Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

215. fundur
13. maí 2015 kl. 16:00 - 17:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir Forseti
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir aðalmaður
Sæmundur Helgason 1. varaforseti
Ásgerður Kristín Gylfadóttir 2. varaforseti
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
Starfsmenn
Ásta Halldóra Guðmundsdóttir (ÁHG) fjármálastjóri
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson Upplýsinga- og gæðastjóri
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 716
Málsnúmer 1503019F
Kristján Guðnason tók til máls undir lið 1. atvinnu- og rannsóknarsjóður, greindi frá að atvinnumálanefnd leggur til að endurskoða reglur sjóðsins. Sagðist styðja hugmyndir um að leita eftir fjármagni til að efla sjóðinn.
Björn Ingi Jónsson sagði nauðsynlegt að endurskoða reglurnar, greindi frá að ekki sé mikið fjármagn í sjóðnum í dag aðaluppistaða sjóðsins hafi komið úr sölu Nesjaskóla. Sagði ekki nægt fjármagn til að úthluta úr sjóðnum á næsta ári samkvæmt núgildandi reglun. Skoða mætti hvort tryggja honum aukið fjármagn í fjárhagsáætlun 2016.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 717
Málsnúmer 1504005F
Björn Ingi tók til máls undir 2. lið, fundargerð hafnarstjórnar, breytingar á samgönguáætlun 2013. Las upp eftirfarandi bókun og lagði til að bæjarstjórn gerði hana að sinni.
Bæjarstjórn Hornafjarðar hefur þungar áhyggjur af því hversu litlir fjármunir eru til nauðsynlegra verkefna í tengslum við hafnarmannvirki. Ef áætlanir ríkisins ganga eftir í samgönguáætlun minnkaður hlutur ríkisins úr 75% í 60% í framkvæmdum við hafnarmannvirki á yfirstandandi ári. Einnig er aðeins gert ráð fyrir 100 milljónum til rannsókna á öllum höfnum á Íslandi. Sjávarútvegurinn skilar gífurlega miklum fjármunum til hins opinbera því er ekki óeðlileg krafa um að fjármunum sé veitt í framkvæmdir tengdum hafnarmannvirkum. Sveitarfélagið Hornafjörður hefur barist fyrir því að unnar verði rannsóknir á Grynnslunum og innsiglingunni um Hornafjarðarós. Þessa rannsóknir eru nauðsynlegar til að framkvæmdir byggi á haldgóðri þekkingu. Ekki hefur tekist að tryggja fjármuni í þetta verk þrátt fyrir margar tilraunir þar um.
Bæjarstjórn bendir á það alvarlega ástand sem hefur skapast á Grynnslum og innsiglingunni um Hornafjarðarós. Takmarka þarf djúpristu skipa sem sigla inn til Hafnar í Hornafirði. Dýpið á Grynnslunum hefur minnkað um 2 metra á undanförnum 5 mánuðum og eru þetta um 200.000 rúmmetrar sem safnast hafa upp á þessum tíma. Líkur eru á þetta ástand verði viðvarandi næstu mánuði. Bæjarstjórn bendir á að þetta ástand skapar mikla óvissu um skipaumferð um innsiglinguna inn til Hornafjarðar.
Bæjarstjórn telur mikilvægt að stjórnvöld tryggi fjármuni til samgönguyfirvalda svo gera megi úrbætur strax. Þetta ástand setur sjávarútveg og aðra flutninga til og frá Hornafirði í uppnám. Því er framtíð heils byggðarlags undir í þessu máli.
Ásgerður Gylfadóttir tók einnig til máls undir þessum lið og sagði B. listann styðja bókunina.
Forseti bar bókunina upp til samþykktar.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 718
Málsnúmer 1504010F
Ásgerður tók til máls undir 1. lið atvinnumálanefndar. Fagnaði vinnu við atvinnustefnu sveitarfélagsins og minnti á könnun sem verður lögð fyrir íbúa og fyrirtæki sveitarfélagsins í tengslum við atvinnustefnuna og hvatti fólk til að taka þátt í könnuninni. Sagðist hafa áhyggjur af þeirri þróun í atvinnumálum sem hefur átt sér stað í sveitarfélaginu þar sem þjónustustörfum hefur fækkað við lokun verslana og sameiningu Landsbanka og Sparisjóðsins. Miklar væntingar séu þó bornar til ferðaþjónustunnar og vonandi munu þær standast þar sem mikið sé víða lagt undir. Þá sagðist hún hafa óskað eftir að tekið verði saman hvaða áhrif uppbygging í gistingu hafi á fasteignagjöld frá árinu 2012, þar sem mikil aukning hefur verið á rekstarleyfum frá þeim tíma. Sagði að heimagisting sé orðin atvinnurekstur frekar en aukabúgrein, umfang sé víða orðið það mikið að margir ráðai sér starfsfólk. Brýndi hún bæjarstjórnarfólk og aðra kjörna fulltrúa til að reyna allt sem í þeirra valid stendur til að standa vörð um fjölbreytni starfa á staðnum, það hljóti að koma bæði ferðaþjónustunni og íbúum til góða.
