Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

207. fundur
4. september 2014 kl. 16:00 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir Forseti
Sæmundur Helgason 1. varaforseti
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir 2. varaforseti
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Ásta Halldóra Guðmundsdóttir (ÁHG) fjármálastjóri
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 683
Málsnúmer 1408001F
Sæmundur Helgason tók til máls undir lið 8. lagabreytingar á umdæmum embætta sýslumanna og lögrelgustjóra. Greindi frá að stjórn SASS hafi sent áskorun til bæjarstjórnar Hornafjarðar um að samræma samstarf og yfirstórn stjórnsýslueinga á vegum ríkisins í Suðurkjördæmi.
Sæmundur sagði mikilvægt að öll stjórnsýsla ríkisins sbr. lögregla, skólar og heilbrigðisstofnanir sé á suðursvæði og ef samstarf austur á bógin eigi að vera þá þurfi að mynda sér rökstudda skoðun.
Fundargerð samþykkt.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 684
Málsnúmer 1408004F
Gunnhildur Imsland tók til máls undir lið 2. skóla, íþrótta-og tómstundanefnd og lið fimm heilsurækt á Hornafirði.
Sagði sveitarfélagið styrkja þátttöku á barna og unglingastarfi í íþróttum lagði fram eftirfarandi tillögu framsóknarmanna til fjárhagsáætlunar fyrir árið 2015.
?Bæjarfulltrúar Framsóknarflokksins gera það að tillögu sinni að tómstundastyrkurinn verði hækkaður úr 20 þúsundum í 40 þúsund og nái til allra barna með lögheimili í Sveitafélaginu Hornafrði að 18. ára aldri.
Einnig leggjum við til að öll börn að 18 ára aldri fá frítt í sund.?
Ásgerður spurði um lið 3. og 4. málefni Jökulsárlóns. Björn Ingi Jónsson þakkaði fyrir tillögur frá framsóknarmönnum sem gott innlegg í áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun, það sé í anda þess sem hefur verið rætt í kring um kosningar. Sagði tómstundastyrk ekki hafa verið nýttann nægjanlega vel.
Björn Ingi upplýsti um stöðu mála um starfsemi við Jökulsárlón. Ice Lagoon ehf. hafi átt að fjarlægja lausafjármuni fyrir 1. september. Sagði þrjár kærur frá fyrirtækinu liggja hjá úrskurðarnefnd umhverfis-og auðlindamála, afgreiðsluhraði er 12-18 mánuðir. Sagði að sveitarfélagið hafi afhent öll gögn varðandi málið til nefndarinnar.
Gunnhildur þakkaði stuðning Björns Inga við framlagða tillögu.
Ásgerður þakkaði svör við spruningunum því mikil umræða sé um málið, þakkaði einnig stuðning tillögu v. hækkunar á tómstundastyrks því margar fjölskyldur þurfi á slíkum styrk að halda.
Björn Ingi sagði að þó styrkurinn hafi ekki verið fullnýttur þurfi alltaf að gera ráð fyrir fullri nýtingu í rekstraramma. .
Sæmundur spurði hvort tillagan ætti við að öll börn sem koma í sund eða bara börn í sveitarfélaginu.
Gunnhildur sagði það eiga við öll börn í með lögheimili í sveitarfélaginu.
Fundargerð samþykkt.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 685
Málsnúmer 1408010F
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir tók til máls undir lið 1.
Sagði starfið í Vöruhúsinu vera til fyrirmyndar þar sé mikil gróska og kraftur, í dag er horft til þess allstaðar af landinu og jafnvel utan úr heimi. Sagði vaxtarverki hafa áhrif á starfsemina því togstreita hafi myndast um rými í húsinu, sagði brýnt að finna öllum aðilum pláss. Lagði til að kláruð verði sú stefnumótun sem er í gangi og farið verði í rýmisgreiningu í húsinu.
Kristján sagði að umræður hafi skapast í nefdinni um ráðningu atvinnu-og ferðamálafulltrúa og sagðist ekki vita hvort það væri stefna meirihlutans. Kristján sagði að fara eigi varlega í þessu máli, erfitt verði að styrkja bæði starf Ríki Vatnajökuls og ráða ferðamálafulltrúa. Benti hann á að hér er veitt þjónusta frá Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands og starfsmaður frá þeim hér á staðnum.
Ásgerður tók undir orð Þórhildar um að það væri mikill kraftur í Vöruhúsinu, starfsemin er að sprengja húsnæð utan af sér sem nýbúið er að festa kaup á. Mikilvægt að þarfagreina starfið þar. Sagði mikilvægt að efla starfið eins og það var hugsað.
Björn Ingi tók undir orð Þórhildar og Ásgerðar að klára greiningu á starfsemi í Vöruhúsinu, hugmyndafræðin sé mjög flott og mikilvægt að starfið gangi upp. Sagði einnig eðlilegt að koma fram með umræðu um atvinnumál, í dag er enginn starfsmaður með atvinnumál á sinni könnu. Sagði ekki sanngjarnt að láta starfsmann safnamála hafa umsjón með líka atvinnumálum vegna þeirra verkefna sem framundan er. Sagði ekki ákveðið hvort það eigi að stofna sérstaka nefnd um málaflokkinn. Það er einnig hugasnleg að mynda starfshóp í stuttan tíma. Sagði Ríki Vatnajökuls vera hlutafélag sem hefur væntingar til þess að sveitarfélagið styrki grunnrekstur þess, ekki þætti eðlilegt að sveitarfélagið styrki grunnrekstur fyrirtækja út í bæ. Sagðist hafa rætt við formann stjórnar Ríkis Vatnajökuls og greint honum frá þeirri umræðu sem á sér stað í stjórnsýslunni. Það sé nauðsynlegt að fá umræðu um málið og taka ákvörðun út frá henni.
