Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

202. fundur
15. maí 2014 kl. 16:00 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson Forseti
Ásgerður Kristín Gylfadóttir bæjarstjóri
Kristján Sigurður Guðnason 1. varaforseti
Björn Ingi Jónsson 2. varaforseti
Ásgrímur Ingólfsson aðalmaður
Valdemar Einarsson aðalmaður
Guðrún Ingimundardóttir aðalmaður
Snæfríður H. Svavarsdóttir 2. varamaður
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 671
Málsnúmer 1404001F
Valdemar ræddi um lið nr. 11 ráðning starfsmanns á framkvæmdasvið spurði hvort ekki hefði átt að bíða fram yfir kosningar með ráðninguna. Ásgrímur spurði um lið nr. 1 og 2 um málefni Vöruhúss Hafnarbraut 30, hvar það mál er statt í kerfinu og um aðkomu ráðuneytisins að kaupum á Vöruhúsi.
Guðrún spurði um lið 7 skólamáltíðir hvar það mál sé statt. Ásgerður sagði starfsmann hafa sagt upp starfi og það hafi verið nauðsynlegt að ráða í stöðuna þó hún sé breytt og nauðsynlegt að nýr starfsmaður taki við starfinu sem fyrst þrátt fyrir komandi kosningar þar sem um embættismann er að ræða. Sátt var um ákvörðun að auglýsa starfi í bæjarráði. Sagði kaupin á Hafnarbraut 30 vera að ganga í gegn en töf varð á málinu vegna ákvílandi veðs sem verið er að aflétta. Varðandi ósk framhaldsskólans um aðkomu ríkisins að kaupum á Vöruhúsinu þá hafi hún ekki séð svör frá Menntamálaráðuneytinu. Sagði að komið hafi tvö tilboð í skólamáltíðir, annað tilboðið var dregið til baka og reynt hafi verið að ganga til samninga við hinn aðilan en ekki gengið. Greindi frá samningum við stjórn HSSA um að mötuneytið HSSA taki að sér skólamáltíðir fyrir Grunnskólann.
Valdemar ræddi um skólamáltíðir og velti upp að skoða mætti að bjóða leikskólunum og starfsmönnum sveitarfélagsins að fá mat úr mötuneyti HSSA.
Björn Ingi spurði hvort sveitarfélagið væri að leigja Vöruhúsið Hafnarbraut 30 á meðan verið er að ganga frá kaupsamningi. Fagnaði útkomu skýrslu um húsnæðismál á Suðurlandi og fór yfir nokkur atriði hennar í samanburði við önnur sveitarfélög.
Kristján greindi frá varðandi skólamáltíðir, að ákveðið hafi verið að byrja á að bjóða Grunnskólann upp á heitar máltíðir ekki ákveðið með framhaldið.
Ásgerður greindi frá að leiga á Hafnarbraut verði greidd til 15. maí. Sagði samningur við HSSA vera á þann hátt að hann gildi til 3 ára og verði endurskoðaður eftir ár.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 672
Málsnúmer 1404003F
Valdemar ræddi um lið nr. 1 fundargerð umhverfis-og skipulagsnefndar þar sem bæjarráð ákvað að kaupa margnota innkaupapoka fyrir íbúa sveitarfélagsins, sagði sveitarfélagið hefði getað leitað til félagasamtaka og boðið þeim að fjárafla með slíku verkefni.
Valdemar ræddi um frímerki fyrir bæjarhátíðir, Humarhátíðarfrímerki, sem gefið er út af Póstinum og benti á að nafn hátíðarinnar er ekki rétt og aðrar staðreyndir ekki réttar í gögnum frá Póstinum.
Kom fram að búið er að láta Póstinn vita og beðist var afsökunar á þeim mistökum og þau verði leiðrétt eins og hægt er.
Kristján spurði um lið 9 Gagnaveituna hvernig það má sé statt.
Ásgrímur spurði um lið 10 benti á að búið er að opna Fjárhúsavík og hvatti íbúa til að ganga vel um.
