Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

211. fundur
8. janúar 2015 kl. 16:00 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir Forseti
Sæmundur Helgason 1. varaforseti
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir 2. varaforseti
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir 1. varamaður
Arna Ósk Harðardóttir 1. varamaður
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 700
Málsnúmer 1412002F
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir tók til máls undir 4. og 5. lið og fagnaði að aðilar hafa áhugi á uppbyggingu á heppusvæðinu.
Björn Ingi tók til máls undir 2. lið, skipan lögreglumála greindi frá að lögreglan í Hornafirði hafi verið færð í lögreglustjóraembættið á Suðurland og fagnaði breyttum áherslum ráðherra sagði einnig mikilvægt að eiga áfram gott samstarf við lögregluna á Austurlandi jafnhliða lögreglu á Suðurlandi vegna legu sveitarfélagsins á milli þessara landsvæða.
Ásgerður tók til máls undir 1. lið varðandi fund með eigendum jarðarinnar Fells einnig spurði hún um lið 3. rifjaði upp hrun tölvukerfis sveitarfélagsins og spurði hvort það væri búið að gera ráðstafanir í tölvumálum sveitarfélagsins.
Björn Ingi sagði ákvörðun um frestun fundar skynsamlega vegna kröfu vegna fyrirhugað uppboð jarðarinnar 4. mars nk. . Það hafi verið mjög bagalegt að tölvukerfið hafi hrunið hjá sveitarfélaginu og komið niður á störfum sveitarfélagsins, Advania er enn að skoða hvað hafi ollið þessum bilunum, sagði að kerfið sé tvöfalt í dag og ætti að vera öruggt.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 701
Málsnúmer 1412007F
Ásgerður tók til máls undir 1.lið félagsmálanefndar ræddi húsnæðismál í sveitarfélaginu hvatti til umræðu umræðu um hvegjandi aðgerðir til uppbyggingar íbúðarhúsnæðis í sveitarfélaginu sem öll framboð höfðu á stefnuskrá í kosningunum.
Björn Ingi greindi frá að á síðasta ári hafi leiguverð á íbúðum í eigu sveitarfélagins verið hækkað í markaðsverð til að gæta jafnræðis á markaði, það var fyrsta skrefið í því að koma jafnvægi á húsnæðismarkaði. Sagði margar lóðir tilbúnar og mikilvægt að skipulagsnefnd fjalli um hvaða hvata sé hægt að bjóða til þeirra sem hugsanlega hafa áhuga á að byggja.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 702
Málsnúmer 1412009F
Björn Ingi tók til máls undir 2. lið greindi frá að engir fjármunir á fjárlögum ársins 2015 hafi verið settir í rannsóknir við Grynnslin af hálfu ríkisins, sagði skýrslu frá Vegagerðinni ekki vera komna fram. Sagðist hafa fundað með Vegamálastjóra 19. desember og Vegagerðin hafa lagt fram framkvæmdaáætlun til þriggja ára um rannsóknarverkefnið, sagði að sveitarfélagið þyrfti jafnvel brúað bilið til að ýta undir að verkefnið haldi áfram.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 703
Málsnúmer 1412011F
Ragnheiður tók til máls undir 4. lið um erindisbréf atvinnumálanefndar sagði fyrsta verkefni nefndarinnar vera að gera atvinnustefnu fyrir sveitarfélagið og mikilvægt að atvinnulíf blómstri í sveitarfélaginu.
Ásgerður tók til máls undir 13. lið um Gagnaveituna og óskaði eftir upplýsingum um stöðu mála.
Björn Ingi fór yfir ferli málsins til að byrja með verður ljósleiðaranetið í Suðursveit tengt í gegnum örbylgju þar sem lengri tíma tekur að breyta tengingum sem þarf til að hægt sé að tengja kerfið við ljósleiðara. Það hafi verið ákveðið að endurnýja örbylgjunet á Mýrum og vinnu við það muni ljúka á næstu vikum ef veður leyfir. Undanfarið hafa staðið yfir stillingar og prófanir á kerfinu en nú sé það talið vera það gott að hægt sé að setja það í fullan rekstur og stefnt að því að setja sjónvarpspakkann frá Vodafone inná kerfið á næstunni. Einnig er verið að skoða möguleika á áframhaldandi uppbyggingu ljósleiðaranetsins en forsenda þess er að ná samstarfsaðilum í plægingu stofnstrengja.
Forseti bar fundargerðina upp til atkvæða.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
5.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 210
Málsnúmer 1411001F
Fundargerð lögð fram til kynningar.
6.
Ósk um breytingu á aðalskipulagi
Málsnúmer 201412028
Sæmundur greindi frá þörf á breytingu á aðalskipulagi 2012-2030.
bæjarráð og umhverfis-og skipulagsnefnd hefur fjallað um málið.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki að hefja vinnu við breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins 2012-2030 skv. 28. og 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010..
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
7.
Deiliskipulag fyrir flugvöll í Skaftafelli
Málsnúmer 201412027
Sæmundur greindi frá umsókn um gerð deiliskipulags fyrir flugvöll í Skaftafelli.
Umhverfis-og skipulagsnefnd hafa fjallað um málið.
Sæmundur lagði til að bæjarstjórn samþykki að heimila landeigenda að hefja deiliskipulagsvinnu skv. 37. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
8.
Deiliskipulag HSSA
Málsnúmer 201211099
Sæmundur greindi frá að umhverfis-og skipulagsnefnd hefur fjallað um deiliskipulagstillögu HSSA og vísaði til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Markmið með gerð deiliskipulagsins er að byggja við núverandi hjúkrunarheimili og koma upp nýjum þjónustuíbúðum fyrir aldraða, öryrkja og fatlaða. Gert er ráð fyrir stækkun hjúkrunarheimilis með nýbyggingu á tveim hæðum.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi deiliskipulagstillögu skv. 39. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísa henni til annarrar umræðu í bæjarstjórn.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
9.
Umsögn um sveitastjórnar um landskipti, Árnanes, Akurnes og Seljavalla
Málsnúmer 201411056
Sæmundur greindi frá að eigendur jarðarðanna Árnanes, Akurnes og Seljavalla óska eftir landskiptum á jörðinni samkvæmt meðfylgjandi uppdrætti.
Lagði til að bæjarstjórn samþykkir landskiptin með með vísan í 13. gr. jarðarlaga nr. 81/2004 og með vísan í 48 gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samljóða.
10.
Ósk um landskipti, Haga
Málsnúmer 201411060
Sæmundur greindi frá að eigendur jarðarinnar Haga óska eftir landskiptum á jörðinni samkvæmt meðfylgjandi uppdrætti.
Lagði til að bæjarstjórn samþykkir landskiptin með með vísan í 13. gr. jarðarlaga nr. 81/2004 og með vísan í 48 gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samljóða.
11.
Kosningar í nefndir
Málsnúmer 201501002
Forseti bar upp nýjar nefndir fyrir sveitarfélagið.

