Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

217. fundur
13. ágúst 2015 kl. 16:00 - 17:20
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir Forseti
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Sæmundur Helgason 1. varaforseti
Ásgerður Kristín Gylfadóttir 2. varaforseti
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Ottó Marvin Gunnarsson 2. varamaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Ólöf Ingunn Björnsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 724
Málsnúmer 1506004F
Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 725
Málsnúmer 1506005F
Sæmundur tók til máls undir Lið 6 í fundargerð fræðslu- og tómstundanefndar.
Sæmundur fagnar því að niðurstöður úr könnun Félagsvísindastofnunar eru komnar fram og þakkaði foreldrum og starfsmönnum fyrir þátttökuna. Mikilvægum áfanga náð. Sagði félagsvísindastofnun Háskóla íslands, fræðslustjóri og fræðslu- og tómstundanefnd eigi hrós fyrir fagleg og vönduð vinnubrögð. Sagði að þegar rýnt er í niðurstöðurnar þá kemur í ljós að mikill vilji vera til þess að sameina starfsemi leikskólanna undir einu þaki. Niðurstöður skoðanakönnunar eru afdráttarlausar hvað þetta varðar.
Sæmundur telur einsýnt að breyta umgjörð leikskólanna og aðlaga hana að þeim skýra vilja sem kemur fram í niðurstöðum könnunarinnar, annaðhvort með því að byggja við annan leikskólann eða byggja nýjan. Sagði að málið muni fá efnislega umfjöllun í fræðslu- og tómstundanefnd, í bæjarráði og bæjarstjórn og í komandi fjárhagsramma sveitarfélagsins.

Kristján tók til máls um opna íbúafundinn um leikskólamálin. Að hans mati var byrjað á öfugum enda í kynningu málsins. Verklagið hafði m.a. í för með sér óvissu fyrir starfsfólk leikskólanna.

Ásgerður tók til máls og tók undir með Kristjáni varðandi vinnubrögð meirihlutans. Að hennar mati er skýrslan óskýr og óvönduð. Sagði hún mikilvægt að ákvörðun um byggingu nýs leikskóla yrði tekin með hliðsjón af öðrum aðkallandi framkvæmdum í bæjarfélaginu.
Ásgerður tók til máls undir Lið 2 um umhverfisverðlaun. Spurði hún í hvaða farvegi úthlutunin væri fyrir 2015.
Ásgerður tók til máls um fundargerð fræðslu- og tómstundanefndar er varðar afgreiðslu á gjaldskrá Vöruhússins. Gagnrýndi hún að ekkert fylgiskjal og engin gjaldskrá fylgdi málinu. Hún spurði hvernig málið var afgreitt innan stjórnsýslunnar.
Ásgerður tók til máls undir Lið 7 er varðar dagvistun í Öræfum og Suðursveit. Spurði hvar málið væri statt og hvort þjónustan verði í boði í sveitunum í haust.
Liður 10 - velferðarteymi. Ásgerður lýsir yfir vonbrigðum með ranga vísun í skjöl undir þessum lið.
Þá tók Ásgerður til máls um framkvæmdir og bendir á að ekki hafi komið upplýsingar frá fjármálasviði varðandi framkvæmdir í Vöruhúsi. Ásgerður kallar eftir upplýsingum um stöðu mála.
Jökulsárlón - Ásgerður óskar eftir upplýsingum um stöðu salernismála við Jökulsárlón.
Fjallsárlón. Ásgerður óskar eftir upplýsingum um stöðu mála.
Samþykktir um gæludýrahald, katta- og hundahald. Ásgerður gagnrýnir fylgiskjöl með málinu, þ.e. að ekki voru endanleg skjöl meðfylgjandi heldur einungis drög.

