Fara í efni

Bæjarstjórn Hornafjarðar

224. fundur
10. mars 2016 kl. 13:00 - 15:25
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Lovísa Rósa Bjarnadóttir Forseti
Björn Ingi Jónsson aðalmaður
Sæmundur Helgason 1. varaforseti
Ásgerður Kristín Gylfadóttir 2. varaforseti
Kristján Sigurður Guðnason aðalmaður
Gunnhildur Imsland aðalmaður
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir 1. varamaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson upplýsinga og gæðastjóri
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ólöf I. Björnsdóttir Fjármálastjóri
Dagskrá
1.
Bæjarráð Hornafjarðar - 754
Málsnúmer 1602003F
1 Ósk um áheyrnafulltrúa í nefndum sveitarfélagsins
Ragnheiður tók til máls og óskaði ungmennaráði innilega til hamingju með áfangann.
3 Jökulheimar - staða
Björn Ingi tók til máls. Fór yfir forsögu og þróun verkefnisins. Leitað var eftir þátttöku fjárfestingasjóðs en því miður náði það samstarf ekki fram að ganga. Þrátt fyrir þessa niðurstöðu segir BIJ mikilvægt að halda áfram vinnu við verkefnið.
11 Skipulagsbreytingar hjá SASS
Kristján tók til máls og óskaði eftir upplýsingum um stöðu atvinnufulltrúa svæðisins. BIJ sagði sveitarfélagið hafa unnið hart að því að halda umræddri stöðu í sveitarfélaginu. Gengið var út frá að viðkomandi starfsmaður héldi umsömdum kjörum. Sagði BIJ frá því að búið væri að gera samning milli SASS og Þekkingasetur Nýheima .
Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
2.
Bæjarráð Hornafjarðar - 755
Málsnúmer 1602010F
5 Öldrunarrannsókn
BIJ greindi frá verkefni á vegum Janus heilsuefling slf. sem bæjarráð samþykkti þátttöku í. Sveitarfélagið leggur 4,5 m.kr. til verkefnisins á ári næstu þrjú árin.
Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
3.
Bæjarráð Hornafjarðar - 756
Málsnúmer 1602015F
1. Heilbrigðis- og öldrunarnefnd
Ásgerður tók til máls um fjárhagsáætlun HSU Hornafirði. Sagði hún erfiða stöðu stofnunarinnar að stærstum hluta skýrast af auknum kostnaði í sjúkraflutningum vegna mikillar aukningar útkalla í sýslunni.
2 Hafnarstjórn Hornafjarðar
Ásgerður tók til máls um grynnslin og innsiglinguna um Hornafjarðarós. Lagði hún til að bæjarstjórn geri bókun bæjarráðs og hafnarstjórnar að sinni. Bæjarstjórn leggur áherslu á áframhaldandi markvissum aðgerðum til bóta vegna innsiglingar við Hornafjarðarós. Bæjarstjórn telur skynsamlegt að byggður verði varnargarður frá Hvanney yfir í Einholtskletta til að minnka sandburð inná Grynnslin. Það er augljóst að ef ekki verður af neinum framkvæmdum mun það ástand sem skapaðist síðast liðið vor endurtaka sig fyrr eða síðar. Framtíð sjávarútvegs á Hornafirði veltur á að innsigling um Hornafjarðarós verði tryggð. Forseti bar bókunina upp til atkvæða. Samþykkt með sjö atkvæðum.
3 Atvinnumálanefnd
Kristján tók til máls um ferðaþjónustuna á svæðinu. Sagði hann mikilvægt að huga að uppbyggingu afþreyingar fyrir ferðamenn. Óskar hann eftir að stofnaður verði starfshópur fyrir verkefni Jökulheima. Björn Ingi tók undir orð Kristjáns en kallar eftir þátttöku ferðaþjónustuaðila í þessari uppbyggingu. Sagði hann mikla vinnu hafa átt sér stað til að koma verkefninu í framkvæmd. Það hefur ekki gengið hingað til og sagði hann engu að síður mikilvægt að halda áfram og finna mögulegan flöt fyrir verkefnið. Ásgerður tók til máls og lagði til að leitað yrði til hluthafa í Ríki Vatnajökuls með samstarfsgrundvöll við uppbyggingu Jökulheima að markmiði. Að hennar mati er þetta eðlilegt næsta skref áður en leitað er til fjárfesta annarsstaðar. Björn Ingi tók til máls og tók undir orð Ásgerðar. Telur hann mikilvægt að huga að næstu skrefum í framgangi verkefnisins með samstarfi aðila innan sveitarfélagsins.