Ásgerður sagði að unnið er að tengingu lagningu ljósleiðara í Suðursveit og örbylgjusambandi á Mýrarnar.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 673
Málsnúmer 1404009F
Fundargerð samþykkt samhljóða.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 674
Málsnúmer 1405003F
Fundargerð samþykkt samhljóða.
5.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 201
Málsnúmer 1403007F
Fundargerð lögð fram til kynningar.
6.
Ársreikningur 2013 síðari umræða
Málsnúmer 201402077
Ásgerður K. Gylfadóttir bæjarstjóri kynnti ársreikning sveitarfélagsins sem var kynntur á síðasta bæjarstjórnarfundi til fyrri umræðu. Hún sagði ársreikninginn gefa til kynna góða stöðu sveitarfélagsins. Ein breyting var gerð á skýringu sex er varðar stöðugildi sveitarfélagsins. Lagði hún til að ársreikningi 2013 yrði samþykktur.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
7.
Viðauki II við fjárhagsáætlun 2014
Málsnúmer 201405038
Ásgerður fór yfir breytingar sem felast í viðauka II við fjárhagsáætlun 2014, helstu breytingar A hluta eru eftirfarandi:
Rekstrarniðurstaða verður betri um tæpar 10 m.kr
Veltufé frá rekstri hækkar um rúmar 5 m.kr
Fjárfestingahreyfingar hækka um rúmar 83 m.kr. sem eru fyrst og frest malbikunarframkvæmdir.
Handbært fé í árslok hækkar um 60 m.
Viðauki II var samþykktur á fundi bæjarráðs þann 12. maí sl. og vísað til bæjarstjórnar. Lagði bæjarstjóri til að viðauki II yrði samþykktur.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
8.
Þjóðlendunefnd, reglur um úthlutun starfsleyfis
Málsnúmer 201311017
Ásgerður kynnti vinnu þjóðlendunefndar um reglur um úthlutun starfsleyfis í þjóðlendu. Nefndin var skipuð lögfræðingi sveitarfélagsins sem var jafnframt formaður nefndarinnar, einum fulltrúa skipuðum af Búnaðarsambandi Austur-Skaftafellssýslu, einum fulltrúa skipuðum af Landssambandi landeigenda, einum fulltrúa skipuðum af Ríki Vatnajökuls og einum fulltrúa skipuðum af útivistarsamtökum í sveitarfélaginu Hornafirði.
Nefndin hefur lokið störfum.
Ásgerður lagði til að bæjarstjórn samþykki nýjar reglur um úthlutun starfsleyfis í þjóðlendu.
Ásgrímur fagnaði reglunum en benti á að ekki sé krafa um starfsmannaðstöðu í þeim .
Ásgerður greindi frá að á slíkum málum er tekið fyrir í deiliskipulagi. Forseti bar upp tillöguna.
Samþykkt samhljóða.
9.
Uppbygging við Jökulsárlón erindi frá Þingvangi ehf.
Málsnúmer 201309046
Bæjarstjóri greindi frá fyrirspurn frá Þingvangi ehf. þar sem kemur fram að Þingvangur ehf. og meirihluti Sameignarfélagsins Fells hafa gert með sér samkomulag þess efnis að Þingvangur efh. byggi upp þjónustubyggingar við Jökulsárlón samkvæmt gildandi deiliskipulagi fyrir svæðið. Óskar Þingvangur ehf. eftir því að málið verið tekið fyrir í bæjarstjórn þar sem áformin verða kynnt og afstaða tekin til málsins.
Forseti lagði til eftirfarandi bókun.