Björn Ingi tók undir orð Ásgerðar, sagðist hafa áhyggjur af einsleitni starfa í sveitarfélaginu sagði hugsanlegan hluta vandans að íbúar sveitarfélagsins versli ekki við þær verslanir sem eru starfandi heldur noti netverslanir. Ásgerður sagði íbúa megi líta í eigin garð en nauðsynlegt sé að hafa verslanir til þess að ferðamenn geti einnig verslað og aðra afþreyingu til að þeir stoppi á svæðinu.
Björn Ingi benti á að matvæladagur verður haldinn í Hólmi þann 20. maí, sagði mikilvægt að taka umræðu um framtíð Matarsmiðju Matís því ekki fæst lengur opinber stuðningur við hana.
Kristján fagnaði því að halda á matvæladag og taldi mikilvægt að hala áfram og styðja við Matarsmiðju Matís.
Þórhildur tók til máls undir lið 1. sagði mikilvægt að vinna atvinnustefnu og ferðamálastefnu saman.
Björn Ingi greindi frá könnun um atvinnumál sem lögð er fyrir íbúa og fyrirtækja en niðurstöður hennar verða unnar með kjörnum fulltrúum og nefndarmönnum á vinnufundi í júní.
Kristján fagnaði vinnu við atvinnu og ferðamálastefnu og stakk upp á að farið verði í vinnu að sjávarútvegstefnu. Einnig spurði hann út í 2. lið menningarmálanefndar um eigur sveitarfélagsins í Mjólkurstöðinni hvort það væri komin niðurstaða um annan geymslustað. Björn Ingi upplýsti að nýir eigendur hafi gefið leyfir fyrir að munirnir fá að vera þar um tíma. Sagði mikilvægt að taka umræðu um hvað eigi að gera við gömlu Jöklasýningunar. Sagði menningarmálanefnd þurfi að taka ákvörðun um málið.
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 719
Málsnúmer 1504012F
Lovísa Rósa tók til máls undir lið 1. heilbrigðisnefnd, greindi frá málþingi sem var haldið um heilbrigði- og öldrun, sagði niðurstöðu málþingsins gefa sterkar líkur á að mikilvægi hreyfingar til að fyrirbyggja ótímabær hrörnun, veikindi og heilabilun.
Greindi frá að Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra hafi setið málþingið, og komið hafi fram í máli hans að hann hafi áhuga á að bæta aðstöðu við Hjúkrunarheimilið og lýsti yfir vilja sínum halda áfram með þjónustusamning við sveitarfélagið. Sagði að Ásmundur þingmaður D.lista hafi vakið máls á málþinginu á Alþingi Íslendinga og það verði haldið áfram með umræðu um niðurstöður málþingsins í velferðarnefnd þingsins. Ásgerður tók til máls undir lið 1. Þakkaði fyrir gott og fræðandi málþing. Sagðist hún hafa orðið fyrir vonbrigðum með orð ráðherra þar sem hann hafi lýst því yfir að hann hefði úr litlum fjármunum að vinna úr. Ásgerður sagðist telja það verkefni ráðherra að tryggja aukið fjármagn til uppbyggingar í heilbrigðisþjónustu! Hún lýsti einnig yfir ánægju með að vinn
a við undirbúning langþráðs vegsgæðis yfir Hornafjarðafljót sé orðin sýnileg.
Sæmundur tók til máls um málþingið og þakkaði þeim sem að því stóðu. Sagðist hafa túlkað erindi ráðherra og annarra fyrirlesara eins og lausnin við öldrunarmálum lægi í því að kaupa hlaupabretti og lyftingartæki, ekki að byggja stofnanir. Sagði að ráðherra hafa greint frá að unnið sé að framkvæmdaráætlun um þörf á byggingu hjúkrunarrýma og komið hafi í máli hans að þörfin sé mest fyrir hjúkrunarrými á höfuðborgarsvæðinu. Kallaði eftir að samráði um framkvæmdaráætlun við dreifbýlið. Sagði sterk rök að flýtja framkvæmdum þar sem kostnaður við rekstur eykst ekki við byggingu nýs hjúkrunarheimilis á Höfn, benti á að flest tvíbýli hjúkrunarheimila á Suðurlandi eru á Höfn.
Björn Ingi hrósaði málþinginu og fagnaði því að það hafi verið tekið til umræðu á Alþingi. Sagði ráðherra er jákvæðan um áframhaldandi þjónustusamning um rekstur þessa málaflokks. Sagði það vera skyldu ráðherra að berjast fyrir meiri fjármunum til framkvæmda fyrir nýbyggingu hjúkrunarheimilis.
Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 214
Málsnúmer 1503012F
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
6.
Ársreikningur sveitarfélagsins 2014
Málsnúmer 201503070
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri fór yfir ársreikning 2015 sem var kynntur af endurskoðanda sveitarfélagsins á síðasta bæjarstjórnarfundi.
Lagði til að ársreikningur sveitarfélagsins yrði samþykktur.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
7.
Viðauki I við fjárhagsáætlun 2015
Málsnúmer 201504050
Björn Ingi Jónsson lagði fram viðauka I við fjárhagsáætlun 2015.
Handbært fé í ársbyrjun hækkar um 73,4 m.kr. í A- og B hluta vegna niðurstöðu ársreiknings 2014 Aukning á framkvæmdum er 58 m.k. þar af eru 42,6 m.kr. færðar frá fyrra ári framkvæmdir sem ekki náðist að klára. Skatttekjur hækka um 41,4 m.kr. og er það fyrst og fremst hækkun á framlagi Jöfnunarsjóðs vegna málefna fatlaðra og reksturs grunnskóla. Rekstur málaflokka hækka um 19,5 m.kr. og er það fyrst og fremst hækkun á málefnum fatlaðra og fjárhagsaðstoð.

Búið er að lækka lántöku ársins úr 200 m.kr. í 150 m.kr. og færa hana úr A-hluti í B- hluta, en stærstu framkvæmdir ársins eru fráveituframkvæmdir að upphæð 163 m.kr. Gert er ráð fyrir að lántakan sé til 15 ár í stað 10 ára í samþykktri áætlun.

Helstu niðurstöður viðauka I í A- og B-hluta eru:

Rekstrarniðurstaða 151,3 m.kr. betri afkoma 37,6 m.kr.
Veltufé frá rekstri 292,5 m.kr. aukning um 22 m.kr.
Framkvæmdir 358,0 m.kr. aukning um 58 m.kr.
Lántaka ársins 150,0 m.kr. lækkun um 50 m.kr.
Afborganir ársins 83,8 m.kr. lækkun um 1,2 m.kr.
Handbært fé í árslok 145,7 m.kr. sem er hækkun um 0,5 m.kr.

8.
Ráðning fjármálastjóra
Málsnúmer 201504027
Björn Ingi greindi frá ráðningu fjármálastjóra Ólöfu Ingunni Björnsdóttur ráðning hennar var samþykkt í bæjarráði. Sex umsækjendur sóttu um stöðuna.
Bæjarstjóri óskaði eftir staðfestingu bæjarstjórnar þar sem um lykilstjórnanda er að ræða.
Þakkaði hann Ástu Halldóru Guðmundsdóttur fyrir vel störf sín hjá Sveitarfélaginu undanfarin 36 ár en hún mun láta af störfum í haust.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Ráðninga Atvinnu- og ferðamálafulltrúa
Málsnúmer 201504028
Björn Ingi greindi frá ráðningu atvinnu- og ferðamálafulltrúa Árdísi Ernu Halldórsdóttur, ráðning hennar var samþykkt í bæjarráði. Sjö umsækjendur sóttu um stöðuna.
Bæjarstjóri óskaði eftir staðfestingu bæjarstjórnar þar sem um lykilstjórnanda er að ræða.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Jafnréttisáætlun 2014-2018
Málsnúmer 201501073
Þórhildur greindi frá vinnu við endurskoðun jafnréttisáætlunar, félagsmálanefnd hefur unnið að breytingum. Helstu breytingar felast í að markmið aðgerðir, ábyrgðaraðli og tímasetning eru settar í hverja grein. Einnig er bætt inn í 4. gr. að það falli í hlut meirihluta hverju sinni að tryggja að annað kynið eigi ávallt fulltrúa í þriggja manna nefndum.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki Jafnréttisáætlun 2014-2018.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Reglur um tómstundastyrk
Málsnúmer 201501049
Þórhildur gerði grein fyrir vinnu við reglurnar, megin markmið með reglunum er að öll börn geti tekið þátt í uppbyggilegu tómstundastarfi óháð efnahag eða félagslegum aðstæðum. Meginskilyrði styrksins er að starfsemin sé á forsendum gilda og forvarna.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki reglurnar.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Breyting á aðalskipulagi, útrás fráveitu.
Málsnúmer 201505001
Sæmundur gerði grein fyrir tillögu um breytingu á aðalskipulagi 2012-2030.
Fyrirhugaðar breytingar ná yfir landsvæði við Ósland og hafnarsvæði.
A: Verslunar og þjónusta.
