinnubúðir á framkvæmdatíma vegna tiltekinna framkvæmda við Hringveg og gerð grein fyrir frágangi svæða.
Í greinargerð er bætt inn umfjöllun um gönguleiðir fyrir ferðamenn í kafla 26.6 fjallað er um merkingar og göngubrýr.
Veðurstofan ásamt tilgreindum stofnunum vinnur að forgreiningu á áhættumati vegna flóða samfara eldgosum undir Öræfajökli. Bent er á að veðurstofan mun birta gögn í haust og gæti þurfi að endurskoða aðalskipulagið í framhaldi af því.
Ásgrímur lagði til að bæjarstjórn samþykki nýtt aðalskipulag Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 skv. 32.gr. skipulagslaga nr. 123/2010, leiti staðfestingar Skipulagstofnunar og auglýsi niðurstöðurnar.
Forseti bar upp tillöguna.
Samþykkt með sex atkvæðum einn sat hjá.
10.
Ósk um deiliskipulag vegna fyrirhugaðrar byggingar að Reynivöllum 1
Málsnúmer 201302014
Ásgrímur Ingólfsson fylgdi málinu úr hlaði. Bæjarstjórn Hornafjarðar afgreiddi fyrirliggjandi erindi á fundi nr. 198 þann 12. desember sl. en þar kom ekki nógu skýrt fram að um er að ræða jörðina Reynivelli 1. Lagði hann til að bæjarstjórn samþykki að heimila deiliskipulagsvinnu á jörðinni Reynivöllum 1 í samræmi við aðalskipulagið sem verið var að samþykkja.
Forseti bar tillöguna upp til afgreiðslu.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Deiliskipulag HSSA
Málsnúmer 201211099
Ásgrímur Ingólfsson fylgdi málinu úr hlaði og greindi frá því að á 61. fundi umhverfis og skipulagsnefndar þann 19.3 sl var eftirfarandi bókun samþykkt:
Umhverfis-og skipulagsnefnd leggur til að deiliskipulagstillögunni sem kennd hefur verið við HSSA verði frestað, það eru skiptar skoðanir meðal íbúa um hana, leggur nefndin til að kjörnir fulltrúar hlusti eftir skoðunum íbúa og afgreiði tillöguna í framhaldi af því.
Þar sem frestun deiliskipulagsins er frávik frá hefðbundnu ferli mála þá þarf bæjarstjórn að samþykkja málsmeðferðina og lagði Ásgrímur til að bæjarstjórn samþykki frestun deiliskipulags HSSA eins og umhverfis- og skipulagsnefnd lagði til.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Tillagan samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Deiliskipulag við Holt á Mýrum
Málsnúmer 201112005
Ásgrímur Ingólfsson kynnti málið og greindi frá því að á 61. fundi umhverfis og skipulagsnefndar þann 19.3 sl. var vinnu við deiliskipulag við Holt á Mýrum frestað vegna óska Vegagerðarinnar. Vegagerðin vinnur að skipulagi tengivegs frá þjóðvegi 1 eins og hann er í dag að nýju vegstæði yfir Hornafjarðarfljót. Ósk Vegagerðarinnar að sú vegtengingin komi við Holt á Mýrum en kanna þarf hvort það sé hagkvæmt eða sé yfir höfuð hægt vegna umhverfisins þar í kring. Lagði Ásgrímur til að deiliskipulagi við Holt á Mýrum væri frestað á meðan unnið er með Vegagerðinni að staðsetningu tengivegar vegna nýs vegstæðis yfir Hornafjarðarfljót.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Tillagan samþykkt með sjö atkvæðum.
13.
Umsókn um framkvæmdaleyfi: Lögn ljósleiðara heim á hvert heimili í Suðursveit.
Málsnúmer 201403036
Forseti kynnti málið. Lagði til að bæjarstjórn samþykki framkvæmdaleyfi ljósleiðara í Suðursveit.
Ósk um framkvæmdaleyfi samþykkt með sjö atvkæðum.
14.
Prestbakkalína 1, ósk um framkvæmdaleyfi
Málsnúmer 201403019
Forseti kynnti málið. Lagði til að bæjarstjórn samþykki framkvæmdaleyfi prestbakkalínu 1.
Ósk um framkvæmdaleyfi samþykkt með sjö atkvæðum.
15.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn
Málsnúmer 200901107
Engar borist.