Enn sem komið er hefur sveitarfélaginu þó ekki borist formleg leyfisumsókn vegna framkvæmda á svæðinu. Ljóst er að þar sem jörðin er í sameign verða eigendur jarðarinnar að standa sameiginlega að umsókn um byggingarleyfi til bæjarins, samkvæmt skýrum ákvæðum laga um mannvirki og byggingarreglugerð. Þá hefur sveitarfélaginu einnig borist erindi frá eigendum að hluta jarðarinnar, sem eru innan Sameigendafélagsins Fells, þar sem fram kemur að viðkomandi aðilar hafi ekki veitt stjórn félagsins samþykki til skuldbindandi viðræðna við Þingvang ehf. eða annan aðila.
Bæjarráð hvetur eigendur jarðarinnar til þess að vinna sameiginlega að umsókn um tilskilin leyfi og minnir jafnframt á að ekki verður við það unað til lengdar að eigendur jarðarinnar komi sér ekki saman um uppbyggingu á svæðinu. Miklir hagsmunir eru í húfi að sú uppbygging, sem gildandi deiliskipulag kveður á um, geti hafist sem fyrst.
Forseti bar upp tillögu að bæjarstjórn geri bókun bæjarráðs að sinni.
Samþykkt samhljóða.
10.
Umsókn um leyfi til að nýta land innan þjóðlendu og stöðuleyfi
Málsnúmer 201405022
Kristján vék af fundi undir þessum lið, Snæfríður H. Svavarsdóttir tók sæti fyrir hann.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir umsókn frá Ice Lagoon ehf áður Must Visit Iceland ehf um leyfi til að nýta land innan þjóðlendu og stöðuleyfi. Um er að ræða hluta vesturbakka Jökulsárlóns til 15. nóvember nk. eða þar til farið verður að vinna eftir hinu nýja deiliskipulagi við austurbakka Jökulsárlóns. Kom fram að umsækjandi hefur stundað atvinnurekstur frá þeim stað sem sótt er um stöðuleyfi á frá árinu 2011 í óþökk sveitarfélagsins. Umsækjandi hefur óskað eftir stöðuleyfi á austurbakkanum en ekki hefur fengist samþykki allra landeigenda fyrir því og þar af leiðandi getur sveitarfélagið ekki gefið stöðuleyfi þar sem er mjög bagalegt því mikil eftirspurn er eftir afþreyingu á svæðinu. Í samræmi við fyrri afstöðu bæjarstjórnar gagnvart atvinnustarfsemi við vesturbakka Jökulsárlóns og þess að ekki er leyfilegt að gefa starfsleyfi í þjóðlendu án undangenginnar auglýsingar þá leggur bæjarstjóri til að umsókninni verði hafnað.
Björn Ingi sagði það væri dapurt að ekki sé hægt að styðja við atvinnuuppbyggingu í sveitarfélaginu , sagði skortur á aðstöðu við Jökulsárlón og ekki myndi ástandið batna við að veita leyfi á vesturbakkanum.
Guðrún tók undir orð Björns og Ásgerðar og sagði það sé mjög slæm aðstaða á Jökulsárlóni miðað við fjölda ferðamanna og salerni séu miðuð við þann fjölda í samræmi við stærð veitingasalarins og það sé mikilvægt að landeigendur taki höndum saman og byggi upp sómasamlega aðstöðu við Jökulsárlón.
Ásgrímur greindi því að hann er ekki sammála og vill veita umsækjenda stöðuleyfi á undangenginni auglýsingu meða ekki þokast áfram með uppbyggingu austurbakka Jökulsárlóns. Sagði búnaðarstefnu sveitarfélagsins hvetja til að ungt fólk geti komið sér upp atvinnu í dreifbýli.
Forseti gerði að umtalsefni getuleysi landeigenda til að koma sér saman um uppbyggingu á Jökulsárlóni þrátt fyrir að sveitarfélagið hafi lagt í mikinn kostnað við deiliskipulagsvinnu en miklvægt sé að vinna eftir deiliskipulaginu og hafna því umsókninni.
Forseti bar tillögu bæjarstjóra upp.
Samþykkt að hafna erindinu með 6 atkvæðum einn var á móti.
11.