9 Starfamessa á Hornafirði
BIJ tók til máls um þá ákvörðun að taka þátt í verkefninu þar sem markmiðið er að kynna fjölbreytt störf fyrir unga fólkinu okkar.
Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
4.
Bæjarráð Hornafjarðar - 757
Málsnúmer 1603002F
Fundargerð samþykkt með sjö atkvæðum.
5.
Bæjarstjórn Hornafjarðar - 223
Málsnúmer 1601015F
Fundargerð lögð fram til kynningar.
6.
Verkefni til fjölgunar leiguíbúða
Málsnúmer 201602052
Björn Ingi fór yfir þróun og núverandi stöðu húsnæðismála í sveitarfélaginu ásamt fyrirhuguðum aðgerðum. Í dag eru 27 umsóknir um húsnæði á borði félagsmálastjóra. Lagt er til að byggð verði tvö til þrjú hús á Höfn, eða 10 til 15 íbúðir.
Þegar endanleg fjárþörf og útfærsla verkefnisins liggur fyrir verður málið tekið aftur á dagskrá bæjarstjórnar ásamt viðeigandi breytingum á fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkir að unnið verði áfram að því að fjölga leiguíbúðum. Kannaðir verði möguleikar á samstarfi við fyrirtæki og einstaklinga um fjölgun leiguíbúða.
Jafnframt lýsir bæjarstjórn yfir vilja sínum til að standa að stofnun sjálfseignarstofnunar um byggingu leiguíbúða á grunni framkominna upplýsinga.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
7.
Breytingar í leikskólamálum á Höfn
Málsnúmer 201602046
Björn Ingi tók til máls og lagði til svo hljóðandi tillögu:
Að ráðist verði í viðbyggingu og endurbætur á Lönguhólum til að ná fram markmiðum um einn leikskóla undir sama þaki. Þessi ákvörðun byggir m.a. á niðurstöðum verkefnagreininga þar sem fram kemur að lóðin er veðursæl og stækkanleg og næg bílastæði eru fyrir hendi. Komið er að endurbótum á húsnæði Lönguhóla án tillits til þess í hvað húsnæðið yrði notað í framtíðinni. Kostnaður við þennan valkost í leikskólamálum er um 290 milljónir á meðan kostnaður við byggingu nýs leikskóla á nýjum stað er áætlaður um 450 milljónir.
Til þess að vinna markvisst að sameiningunni er lögð áhersla á að hefja undirbúning að sameiningu árganga leikskólabarna eftir sumarfrí leikskólanna 2016. Fræðslustjóra í samvinnu við leikskólastjóra er falið að gera áætlun um sameiningu árganga fram að opnun nýs leikskóla.
Sæmundur tók til máls um endanlega ákvörðun í leikskólamálum. Bæjarráð lagði til á fundi sínum s.l. mánudag að viðbygging við Lönguhóla sé vænlegasti kosturinn. Þetta skrifa allir fulltúar í bæjarráði uppá og fagnar Sæmundur þeirri samstöðu sem náðist þar um leiðina sem verður fyrir valinu. Viðbygging við Lönguhóla er framkvæmd sem mun kosta 292 milljónir með öllum þeim framkvæmdum og endurbótum sem fylgja. Sagði Sæmundur að upphaflega hafi besti kosturinn að hans mati verið að byggja alveg nýtt hús á Leirusvæðinu. Engu að síður styður hann ákvörðun bæjarráðs. Nýtt hús myndi kosta 452 milljónir. Því er munurinn á viðbyggingu við Lönguhóla og byggingu nýs húss 160 milljónir. Fyrir það er hægt að setja af stað byggingu á 10-15 leiguíbúðum, sem mikil þörf er fyrir samanber umræðuna hér fyrr á fundinum. Að hans mati rýrir þessi valkostur, að byggja við Lönguhóla, á engan hátt þau gæði er varða aðstöðu handa börnum og starfsfólki. Meirihluti bæjarráðs lagði einnig til að flýta sameiningu árganga. Það er gert til þess að útskriftarárgangur 2016-17 njóti líka góðs af sameiningunni og fái þetta tækifæri líka áður en þau fara í grunnskólann. Þannig er komið til móts við óskir og vilja foreldranna. Núna í framhaldinu af þessari ákvörðun mun fræðslustjóri, stjórnendur og starfsmenn finna góða lausn til að koma til móts við þessa ósk og vilja foreldra.