Fræðslu- og tómstundanefnd
Aðalmenn

Hjálmar Jens Sigurðsson formaður (E)
Anna María Kristjánsdóttir varaformaður (D)
Þórey Bjarnadóttir (E)
Gunnhildur Imsland (B)
Einar Smári Þorsteinsson (B)

Varamenn

Hjördís Skírnisdóttir (E)
Lovísa Rósa Bjarnadóttir (D)
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir (E)
Arna Ósk Harðardóttir (B)
Einar Sigurjónsson (B)

Samþykkt með 7 atkvæðum

Heilbrigðis- og öldrunarnefnd
Aðalmenn

Lovísa Rósa Bjarnadóttir formaður (D)
Kristín Hermannsdóttir varaformaður (E)
Snorri Snorrason (D)
Ásgrímur Ingólfsson (B)
Snæfríður Hlín Svavarsdóttir (B)

Varamenn

Vignir Júlíusson (D)
Ottó Marvin Gunnarson (E)
Björk Pálsdóttir (D)
Sæmundur Jón Jónsson (B)
Sandra Sigmundsdóttir (B)

Samþykkt með 7 atkvæðum

Atvinnumálanefnd

Aðalmenn

Ragnheiður Hrafnkelsdóttir formaður (E)
Óðinn Eymundsson varaformaður (D)
Ottó Marvin Gunnarsson (E)
Kristján S. Guðnason (B)
Erla Rún Guðmundsdóttir ( B)

varamenn

Hlíf Gylfadóttir (E)
Bergþóra O. Ágústdóttir (D)
Aron Franklín Jónsson (E)
Valdimar Ingólfsson (B)
Sigríður Lárusdóttir (B)

Samþykkt með 7 atkvæðum

Menningarmálanefnd
Aðalmenn

Kristín Guðrún Gestsdóttir formaður (E)
Björk Pálsdóttir varaformaður (D)
Magnús Jónasson (D)
Erla Rún Guðmundsdóttir (B)
Kristján S. Guðnason (B)

Varamenn
Svava Kristbjörg Guðmundsdóttir (E)
Heimir Örn Heiðarsson (D)
Hrafnhildur Magnúsdóttir (D)
Gunnhildur Imsland (B)
Ármann Friðriksson (B)
Samþykkt með 7 atkvæðum

Umhverfisnefnd
Aðalmenn

Sæmundur Helgason formaður (E)
Alma Þórisdóttir varaformaður (D)
Hildur Þórsdóttir (E)
Hugrún Harpa Reynisdóttir (B)
Kristján Örn Ebenezarson (B)

Varamenn

Ingólfur Reynisson (E)
Óðinn Eymundsson (D)
Heiðrún Högnadóttir (E)
Ásgerður K. Gylfadóttir (B)
Aðalsteinn Aðalsteinsson (B)

Samþykkt með 7 atkvæðum

Skipulagsnefnd
Aðalmenn
Páll Róbert Matthíasson formaður (D)
Sigurður Mar Halldórsson varaformaður (E)
Herdís Ingólfsdóttir Waage (D)
Aðalsteinn Aðalsteinsson (B)
Ásgerður K. Gylfadóttir (B)

Varamenn
Unnsteinn Guðmundsson (D)
Lars Jóhann Andrésson (E)
Bergþóra Ólafía Ágústdóttir (D)
Björn Sigfinnsson (B)
Hugrún Harpa Reynisdóttir (B)

Samþykkt með 7 atkvæðum
12.
Skýrsla bæjarstjóra
Málsnúmer 201412003
Björn Ingi gerði grein fyrir störfum sínum sl. mánuð.
13.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn
Málsnúmer 200901107
Engar hafa borist.