Árnanes 5. Deiliskipulag
Málsnúmer 201309014
Ásgrímur Ingólfsson fylgdi málinu úr hlaði. Greindi frá því að skipulagstillagan hafi verið kynnt lögformlega skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, var lögð fram í bæjarstjórn 12. desember sl. og samþykkt. Athugasemdir bárust frá Skipulagstofnun og var tillagan því auglýst að nýju. Tillagan var til kynningar frá 13. febrúar til 27. mars 2014, engar athugasemdir bárust.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki deiliskipulagið.
Forseti bar upp tillöguna.
Samþykkt samhljóða.
12.
Deiliskipulag Stafafellsfjöllum
Málsnúmer 201311071
Ásgrímur fylgdi málinu úr hlaði og greindi frá því að skipulagstillagan hafi verið kynnt lögformlega skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagstillagan var til kynningar 30. janúar til 13. mars 2014 og voru athugasemdir gerðar við tillöguna. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur í samvinnu við skipulagsráðgjafa unnið svör við athugasemdunum, verða þau send þeim sem gerðu athugasemdirnar og einnig aðgengilegar á heimasíðu sveitarfélagsins.
Lagði Ásgrímur til að bæjarstjórn geri svör umhverfis-og skipulagsnefndar að sínum og samþykki nýtt deiliskipulag í Stafafellsfjöllum.
Björn Ingi bað um orðið og bar upp breytingartillögu við svör umhverfis-og skipulagsnefndar 63. fund frá 7. maí 2014 er snýr að deilu á milli lóðarhafa á lóð númer 10 og 11.
Tillagan hljóðar á þá vegu:
Bókun umhverfis og skipulagsnefndar 10. fundi frá 3. mars 2011 verði látin gilda og hljóðar svona.
Bæjarstjórn er sammála um að á undanförnum árum hefur ýmislegt sem framkvæmt hefur verið á umræddu svæði verið gert án þess að skipulagi hafi verið fylgt í hvívetna. Bæjarstjórn telur hins vegar ekki jafnræði fólgið í að krefja einn af eigendum sumarhúsa þar sem framkvæmd kann að stangast á við skipulag, að fara í breytingar þannig að ótvírætt sé að farið sé eftir skipulagi. Af þeim sökum telur Bæjarstjórn ekki rétt að fara fram á við eiganda hús á lóð nr. 11 í Stafafellsfjöllum að færa húsið.
Ásgrímur sagði að umhverfis-og skipulagsnefnd hafi veitt stöðuleyfi til 2010 sagði að hann gæti ekki samþykkt þessa tillögu því hún hafi þau áhrif að deiliskipulagið ógilt samkvæmt áliti lögfræðings sveitarfélagsins.
Björn Ingi sagði að hann hafi haft samband við lögfræðing sem hafi gefið honum ráð í samræmi við ofangreindra tillögu hans.
Ásgerður sagði sumarhúsabyggð í Stafafellsfjöllum hafi verið í uppbyggingu í langan tíma og ekki hafi alltaf verið farið að skipulagslögum. Leitað hafi veri til margra sérfræðinga um álit á málinu og niðurstaðan hafi verið, tillaga sem Ásgrímur kom fram með.
Guðrún lagði fram breytingatillögu sem hljóðar svo:
Bæjarstjórn leggur til að skipulagsmál í Stafafellsfjöllum fái frekari skoðun og ráðgjöf lögfræðinga áður en endanleg ákvörðun er tekin.
Björn Ingi taldi ef til frestunar kæmi megi búast við töf á málinu um amk. einn til tvo mánuði og talaði um að það hefði í för með sér umtalsverð óþægindi fyrir landeigendur.
Ásgrímur sagði ekki gott að fresta málinu því málið hefur verið lengi til umfjöllunar og ný nefnd þyrfti tíma til að koma sér inn í málið.
Forseti bar upp breytingatillögu Guðrúnar og var hún felld með fjórum atkvæðum gegn þremur.
Forseti bar upp breytingatillögu Björns Inga og var felld með fjórum atkvæðum gegn tveimur og einn sat hjá.