Sæmundur fagnar niðurstöðunni sem nú er komin fram. Að hans mati hefur málið verið unnið af yfirvegun og niðurstaðan komin fram með löngu, miklu og innihaldsríku samtali við hagsmunaaðila. Sæmundur fór yfir forsögu málsins og ástæðu þess að farið er út í þessar breytingar. Með þessu er komið á móts við óskir foreldra að elstu börn verði meira saman áður en þau fara í grunnskóla. Það er komið á móts við óskir þeirra foreldra sem upplifa börn sín í aðskildum vinahópum langt upp eftir öllum aldri, algerlega að ástæðulausu. Í rekstrarskýrslu KPMG kom fram að rekstur sameinaðs leikskóla verður 5% hagkvæmari. Að mati Sæmundar mun það góða starfsfólk sem er til staðar á leikskólunum njóta sín betur á sameinuðum leikskóla og fái betri stuðning hvert af öðru.
Gunnhildur tók til máls. Að hennar mati er nýbygging besti kosturinn. Þannig væri hægt að koma í veg fyrir ágreiningsmál. Vildi hún einnig benda á að almennt er mikil ánægja með núvernadi starf leikskólanna. Lýsti hún einnig yfir áhyggjum á mönnun starfa í leikskólunum. Að hennar mati var bókun E og D lista í bæjarráði um að hefja sameiningu árganga strax afar óígrunduð þar sem algerlega var komið aftan að starfsmönnum og stýrihópi. Jafnframt telur hún skort á rökum við þeirri ákvörðun að byggja við Lönguhóla. Spurði hún um stöðu stýrihópsins í ljósi þess að litið hefur verið framhjá honum við vinnuna. Að mati Gunnhildar er ekki verið að huga að hagsmunum barnanna með því að flýta sameiningu árganga.
Engu að síður fagnar hún að komin er ákvörðun varðandi húsnæðið.
Ásgerður tók til máls. Greindi hún frá því að hún styður ákvörðun um viðbyggingu við Lönguhóla. Gagnrýndi hún ákvörðun og bókun meirihluta bæjarráðs um flýtingu sameiningar árganga. Þetta er í aðgerðaáætluninni og eðlilegra að þessi vinna hefði farið fram í starfshópnum og með starfsfólki leikskólanna. Spyr hún hvort bókunin sé mótuð í samvinnu við ráðgjafann. En harmar framkomu við starfsfólk hvað varðar bókun meirihluta bæjarráðs um breytingar á innra starfi.
Björn Ingi tók til máls og benti á að ekki kom fram í bókun meirihluta bæjarráðs að fara ætti út í sameiningu strax heldur er lagt til að hefja undirbúning. Að hans mati er verið að vinna samkvæmt aðgerðaáætluninni þar sem til stóð að sameina árganga. Ekki má gleyma því að niðurstöður skoðanakönnunarainnar voru afgerandi hvað þetta varðar.
Ásgerður tók til máls og vitnaði í fund með starfsmönnum 7. júlí 2015 þar sem hún telur að fram hafi komið ósk frá starfsfólki um að ekki yrði farið í breytingar á innra starfi fyrir sameiningu. Að hennar mati ætti að gera skoðanakönnun á vilja íbúa hvað varðar framkvæmdir og forgangsröðun þeirra. Minnti hún jafnframt á fyrirspurn sína um hvort ráðgjafinn hafi verið með í ráðum varðandi ákvörðun um flýtingu sameiningar árganga.
Björn Ingi tók til máls og sagði að hann hafi átt samtal við ráðgjafann um málið en þessar tillögur eru þó ekki komnar frá ráðgjafanum. Hvað varðar meiri þátttöku íbúa í ákvarðanatöku segir hann bæjarstjórn vera kosna til að taka slíkar ákvarðanir.