BIJ tók til máls. Undrast ekki viðbrögð minnihluta varðandi leikskólamálin enda hafa þau sýnt að þau vilji ekki breytingar í þessum málum.
BIJ vísaði gagnrýni Ásgerðar á bug varðandi skýrslu félagsvísindadeildar. Að hans mati er hún skýr.
BIJ svaraði fyrirspurn Ásgerðar um leikskólamál í Öræfum og Suðursveit. Fyrirhugað er að finna manneskju til að taka að sér dagvistun barna í Öræfum og Suðursveit og byggist framgangur málsins á því.
BIJ svaraði fyrirspurn um Vöruhúsið - að í fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir 5 mkr. til framkvæmda sem ættu að duga út þetta ár.
Jökulsárlón - BIJ greindi frá að hann hefur átt viðræður við aðila máls. Ekki hafa enn komið ásættanleg viðbrögð frá landeigendum. Fjallsárlón - BI sagði forsætisráðuneytið hafa samþykkt samninginn og að hann verði lagður fyrir bæjarráð á næsta fundi.
BIJ svaraði fyrirspurn um samþykkt um Gæludýrahald - Staðan væri að samþykktin hefur ekki verið afgreidd af HAUST þar sem beðið er eftir svari frá einu sveitarfélagi.

Sæmundur tók til máls. Hann svarði spurningunni um umhverfisverðlaunin. Umhverfisnefnd hefur falið starfsmanni að auglýsa eftir tilnefningu eins og verið hefur gert.

BIJ tók til máls um gjaldskrá Vöruhúss. Leggur til að hún verðir tekin fyrir á næsta bæjarráðsfundi. Tekur undir með Ásgerði varðandi vöntun á gögnum á bakvið fundargerðir og rugling á gögnum. Segir hann þetta ekki gefa skýra mynd af afgreiðslu málsins.

ÁSgerður tók til máls. Sagði ekki rétt að minnihluti sé á móti öllum breytingum í leikskólamálum. Að hennar mati snýst þetta um forgangsröðun og vönduð vinnubrögð. Segir hún minnihlutann jafnframt vilja hafa aðkomu að málinu.
Ásgerður benti á mistök við könnunina og harmar hún að það komi ekki fram í skýrslunni þó svo hún efist ekki um niðurstöðu skýrslunnar.

Gunnhildur tók til máls um gjaldskrá Vöruhúss og skipulag skjala.

BIJ tók til máls. Segir það hafa verið öllum ljóst að farið yrði í skoðanakönnun um skipulag á leikskólamálunum enda hluti af samstarfssamningi meirihlutans.

Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 726
Málsnúmer 1506008F
Ottó tók til máls undir 11. lið fundargerðarinnar um landgræðslu og nýtingu lands í Skógey. Fór yfir skyldur landeigenda í þeim efnum. Hvetur hann landeigendur að vinna með Landgræðslunni í þessum málum með sátt.

Ásgerður tók til máls undir 5. lið fundargerðar heilbrigðis- og öldrunarnefndar. Fagnar úthlutun Framkvæmdasjóðs aldraðra fyrir viðbyggingu og endurbótum á aðstöðu hjúkrunarheimilisins.
Liður 14. Fagnar að samningurinn sé kominn á milli sveitarfélagsins og Búnaðarsambands Austur-Skaftfellinga.
Ásgerður tók til máls undir 21.lið fundargerðar um starfsmannamál. Fór hún yfir niðurstöðu dóms vegna áminningar starfsmanns Hafnarinnar. Niðurstaða dómsins var að áminningin var ógild og sveitarfélaginu gert að greiða stefnanda miskabætur og málskostnað. Heildargreiðsla til stefnanda varð 1.176.122 kr. Auk þess var kostnaður sveitarfélagsins vegna lögfræðikostnaðs og fleira á aðra milljón króna.

Ásgerður ræddi einnig fyrirhugaðar breytingar á skipuriti sveitarfélagsins sem hafa skilað sér í auglýsingu m.a. um skipulagsstjóra ásamt ljósmóður og hvetur hún fólk til að sækja um auglýst störf.

BIJ tók til máls undir 4.lið um verkefnið Ræsing. Fór yfir hugmynd og markmið verkefnisins. Bæjarstjóri hvetur einstaklinga og fyrirtæki til þátttöku í verkefninu.

