Bæjarstjórn Hornafjarðar
209. fundur
30. október 2014
kl.
16:00
-
00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
Forseti
Sæmundur Helgason
1. varaforseti
Björn Ingi Jónsson
aðalmaður
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir
aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
2. varaforseti
Kristján Sigurður Guðnason
aðalmaður
Gunnhildur Imsland
aðalmaður
Ásta Halldóra Guðmundsdóttir (ÁHG)
fjármálastjóri
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga og gæðastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 690
Sæmundur tók til máls undir 1. lið fundargerðar umhverfis-og skipulagsnefndar.
Sæmundur lagði fram bókun meirihlutans vegna deiliskipulags sem kennt er við HSSA.
Vilji meirihluta D og E er að fella út úr tillögunni fyrirhugaðar einbýlishúsalóðir sem standa við Júllatún. Skipulagstillagan helst óbreytt hvað varðar HSSA en græna svæðið syðst í reitnum verður áfram grænt svæði. Þetta er gert þar sem skiptar skoðanir eru um tillöguna og snúa þær allar að fyrirhuguðum lóðum við Júllatún. Engin mótmæli hafa komið vegna HSSA. Önnur rök eru að fari sem horfir í framtíðinni með fjölgun eldri borgara sem munu þiggja þjónustu frá HSSA þá mun ekki veita af þessu svæði til uppbyggingar.
Meirihlutinn bendir á að auðvelt er að kalla fram deiliskipulagstillögu um lóðir hvar sem vilji er til að byggja og bæta byggð í Sveitarfélaginu Hornafirði. Ekki mun standa á meirihlutanum að ræða tillögur málefnalega og skoða vel möguleika á fjölbreyttu lóðaframboði. En tillögurnar verða að vera í eigin nafni og fá umræðu á eigin forsendum. Ekki með því að fela þær undir hatti annarra tillaga. Fyrirséð er að þessi deiliskipulagstillaga, óbreytt, mun velkjast lengi í kerfinu vegna deilna og kærumála. Þess vegna vill meirihlutinn fella þessar lóðir út. Mögulegar fjárveitingar ríkisins til nýbyggingar við HSSA mega aldrei stranda á því volki. Gjaldskrá Sorphirðu, Sæmundur fagnaði opnun nýs sorphúss við Áhaldahúsið. Hann sagði húsið vera mikilvægur hlekkur í því að minnka ummál sorps sem fer til urðunar og flokka betur það sorp sem fer í gegnum starfsemina.
Ásgerður tók til máls um deiliskipulag HSSA og sagði að ekki hafi verið samstaða í nefndinni vegna málsins og greindi frá að deiliskipulaginu hafi verið frestað í vor, sagði gott að ekki verði farið í breytingu á aðalskipulagi með því yrði opið fyrir að íbúabyggð verði á svæðinu í framtíðinni.
Fundargerð samþykkt samhljóða.

2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 691
Þórhildur greindi frá að bæjarráði hafi verið boðið í heimsókn á Álaleiru í geymsluhúsnæði Hornafjarðarsafna, sagði að verið sé að skrá þá muni sem safnið á og gott starf unnið þar undir stjórn Völu Garðarsdóttur.
Gunnhildu tók til máls undir lið fundargerðar Hafnarstjórnar harmaði hvað það tekur langan tíma að taka saman niðurstöður frá málþingi um Höfnina og Grynnslin.
Sæmundur tók til máls undir lið fundargerð Hafnarstjórnar sagðist fagna því að Hafnarstjórn hyggst auka samráð við Ríki Vatnajökuls, og hvetur til þess að sem mest samráð verði um góða móttöku þeirra gesta sem koma með farþegaskipum.
Björn Ingi sagði að samantekt vegna málþingsins vera á lokastigi, greindi frá heimsókn til fjárlaganefndar og Vegagerðarninnar þar sem málið hefur fengið umfjöllun og kynningu.