Ásgerður sagði gott að skoða þessi mál en velti upp þeirri spurningu hvort öll fyrirtæki sem eru í ferðaþjónustu séu hluthafar að Ríki Vatnajökuls. Hún sagði einnig mikilvægt að taka saman lista og hafa hann aðgengilegan um þá aðila sem hafa gild leyfi og reka fyrirtæki í ferðaþjónustu.
Björn Ingi sagði starfsemi Ríki Vatnajökuls vera fyrirmynd annarra og mikið verk hafi verið unnið af samtökunum. Ef ferða-og atvinnumálafulltrúi verði ráðin þá þurfi ekki að skilja Ríki Vatnajökuls eftir út í kuldanum það sé hægt að styðja við þá með ýmsu móti. Sagði lista yfir alla sem hafa fengið leyfi vera á vefnum logregla.is.
Kristján sagði að atvinnu-og menningamál tengjast mikið og að sér hugnaðist sú leið að vinna í hópum ákveðin verkefni frekar en skipta upp nefndum.
Björn Ingi tók undir orð Kristjáns sagði einnig að aðrir málaflokkar tengjast mikið og þurfi að tryggja flæði á milli nefnda. Kristján sagði að það gæti tekið lengri tíma ef málefni fari fyrir báðar nefndir.
Sæmundur bar upp tillögu að bókun bæjarstjórnar Hornafjarðar.
Bæjarstjórn Hornarfjarðar telur mjög brýnt að bæta úr búsetuskilyrðum fyrir aldraða í sveitarfélaginu . Stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands hefur lagt áherslu á að þrýst verði á stjórnvöld að hefja nýbyggingu við HSSA. Núverandi staða er sú að HSSA er með 24 hjúkrunarrými sem flest eru lítil tvíbýli. Það stangast á við viðmiðunarreglur um aðbúnað á hjúkrunarheimilum sem samþykktar voru í júní sl. af ráðuneyti heilbrigðismála.
Í dag er staðan sú að 5 manns eru á biðlista eftir hjúkrunarrými en í ljósi samþykktarinnar um viðmiðunarreglur um aðbúnað þá telur bæjarstjórn að í raun séu 27 einstaklingar í bið eftir einbýli. Það teljum við algerlega óásættanlegar aðstæður.
Forseti bar bókunina upp til samþykkis.
Samþykkt samhljóða.
Fundargerð samþykkt.
4.
Viðauki III við fjárhagsáætlun 2014
Málsnúmer 201408051
Björn Ingi Jónsson bæjarstóri fór yfir þær breytingar sem felast í viðauka III við fjárhagsáætlun 2014.
Helstu breytingar A hluta eru eftirfarandi:
Rekstrarniðurstaða verður lakari um rúmar 11,7 m.kr sem helgast fyrst og fremst að hækkun á launakostnaði í kjölfar nýrra kjarasamninga og lækkar því veltufé frá rekstri um sömu upphæð.
Tilfærsla er á milli liða í fjárfestingaáætlun en niðurstaðan er sú sama og við viðauka II um 441,4 m.kr í A og B hluta.
Handbært fé í árslok lækkar um 11,7 m.kr. og verður um 73 m.kr.
Viðauki III var samþykktur á fundi bæjarráðs þann 1. september sl. og vísað til bæjarstjórnar.
Lagði bæjarstjóri til að viðauki III yrði samþykktur.
Sæmundur sagði að í viðauka sé gert ráð fyrir að handbært eigið fé 73 millj. ef ekki hefði komið til 100 millj. kr. lán þá hefði staðan verið 27 millj. í mínus sagði að sem betur fer hafi fjármunirnir farið í ýmsar þarfar framkvæmdir.
Sagði einnig að það væri bagalegt að byrja í bæjarstórn þegar staðan sé þessi með þessari niðurstöðu skerðist möguleikar til framkvæmda á komandi ári og árum, nema með tilheyrandi skuldsetningu í hvert og eitt skipti.
Ásgerður ítrekaði að 100 milljón. kr. lántaka hafi verið á fjárhagsáætlun ársins 2014 en ekki hafi verið tekin fyrr en í júní þar sem ekki hafi veirið þörf á því fyrr en þá. Sagði einnig að tekjur sveitarfélagsins hafi skerst og ekki sé hægt að sjá það fyrir.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt.
5.
Starfsreglur fyrir Gjafa- og minningarsjóð
Málsnúmer 200806007
Forseti bar starfsreglur gjafa og minningasjóðs upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
6.
Kosning í stjórn Náttúrustofu Suðausturlands
Málsnúmer 201408071
Björn Ingi Jónson og Dr. Rögnvaldur Ólafsson aðalmenn.
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir og Steingerður Hreinsdóttir varamenn.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
7.
Deiliskipulag HSSA
Málsnúmer 201211099
Sæmundur Helgason fylgdi málinu úr hlaði greindi frá að bæjarstjórn hafi frestað deiliskipulagsvinnu sem kennd er við HSSA á fundi sínum þann 3. apríl 2014. Sagði umhverfis-og skipulagsnefnd hafi lagt til á fundi sínum þann 3. sept. að deiliskipulagsvinnu við HSSA verði haldið áfram og óskað var eftir því að bæjarstjórn taki afstöðu til þess hvort vinna við deiliskipulag HSSA verði haldi áfram. Sæmundur lagði til að bæjarstjórn samþykki að hefja að nýju vinnu við deiliskipulag HSSA.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
8.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn
Málsnúmer 200901107
Engar fyrirspurnir hafa borist.