Kristján tók til máls um atvinnustefnu Hornafjarðar. Fór yfir stöðu verkefnisins og lýsti yfir vonbrigðum með ummæli bæjarstjóra á síðasta bæjarstjórnarfundi um að síðasti meirihluti hafi ekkert gert í vinnu við endurskoðun atvinnustefnunnar.
BIJ tók til máls um atvinnustefnuna. Sagði mikilvægt að sem flestir komi að vinnunni svo útkoman verði sem farsællegust fyrir sveitarfélagið í heild.
Ásgerður tók til máls um atvinnumálin. Spurði bæjarstjóra um stöðu Matís og auglýsta stöðu.
BIJ hafði ekki upplýsingar um fjölda umsókna.
Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 727
Málsnúmer 1507002F
BIJ tók til máls. Greindi frá að búið væri að dýpka rennu í gegnum Grynnslin. Beðið er eftir viðbrögðum frá ríkinu varðandi kostnaðarskiptingu milli ríkisins og sveitarfélagsins. BIJ fór jafnframt yfir stöðu mála varðandi útboð í viðhaldsdýpkun. Sagði málið í ferli. BIJ gagnrýndi jafnframt fyrirkomulag þessa mála hjá ríkinu og lagði áherslu á mikilvægi þess að sveitarfélagið standi á sínu í þessum málum.
Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarráð Hornafjarðar - 728
Málsnúmer 1507005F
Sæmundur tók til máls undir lið 6. í fundargerð SASS. Sæmundur tekur undir með stjórn SASS sem ræðir þar viðbrögð og umsögn um væntanlega samgönguáætlun. Þar er talað um mikilvægi þess að fækka einbreiðum brúm á þjóðvegi 1 í Skaftafellssýslum, dýpkun sunnlenskra hafna og mikilvægi þess að finna framtíðarlausn innsiglingar um Hornafjarðarós og Grynnslin. Og að lögð er áhersla á að framkvæmdum við brú yfir Hornafjarðarfljót verði flýtt ásamt tilheyrandi vegarlagningu.
Sæmundur vék einnig að Sóknaráætlun landshlutanna og nýafstöðnum úthlutunum úr Uppbyggingasjóði Suðurlands. Svo virðist sem verkefni sem tengjast rannsóknum og greiningu eigi ekki lengur möguleika á því að fá styrk í gegnum Uppbyggingarsjóð Suðurlands. Sagði það koma sér mjög illa fyrir margar stofnanir Nýheima. Þeim er uppálagt af sveitarstjórnum, þingi og ráðherrum að þessir sjóðir eigi mögulega að styðja skilgreind rannsóknarverkefni og stuðla að aukinni þekkingu öllum til hagsbóta.

Sæmundur lagði fram bókun og lagði til að bæjarstjórn gerði hana að sinni.
"Á undanförnum árum hafa sveitarfélög og ríki staðið að uppbyggingu fræða- og menntastofnanna á landsbyggðinni. Til að þessar stofnanir geti haldið áfram að vaxa og dafna er þeim uppálagt af sveitarstjórnum, þingi og ráðherrum að sækja í opinbera sjóði til að styðja reksturinn og stuðla að aukinni þekkingu öllum til hagsbóta.
Í ljósi tveggja síðustu úthlutana úr sjóðum á vegum SASS hvetur Bæjarstjórn Hornafjarðar stjórn SASS og stjórn Uppbyggingarsjóðs Suðurlands að skoða hvernig stofnanir, opinber hlutafélög og samtök í meirihlutaeigu ríkis eða sveitarfélaga geti átt aðgang að styrkjum sem styðja við atvinnuskapandi verkefni á Suðurlandi og efla fjölbreytileika atvinnulífs og jákvæða samfélagsþróun á Suðurlandi."
Forseti bar tillöguna, samþykkt með sjö atkvæðum.
Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
6.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 216
Málsnúmer 1506002F
Fundargerð lögð fram til kynningar.
7.
Skýrsla bæjarstjóra
Málsnúmer 201412003
Bæjarstóri gerði grein fyrir helstu verkefnum sínum síðustu tvo mánuði.
8.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn
Málsnúmer 200901107
Engar fyrirspurnir hafa borist.