Ragnheiður tók til máls og benti á að um er að ræða nýjan leikskóla þó svo að byggt verði við húsnæði Lönguhóla. Telur hún misskilning ríkja um seinni hluta bókunarinnar og bendir hún á að hann sé hluti af aðgerðaáætluninni.
Kristján tók til máls og gagnrýndi vinnu meirihlutans í leikskólamálunum, þá sérstaklega hvað varðar framkomu við starfsfólk.
Ásgerður tók til máls um fyrr nefnda bókun bæjarráðs og óskar hún eftir að bókuninni verði skipt í tvennt.
Sæmundur tók til máls og gagnrýndi viðbrögð minnihlutans og orðalag, t.d. að verið sé að koma illa fram við starfsfólk og að verið sé að varpa bombum. Sagði hann slíku tali fylgja mikil ábyrgð. Telur hann mikilvægt að horfa til upphaflegs markmiðs sem felst í sameiningu leikskólanna og óskar hann eftir að fólk horfi með tilhlökkun til verkefnisins.
Kristján tók til máls og hvatti Sæmund til að fara á leikskólana og eiga samtal við starfsmenn til að fá innsýn í líðan þeirra.
Björn Ingi lagði til að einungis yrði kosið um fyrri hluta bókunarinnar. Sagði hann hins vegar ljóst að hefja þurfi vinnu að sameiningu árganganna.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða. Samþykkt með fimm atkvæðum. Gunnhildur Imsland og Kristján Guðnason sitja hjá.
8.
Stjórnskipulag Grunnskóla Hornafjarðar
Málsnúmer 201512027
Tillaga:
Í samræmi við afgreiðslu og samþykkt á fræðslu- og tómstundarnefndar 17. febrúar s.l. er lögð fram til afgreiðslu eftirfarandi tillaga. Að skipurit Grunnskóla Hornafjarðar verði einn skólastjóri og tveir aðstoðarskólastjórar. Aðstoðarskólastjórarnir hafi aðsetur sinn í hvoru húsi, stýri daglegu starfi á yngra og eldra stigi og sjái um skipulag sérkennslu á hvoru stigi. Nánari skipting verkefna verði ákveðin síðar.

Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
9.
Umsókn um byggingarleyfi, Bugðuleiru 4
Málsnúmer 201512001
Umsókn um byggingaleyfi dags. 1.12 2015 frá Efnalaug Dóru. Skipulagsnefnd samþykkti að grenndarkynna byggingaráformin þar sem deiliskipulag er ekki til af svæðinu.
Sæmundur gerði grein fyrir að grenndarkynning fór fram skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Frestur til að skila inn athugasemdum var til 26. febrúar. Ein athugasemd barst en hún snýst ekki efnislega um fyrirhugaða framkvæmd og telst málinu óviðkomandi.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki grenndarkynninguna þar sem byggingaráform samræmast aðalskipulagi sveitarfélagsins.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
10.
Deiliskipulag fyrir flugvöll í Skaftafelli
Málsnúmer 201412027
Sæmundur lagði fram lýsingu deiliskipulags fyrir flugvöll í Skaftafelli.
Markmið með gerð deiliskipulagsins er að skilgreina svæðið utan um flugvöll sem hefur verið á svæðinu síðan 1984.
Lagði til að bæjarstjórn samþykki deiliskipulagslýsinguna og vísi henni í lögformlegt ferli.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
11.
Ósk um skipulagsvinnu Suðurhús
Málsnúmer 201602088
Umsókn frá Suðurhúsum ehf. dags. 24. febrúar um leyfi til að vinna að deiliskipulagi.
Sæmundur gerði grein fyrir ósk um skipulagsvinnu fyrir Suðurhús. Lagði til að bæjarstjórn samþykki að unnið verði að deiliskipulagi að Suðurhúsum jafnframt vinnu að breytingu á aðalskipulagi fyrir svæðið þar sem deiliskipulagshugmyndir samræmast ekki aðalskipulagi.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
12.
Umsókn um lóð, Heppuvegur 2a
Málsnúmer 201601079
Umsókn Stefáns Þórs Arnarssonar um lóð að Heppuvegi 2 lögð fram. Bæjarráð mælti með lóðarúthlutuninni.
Forseti bar umsóknina upp til samþykktar.
Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum að úthluta lóðinni til umsækjanda.
13.
