Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

222. fundur
14. janúar 2016 kl. 16:00 - 16:55
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Þórhildur Ásta Magnúsdóttir aðalmaður
Sæmundur Helgason 1. varaforseti
Ásgerður Kristín Gylfadóttir 2. varaforseti
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Páll Róbert Matthíasson 1. varamaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 745
Málsnúmer 1512001F
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 746
Málsnúmer 1512003F
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 747
Málsnúmer 1512012F
1 Atvinnumálanefnd
ÁKG tók til máls undir fyrsta lið um götu- og torgsölu í sveitarfélaginu. Hún spurði álits bæjarstjórnamanna á því hvort ekki ætti að takmarka opnunartíma í reglum fyrir slíka vagna.
BIJ tók til máls og tók undir vangaveltur ÁKG. Gefin verður út gjaldskrá fyrir starfsemi veitingavagna. Málið er í frekari skoðun í atvinnumálanefnd. Sagði hann að í þeirri vinnu verði litið til útfærslu annarra sveitarfélaga. Jafnframt verði hugað að leyfilegum staðsetningum/svæðum fyrir slíka vagna.
3 Fræðslu- og tómstundanefnd
ÁKG tók til máls undir fjórða lið. Hún spurði hvernig mat á stjórnskipan grunnskóla í sveitarfélaginu muni fara fram. Benti hún á möguleikann að sameina allt skólastarf, það er leik-, grunn- og tónskóla í ljósi þess að unnið er að sameiningu leikskólanna. Sagði hún mikilvægt að þessi mál verði skoðuð í heild með framtíðarlausn að leiðarljósi.
BIJ svaraði því til að hann hafi átt fund með skólastjórnendum í byrjun desember sl. um framtíðarsýn í þessum málaflokki. Benti hann á að útlit er fyrir áframhaldandi fækkun nemenda í sveitarfélaginu og því mikilvægt að móta framtíðarsýnina með tilliti til þess. Sagði hann ljóst að skoða þarf vandlega öll þessi mál og jafnframt líta til reynslu annarra sveitarfélaga.
4 Hafnarstjórn Hornafjarðar
ÁKG tók til máls og spurði hvortkomin væri vindmylla á Austurfjörur.
BIJ tók til máls og sagði að frá 29. desember hafi öll siglingaljós á Austurfjörum verið keyrð á vindorku. Að hans mati hefur þetta gengið framar vonum þó alltaf geti einhverjir hnökrar komið uppá.
ÁKG tók til máls og fagnaði vindmylluinnleiðingunni, sagði það stórt skref í umhverfismálum hjá sveitarfélaginu.
BIJ tók til máls og sagði að til stendur að kynna vindmylluverkefnið og framgang þess. Heildarkostnaður við standsetningu var um 2 m.kr. Einnig benti hann á að Hornafjörður er fyrsta sveitarfélagið sem gerir áætlun um minnkun losunar gróðurhúsalofttegunda með samningi við Landvernd og Samband íslenskra sveitarfélaga.
9 Skipulagsbreytingar hjá SASS
ÁKG tók til máls og spurði frétta um stöðu mála vegna skipulagsbreytinga hjá SASS.
BIJ tók til máls og sagði að fundur verði hjá stjórn SASS á morgun. Von er á upplýsingum um stöðu mála eftir þann fund.

Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 748
Málsnúmer 1512014F
1. Heilbrigðis- og öldrunarnefnd
BIJ tók til máls um erfiða fjárhagsstöðu HSU Hornafirði. HSU Selfossi hefur ekki staðið við gildandi samning um mánaðarlegar greiðslur né hlutdeild HSU Hornafirði í launabótum. Upplýsti hann að fundað hafi verið með forstjóra HSU og ráðherra um þessi mál. Borist hafa greiðslur vegna desember og vegna launabóta en enn er beðið eftir janúargreiðlu.
3 Fjárhagsáætlun 2016
ÁKG tók til máls um úthlutun stofnbúnaðar til stofnana sveitarfélagsins. Benti á að endurbætur á lóð grunnskólans var tekin út fyrir í þeirri úthlutun. Ákveðið var að sér fjármagn verði sett í það verkefni.

Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarráð Hornafjarðar - 749
Málsnúmer 1601003F
Fundargerðin samþykkt með sjö atkvæðum.
6.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 221
Málsnúmer 1511012F
Fundargerð lögð fram til kynningar.
7.
Deiliskipulag við Holt á Mýrum
Málsnúmer 201112005
Deiliskipulagstillaga fyrir Holt á Mýrum lögð fram.
Markmið deiliskipulagsins er tvíþætt.
Annarsvegar að þróa áfram þá hugmynd að útbúa lóðir undir íbúðarhús í samræmi við þá byggð sem er þar í dag.
Hinsvegar að útbúa aðstöðu í og við Félagsheimilið Holt sem verði nýtt í framtíðinni sem aðstaða fyrir minni uppákomur.
Ekki er þörf á að halda kynningarfund þar sem deiliskipulagstillagan er samkvæmt aðalskipulagi Sveitarfélagsins 2012-2030 skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi deiliskipulagstillögu og vísi henni í lögformlegt ferli skv. 40.og 41. gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
8.
Deiliskipulag fyrir Hof í Öræfum
Málsnúmer 201010059
Deiliskipulag fyrir Hof í Öræfum var í kynningu frá 23. október til 28. nóvember 2015, samhliða breytingu á aðalskipulagi Hofi. Engar athugasemdir bárust. Markmið og skilmálar deiliskipulagsins er uppbygging mannvirkja í tengslum við landbúnaðarstarfsemi og aukna ferðaþjónustu á jörðinni.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki fyrirliggjandi deiliskipulagstillögu og vísi henni í lögformlegt ferli skv. 41.og 42.gr. skipulagslaga.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Fyrirspurn um skipulag, Hala
Málsnúmer 201510031
Erindi frá Þorbjörgu Arnórsdóttur um fyrirhugaða byggingu á Hala. Grenndarkynna þurfti byggingaráformin þar sem ekki liggur fyrir deiliskipulag á svæðinu.
Grenndarkynning hefur farið fram, frestur til að skila inn athugasemdum var til 9. desember 2015, engar athugasemdir bárust.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki erindið þar sem það samræmist aðalskipulagi sveitarfélagsins.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Fyrirspurn um skipulag v. bygging íbúðarhúss að Seljavöllum 3
Málsnúmer 201511007
Erindi frá Reyni Ásgeirssyni um fyrirhugaðar byggingaframkvæmdir á Seljavöllum III lagt fram. Grenndarkynna þurfti byggingaráformin þar sem ekki liggur fyrir deiliskipulag á svæðinu.
Grenndarkynning hefur farið fram, frestur til að skila inn athugasemdum var til 10. desember 2015, engar athugasemdir bárust.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki erindið þar sem það samræmist aðalskipulagi sveitarfélagsins.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Kosningar í nefndir
Málsnúmer 201501002
Umhverfisnefnd
Lagt til að Ingibjörg Lilja Pálmadóttir verði varamaður í stað Ásgerðar K. Gylfadóttur.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Fundartími bæjarstjórnar
Málsnúmer 201512068
Lagði til að fundartími bæjarstjórnar verði 2. fimmtudag í mánuði.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
13.
Skýrsla bæjarstjóra
Málsnúmer 201412003
Bæjarstjóri gerði grein fyrir störfum sínum frá síðasta bæjarstjórnarfundi.
14.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn
Málsnúmer 200901107
Engar fyrirspurnir hafa borist.