3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 692
Gunnhildur tók til máls undir fundargerð skóla,-íþrótta-og tómstundanefndar, sagði mikilvægt að upplýsingaflæði til bæjarfulltrúa verði að bæta, þar sem allir bæjarfulltrúar voru að heiman þegar íbúafundur um skólamál hafi farið fram.
Sæmundur lagði fram bókun bæjarstjórnar undir fundargerð skóla,-íþrótta-og tómstundanefnd.
Bókun um verkfall tónlistarskólakennara
Bæjarstjórn Hornafjarðar harmar þá stöðu sem upp er komin í samningaviðræðum félags tónlistarskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Verkfall tónlistarskólakennara hefur nú staðið í 9 daga og það er ótækt fyrir alla aðila. Bæjarstjórn hvetur málsaðila til að vinna að heilum hug að sáttum og semja á grunni sem styður bæði við menntun og það mikilvæga starf sem tónlistarskólakennarar sinna
Björn Ingi greindi frá að vinna er hafin innan ráðhúss til að útbúa atburðardagatal.
Forseti bar upp bókun til samþykktar.
Samþykkt samhljóða.

4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 693
Fundargerð samþykkt samhljóða.
5.
Bæjarráð Hornafjarðar - 694
Björn Ingi tók til máls undir fundargerð Almannavarnarnefndar greindi frá nýjum síritamæli sem hefur verið settur upp á Höfn og upplýsingar frá honum koma á 10 mín. fresti á heimasíðu Umhverfisstofnunar og heimasíðu sveitarfélagsins www.hornafjordur.is/gosupplysingar. Sagði allar stofnanir bæjarins vel undirbúnar vegna ástandsins.
Ásgerður tók til máls undir 7. lið ogg greindi frá heimsókn stjórnar Ríki Vatnajökuls. Sagði upplýsingar um klasann hafi verið lagðar fyrir fundinn að beiðni bæjarráðs og stuðning sveitarfélagsisn við klasann. Hvatti alla sem eru í ferðaþjónustu og tengdri starfsemi til að snúa bökum saman og vinna með sveitarfélaginu að málefnum ferðaþjónustunnar.
Gunnhildur tók til máls undir 6. lið samþykkt um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins, las upp bókun sem bæjarráð lagið fram sagði að ekki væri hægt að skilja bókunina án þess að vera með gögn í hendi.
Björn Ingi sagði að þetta vinnufyrirkomulag hafa tíðkast áður.

6.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 208
Fundargerð lögð fram til kynningar.
7.
Álagningareglur 2015
Björn Ingi kynnti tillögu að álagningareglum 2015
Útsvar
14,48 %
Fasteignaskattur A á íbúðahúsnæði
0,50 % af fm ( hám. 0,625%)
Fasteignaskattur B á opinberar stofn. 1,32 % af fm ( hám. 1,32% )
Fasteignaskattur C á atvinnuhúsnæði
1,62 % af fm ( hám. 1,65%)
Lóðaleiga
1 % af lóðamati
Holræsagjöld
0,30 % af fasteignamati
Vatnsgjöld
0,18 % af fasteignamati
Lagði til að bæjarstjórn samþykki álagningareglur 2015.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.

8.
Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2015 fyrri umræða
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri kynnti fjárhagsáætlun 2015.
Helstu niðurstöður áæltunarinnnar fyrir A og B hluta árin 2015-2018 eru eftirfarandi.
2015
2016 2017 2018
Rekstrarniðurstaða (m.kr.)
108.781 130.802 125.673 117.915
Skuldir í hlutfalli af tekjum
70.38% 66,25% 72,64% 67,98%
Framkvæmdir (m.kr.)
263.000 300.000 300.000 225.000
Framlegð %
14,10% 15,40% 15,60% 15,60%
Veltufé frá rekstri (m.kr.)
275.676
307.155 310.800 310.543
Handbært fé í árslok (m.kr.)
186.360
58.290 152.553 92.173
Afborganir langtímalána
-98.009 -135.225 -136.537 -145.923
Ný lántaka A-B hluta (m.kr.)
200.000
220.000
Langtímalán við lánastofnanir 778.491 673.402 783.307 686.266
Lagði til að fjárhagsáætlun 2015 yrði vísað til seinni umræðu bæjarstjórnar.
Ásgerður tók til máls og benti á að fráveituframkvæmdum á árinu 2014 hafi verið frestað vegna rannsóknarvinnu og undirbúnings verkefnisins sagði framlagðan ramma ásættanlegan til frekari vinnu.