A þjónustusvæði á Óslandi verði afmörkun á um 4 ha svæði fyrir verslun og þjónustu, OP1. Á nýju svæði verði gert ráð fyrir verslun og þjónustu þ.m.t. hótelum, gistiheimilum, gistiskálum og veitingahúsum.
Samræmi við byggð og starfsemi á miðsvæði M1, ma. má ætla að þar geti hentað að byggja yfir starfsemi sem sækir styrk í mikilfenglegt útsýni frá svæðinu, svo sem náttúru- eða gestastofur.
B: Skipulagssvæðið fyrir breytingu B er á hafnarsvæði (H) með breytingu á skipulagi verður gert ráð fyrir nýrri útrás fráveitu.
Breytingartillagan er ekki matsskyld og því ekki háð lögum nr. 105/2006. Hins vegar verður gerð almenn grein fyrir helstu umhverfisáhrifum breytingartillögu á umhverfið í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010. Áhersla umfjöllunar kemur fram í köflum 2.1 og 2.2.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi lýsingu um breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins 2012-2030 skv. 30. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
13.
Óveruleg breyting á aðalskipulagi, landnotkun Hafnarsvæði
Málsnúmer 201505002
Sæmundur gerði grein fyrr tillögu að óverulegri breytingu á aðalskipulagi.
Markmið þessarar aðalskipulagsbreytingar er að heimila byggingu skólpdælustöðvar í Óslandi.
Forsendur breytingarinnar eru þróun og uppbygging á fráveitukerfi á Höfn, viðbrögð við breyttri hönnun og vilja
sveitarfélagsins til þess að bregðast skjótt við.
Skipulagsnefnd telur að hér sé um óverulega breytingu að ræða, þar sem hún felst í að skýra blæbrigði og heimili
notkun einnar lóðar innan hafnarsvæðis.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki tillöguna og málsmeðferð verður skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
14.
Breyting á aðalskipulagi, Hof Öræfum
Málsnúmer 201504071
Sæmundur gerði grein fyrir að skipulagshugmyndir falli ekki að núgildandi aðalskipulagi, því er lagt til að bæjarstjórn samþykki heimild til að fara í breytingar á aðalskipulagi við Hof skv. 30. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt samhljóða.
15.
Árnanes 5. Deiliskipulag
Málsnúmer 201309014
Sæmundur greindi frá að, vegna ágalla á afgreiðslu deiliskipulagsins við Árnanes 5 þarf að hefja ferli við deiliskipulag að nýju.
Markmið með gerð deiliskipulags er að sníða ramma utan um uppbyggingu í ferðaþjónustu á jörðinni.
Lagði til við bæjarstjórn að samþykka deiliskipulagstillöguna skv. 40. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
16.
Deiliskipulag við Holt á Mýrum
Málsnúmer 201112005
Sæmundur greindi frá að deiliskipulagsvinnu við Holt var frestað af bæjarstjórn þann 3. apríl 2014 að ósk Vegagerðarinnar meðan unnið var að staðsetningu nýs vegstæðis yfir Hornafjarðarfljót. Skipulagsnefnd óskar eftir að málið verði tekið upp að nýju og haldið verði áfram með deiliskipulagsvinnuna nú þegar endanleg staðsetning vegstæðis við Holt er ljós.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki að hefja að nýju vinnu við deiliskipulag við Holt á Mýrum skv. 40. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
17.
Deiliskipulag tjaldsvæðis, Hafnar
Málsnúmer 201504074
Sæmundur gerði grein fyrir að bæjarráð samþykkti á 711. fundi sínum vísaði til skipulagsnefndar hvort ekki væri ástæða til að fara í gerð deiliskipulagi á svæðinu. Skipulagsnefnd hefur farið yfir málið og leggur til að farið verði í gerð deiliskipulags.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki að fara í gerð deiliskipulags.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
18.
Ósk um frágang á lóðarmörkum Silfurbraut 3 og 5
Málsnúmer 201411015
Sæmundur gerði grein fyrir að grenndarkynning hefur farið fram, ein athugasemd barst og tekið hefur verið tillit til hennar.
Lagði til að bæjarstjórn heimili breytingar á lóðarmörkum á Silfurbraut 1,3 og 5.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
19.
Umsókn um framkvæmdaleyfi, fráveita Nesjahverfi
Málsnúmer 201505012
Sæmundur greindi frá umsókn um framkvæmdaleyfi sveitarfélagsins fyrir fráveitu í Nesjahverfi hún samræmist aðalskipulagis sveitarfélagsins.
Hann lagði til að bæjarstjórn samþykki framkvæmdaleyfið skv. 13. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
20.
Skýrsla bæjarstjóra
Málsnúmer 201412003
Björn Ingi bæjarstjóri gerði grein fyrir störfum sínum sl. mánuð.
21.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn
Málsnúmer 200901107