Forseti bar upp til atkvæða tillögu Ásgríms.
Björn Ingi óskaði eftir að gera grein fyrir atkvæði sínu sagði, hann mikilvægt að deiliskipulagið verði að veruleika en hafi ekki skipt um skoðun varðandi lóðir 10 og 11 sagðist samþykkja deiliskipulagið en geri fyrirvara um úrlausn á málefnum umræddra lóða.
Samþykkt með sex atkvæðum, einn sat hjá.
13.
Deiliskipulag við Hnappavelli
Málsnúmer 201310035
Ásgrímur fylgdi málinu úr hlaði kynnti tillögu að nýu deiliskipulagi.
Sagði markmið með gerð deiliskipulagsins, að skilgreina og ramma forsendur fyrir uppbyggingu nýs hótels í landi Hnappavalla. Umhverfis-og skipulagsnefnd fjallaði um tillöguna og samþykkti að vísa henni til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki deiliskipulagstillöguna og hún fari í lögformlegan feril skv. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísað til annarrar umræðu í bæjarstjórn.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
14.
Deiliskipulag Fjallsárlón
Málsnúmer 201309050
Forseti fylgdi málinu úr hlaði og kynnti tillögu að nýju deiliskipulagi. Lýsing að nýju deiliskipulagi hefur verið í kynningu er því ferli lokið, farið var yfir athugasemd sem barst og brugðist við henni.
Sagði að ágangur ferðamanna valda álagi og staðbundnu sliti sem nauðsylegt er að bregðast við.
Markmið með gerð deiliskipulagsins er að, sníða ramma um ferðamennsku á svæðinu þannig að hægt verði að taka við fleiri ferðamönnum án þess að umhverfið láti á sjá. Lagning stíga og markvissar framkvæmdir á áningastöðum.
Stýra umferð markvisst bæði gangandi og akandi og koma upp nauðsynlegri ferðamannaaðstöðu eins og þjónustuhúsi og salernisaðstöðu.
Forseti lagði til að bæjarstjórn samþykki að deiliskipulagstillagan fari í lögformlegt ferli skv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísað til annarrar umræðu í bæjarstjórn.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
15.
Skipulag íbúðarbyggðar við Hrollaugsstaði í Suðursveit
Málsnúmer 201403035
Ásgrímur fylgdi málinu úr hlaði greindi frá að áhugi er á uppbyggingu við Hrollaugstaði og nauðsynlegt að deiliskipuleggja svæðið áður en farið er í framkvæmdir. Sagði að málið hafi fengið umfjöllun í bæjarráði og umhverfis-og skipulagsnefnd.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki að fara í gerð deiliskipulags við Hrollaugsstaði.
Samþykkt samhljóða.
16.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn
Málsnúmer 200901107
Ásgerður greindi frá heimsókn grunnskólakennara til bæjarstjórnar fyrir fundinn og áskorun sem þeir afhentu bæjarstjórn þar sem þeir skora á sveitarstjórn Hornafjarðar og þrýsta á samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga að að ljúka samningum við FG svo ekki komi til frekari vinnustöðvana. Kom fram að kennarar hafa verið samningslausinr sl. 2 ár. Það er óviðunnandi ástand. Áskorunin var undirrituð af trúnaðarmönnun grunnskólakennara í GH.
Ásgerður bar upp eftirfarandi:
Í ljósi þess að í dag 15. maí eru grunnskólakennarar landsins í verkfalli vill bæjarstjórn Hornafjarðar senda frá sér eftirfarandi ályktun.
?Bæjarstjórn Hornafjarðar harmar þá stöðu sem upp er komin í samningaviðræðum félags grunnskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga með vinnustöðvun í dag. Bæjarstjórn hvetur málsaðila til að vinna að heilum hug að sáttum og semja á grunni sem styður bæði við menntun og það mikilvæga starf sem grunnskólakennarar sinna.
Forseti bar ályktunina upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.