9.
Þriggja ára áætlun 2016-2018
Björn Ingi kynnti þriggja ára áætlun 2016-2018 vísað er til fyrri bókunar undir liðnum fjárhagsáætlun 2015 fyrri umræða.
Lagði til að þriggja ára ætlun yrði vísað til seinni umræðu bæjarstjórnar.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
Lagði til að þriggja ára ætlun yrði vísað til seinni umræðu bæjarstjórnar.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
10.
Samþykkt sveitarfélagsins Hornafjarðar 2014
Þórhildur tók til máls sagði að sveitarstjórnarfólk verði að taka þá þróun sem á sér stað í ferðamálum alvarlega. Sagði atvinnumálin hafa setið á hakanum í atvinnu-og mennignarmálanefd og nauðsynlegt að klára atvinnustefnu sveitarfélagins og vinna að ferðamálastefnu. Ráðning atvinnu- og ferðamálafulltrúa mun styðja og styrkja það starf sem fyrir er og stuðla að aukningu á gæðum, öryggi og rannsóknum auk þess að geta boðið upp á faglega ráðgjöf, hann verður með sterk tengsl við alla stjórnsýslu sveitarfélagsins og opinberar og óopinberar stofnanir fyrir hönd sveitarfélagsins.
Björn Ingi Jónsson kynnti tillögu að breytingu á Samþykkt um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins Hornafjarðar sem hefur verið tekin til endurskoðunar með hliðsjón af málefnasamningi meirihlutans, einnig eru gerðar breytingar sem þykja óeðlilega bindandi fyrir bæjarstjórn og bæjarráð. Bæjarráð hefur unnið að breytingu samþykktanna og samþykkti á fundum sínum þann 27. 10 2014 að vísaði þeim til bæjarstjórnar.
Þær efnislegu breytingar sem lagt er til að verði gerðar, varða þrjár greinar í samþykktunum 8., 48. og 51. Gr.
Helstu breytingar eru vegna skiptingar nefnda atvinnu-og menningarmálanefnd-og umhverfis og skipulagsnefnd skiptast upp í fjórar nefndir.
Kristján tók til máls sagði ekki heillavænlegt að skipta nefndunum upp, gæti orðið til þess að mál tefjist í kerfinu og kostnaður muni aukast, lagð til að meirihlutinn endurskoði þessar breytingar.
Ásgerður benti á að ráðning atvinnu-og ferðamálafulltrúa komi ekki fram í fjárhagsáætlun fyrir árið 2015. Einnig benti hún á að mál geti tekið lengri tíma verði umhverfis-og skipulagsnefnd skipt upp.
Björn Ingi sagði að meirihlutinn hafi skoðað samþykktirnar mjög vel, sagði að breytingin verði til hins betra. Umhverfismálin fái meira pláss í umfjöllun sveitarfélagsins. Sagði að starfsmenn þurfi að vinna skipulega með málaflokkana þá eigi ekki að þurfa að vera tafir á málum.
Lagði til að bæjarstjórn vísi samþykktunum til annarrar umræðu í bæjarstjórn.

11.
Reglur um skólaakstur leikskólabarna
Þórhildur kynnti þær breytingar sem skóla,-íþrótta-og tómstundarnefnd samþykkti á fundi sínum þann 15.10 2014.
Sú breyting sem lagt er til að verði á reglunum er:
Þeir sem þurfa að aka meira en 15 km. frá heimili að leikskóla geta sótt um akstur skv. reglum þessum.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki breytinguna.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
Sú breyting sem lagt er til að verði á reglunum er:
Þeir sem þurfa að aka meira en 15 km. frá heimili að leikskóla geta sótt um akstur skv. reglum þessum.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki breytinguna.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
12.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn
Engar fyrirspurnir hafa borist.