Umsókn um lóð, Heppuvegur 3
Málsnúmer 201602019
Umsókn Bergþóru Ólafíu Ágústsdóttur um lóð að Heppuvegi 3 lögð fram. Bæjarráð mælti með lóðarúthlutuninni.
Forseti bar umsóknina upp til samþykktar.
Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum að úthluta lóðinni til umsækjanda.
14.
Umsókn um lóð, Heppuvegur 2c
Málsnúmer 201602047
Umsókn Gunnars Ásgeirssonar um lóð að Heppuvegi 2c lögð fram. Bæjarráð mælti með lóðarúthlutuninni.
Forseti bar umsókn Gunnars Ásgeirssonar fyrir hönd óstofnaðs félags upp til samþykktar.
Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum að úthluta lóðinni til umsækjanda.
15.
Umsókn um lóð, Heppuvegur 2 b
Málsnúmer 201602028
Umsókn Gunnars Ásgeirssonar um lóð að Heppuvegi 2b lögð fram. Bæjarráð mælti með lóðarúthlutuninni.
Forseti bar umsóknina upp til samþykktar.
Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum að úthluta lóðinni til umsækjanda.
16.
Umsókn um lóð Ófeigstanga 12
Málsnúmer 201603015
Umsókn Skinneyjar Þinganes hf.um lóð að Ófeigstanga 12 lögð fram. Bæjarráð mælti með lóðarúthlutuninni.
Forseti bar umsóknina upp til samþykktar.
Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum að úthluta lóðinni til umsækjanda.
17.
Umsókn um lóð Ófeigstanga 14
Málsnúmer 201603014
Umsókn Skinneyjar Þinganes hf. um lóð að Ófeigstanga 14 lögð fram. Bæjarráð mælti með lóðarúthlutuninni.
Forseti bar umsóknina upp til samþykktar.
Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum að úthluta lóðinni til umsækjanda.
18.
Umsókn um nýjan lóðaleigusamning í Hafnarnesi
Málsnúmer 201508043
Umsókn Árnínu Hildar Guðjónsdóttur um stækkun lóðar og að gerð á nýjum lóðaleigusamning lögð fram.
Forseti bar umsóknina upp til samþykktar.
Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum nýjan lóðarleigusamning og stækkun lóðar að Hafnarnesi.
19.
Samþykktir um götu- og torgsölu í Sveitarfélaginu Hornafirði
Málsnúmer 201512065
Atvinnumálanefnd hefur unnið að samþykktinni vegna eftirspurnar og umsókna um að staðsetja söluvagna í sveitarfélaginu.
Ragnheiður vék af fundi undir þessum lið vegna hagsmunatengsla.
Götu‐ og torgsala tekur til hvers kyns sölustarfsemi sem fer fram utanhúss og á almannafæri á landi í eigu Sveitarfélagsins Hornafjarðar, s.s. á torgum, götum, gangstéttum, í almenningsgörðum og á hafnarsvæði. Götu‐ og torgsala er leyfisskyld og eru leyfi gefin út í tilgreindan tíma af bæjarráði.
Forseti bar samþykktina til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
20.
Reglur um fjárhagsaðstoð 2016
Málsnúmer 201602064
Forseti gerði grein fyrir helstu breytingu á reglunum.
Útreikningum var breytt skv. 10. gr., þ.e. úr leið A í leið B. Ákvæðum um skyndiaðstoð og endurhæfingu bætt við í 20. og 21. grein auk ákvæðis um desemberaðstoð sbr. 28. grein. Að lokum gerð breyting á 22. grein um útfararstyrk.
Forseti bar upp breytingu á reglum um fjárhagsaðstoð til atkvæða.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
21.
Reglur um könnun og meðferð einstakra barnaverndarmála.
Málsnúmer 201511009
Forseti gerði grein fyrir nýjum reglum um könnun og meðferð einstakra barnaverndarmála sem byggja á eldri reglum. Um er að ræða leiðarvísi fyrir starfsmenn og umboð til starfsmanns að vinna barnaverndarmál.
Forseti bar reglurnar upp til samþykktar.
Samþykkt með sjö atkvæðum.
22.
Skýrsla bæjarstjóra
Málsnúmer 201412003
Bæjarstjóri gerði grein fyrir störfum sínum sl. mánuð.
23.
Fyrirspurnir - bæjarstjórn 2016
Málsnúmer 201602023
Engar fyrirspurnir hafa borist.